Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞMÐJUDAGUR 26. MAI 1987 mikill er alltaf möguleiki að endur- meta stöðuna, leita upplýsinga ef maður strandar í einhverju. Það er gott framtak hjá Há- skóla íslands að eiga frumkvæði að að bjóða þetta tölvunámskeið. Ég held að fólk hafi gott af að komast inn í opinbera og virta stofnun til að læra á tölvur og hugbúnað - hér einkennist námið ekki af sölumennsku eins og vill brenna við með tölvukennslu. Ég vil hvetja fók til að sækja endurmenntunamámskeið Háskól- ans ef það hefur tök á því.“ Nauðsynlegl að þekkja fleira en eigið fag „Ég hef áhuga á að fylgjast með í þessu þó ég noti ekki tölvu í minni vinnu“, sagði Jón Birgir Jónsson, tannlæknir. „Þetta hefur verið mjög gott námskeið og vel skipulagt. - Þurfa menn að hafa einhverja reynslu af tölvum fyrir til að hafa gagn af þessu námskeiði? Ég held að það væri erfitt fyrir algeran byijenda að hafa gagn af námskeiði sem þessu og það er varla fyrir fólk sem aldrei hefur komið nálægt tölvum. Hins vegar þarf ekki að hafa mikla undirstöðu til að átta sig á hlutunum hér. - Hvað finnst þér um endur- menntunamámskeið á vegum Háskólans? Það er í sjálfu sér gott mál að opna Hákólann sem mest en kenn- ararnir vilja sjálfsagt hafa frí á kvöldin eins og aðrir. Við Háskól- ann em bestu kennaramir og þess höfum við notið á námskeiðinu. - Myndir þú taka þátt í fram- haldanámskeiðum í tölvufræðum ef þau yrðu í boði? Já, ég væri alveg til í að læra meira í þessu ef framhaldsnám- skeið yrði í boði. Það er nauðsyn- legt að þekkja fleira en eigið fag,“ sagði Jón Birgir. Hægt að læra mikið á námskeiði sem þessu „Á þessu námskeiði er hægt að læra að verða sjálfbjarga með þessi kerfi sem kennt er á ef menn em áhugasamir við námið", sagði Am- aldur Valdemarsson, sem starfar á Skattstofunni. „Þetta er ekki F.v Arnaldur Valdemarsson, Jón Birgir Jónsson og Katla Gunnars- dóttir. Þarna eru nemendur á tölvunámskeiðinu að fást við samskipta- og ráðstefnuforrit í tölvuveri Reiknistofnunar Háskóla Islands. Á námskeiðinu sjálfu var mun rýmra um nemendur og aðeins einn eða tveir um hvern skjá. Endurmenntunarnámskeið í tölvunotkun hjá Háskóla Islands: Námsárangur betri en hjá stúdentum raunvísindadeildar SÚ NÝJUNG var tekin upp á vegum endurmenntunarnefnd- ar Háskóla Islands í upphafi þessa árs að bjóða almenningi uppá heilt námskeið úr kennslu- skrá Háskólans á kvöldin, og var námskeiðið haldið samhliða kennslu þess fyrir nemendur Háskóla íslands. Er þetta í fyrsta skipti sem heilt námskeið í Háskóla Islands er boðið al- menningi sem kvöldnámskeið. Mun færri komust að en vildu. Um 40 tóku þátt í námskeiðinu að þessu sinni og að sögn Margrét- ar Bjömsdóttur endurmenntunar- stjóra Háskólans er það fólk á aldrinum frá tvítugt til sjötugs og menntun þátttakenda allt frá gagnfræðingi til verkfræðings og viðskiptafræðings. Helgi Þórsson, sérfræðingur við Reiknistofnun Háskólans og einn leiðbeinenda á námskeiðinu, sagði að þátttakend- ur í námskeiðinu hefðu verið mjög áhugasamir og námsárangur betri en hjá stúdentum raunvísinda- deildar sem stunda námskeiðið á daginn. Námskeiðið er ætlað þeim sem litla eða enga reynslu hafa í tölvunotkun en vilja vera sjálf- bjarga á helstu notkunarsviðum einkatölva sem eru hliðstæðar við IBM pc. Kennt var tvö kvöld í viku frá 27. janúar fram í miðjan maí, þriðjudags- og fimmtudagskvöld, en auk þess voru verklegar æfing- ar og að sjálfsögðu heimalestur. Á námskeiðinu hefur verið farið yfir eftirfarandi þætti varðandi tölvu- notkun: vélbúnað og stýrikerfi, ritvinnslu, notkun tölvureikna, notkun gagnagrunskerfa (dBase III) og undirstöðuatriði forritunar í dBase III. Þá var einnig kennt á tölfræðiforritið Minitab, ráðstefnu- forrit og ýmislegt fleira. Leiðbein- endur voru Helgi Þórsson, Bergþór Skúlasson og Kjartan Guðmunds- son sérfræðingar við Reiknisstofn- un Háskólans og Guðmundur Ólafsson viðskiptafræðinemi. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins litu inn á nám- skeiðið á dögunum og voru þá þrír þátttakenda teknir tali. Morgunblaðið/Sverrir Margrét Björnsdóttir, endurmenntunarstjóri Háskólans og Helgi Þórsson sérfræðingur hjá Reikni- stofnun Háskólans. mjög þungt námskeið en hins veg- ar betra að halda sig að því ef maður vill ná árangri. Að sjálfsögðu væri best að hafa aðgang að þessum kerfum heima eða í vinnunni, ef maður ætlaði að komast alveg inn í þau en þó svo sé ekki er samt hægt að læra mikið á námskeiði sem þessu. Ég hef t.d. ekki aðgang að þessum kerfum í vinnunni þó ég vinni þar á tölvu dags daglega. - Hvað fynnst þér um opin námskeið sem þessi við Háskóla íslands? Mér finnst slíkt námskeiðahald sjálfsagt ef fólk hefur áhuga - fólk hefur mikið gagn af að taka þátt í svona námskeiðum. Kennslan hér hefur verið mjög góð og það er hægt að bæta miklu við sig á þessu námskeiði. Það hefur veríð mjög ánægjulegt að taka þátt í þessu.“ Þessi þekking- á ör- ugglega eftir að nýtast mér í vinnunni „Ég er með tölvu í vinnunni, en ég starfa sem tækniteiknari á arkí- tektastofu", sagði Katla Gunnars- dóttir. „Ég sótti þetta námskeið fyrst og fremst til að læra á Multi- plan-forritið og gagnagrunnskerf- ið dBase III. Þessi þekking á örugglega eftir að nýtast mér í vinnunni og er reyndar þegar farin að gera það. - Hvemig hefur þér líkað á þessu námskeiði? Þetta námskeið er vel skipulagt og það er kostur hve það nær yfir langan tíma. Þegar tíminn er svona Morgunblaðið/Kristján G. Amgrímsson Jón L. Árnason og Margeir Pétursson með skjölin sem staðfesta stórmeistaratitil þeirra. Skáksamband íslands: Þráinn Guðmundsson endurkjörinn forseti ÞRÁINN Guðmundsson var endur- kjörinn forseti Skáksambands íslands á aðalfundi sambandsins síðastliðinn laugardag en kjörtíma- bilið er eitt ár í senn. í stjóm Skáksambandsins voru kosnir Jón Rögnvaldsson, Árni Bjöm Jónasson, Áskell Öm Kárason, Ólafur Ásgrímsson, Guðlaug Þorsteinsdóttir og Ríkharður Sveinsson. Kvöldið fyrir aðalfundinn var haldin uppskemhátíð þar sem veitt voru verð- Iaun fyrir mót á vegum sambandsins. Við það tækifæri fengu Jón L. Áma- son og Margeir Pétursson afhent skjöl frá Alþjóða skáksambandinu, FIDE, til staðfestingar á stórmeistaratitli þeirra í skák. Hrunamannahreppur: Vorannir hjá garð- yrkjubændum Syðra-Langholti. EINS og hjá öðrum bændum eru miklar vorannir hjá garðyrkjubændum. Nú stendur yfir sáning í garða eða útplöntun á grænmetisplöntum sem sáð var til í apríl. Hér í Hrunamannahreppnum eru margir garðyrkjubændur og munu þeir vera með um 20 hektara lands undir ræktunina. Allt er gert til að uppskeran komist sem fyrst á markað en það gæti orðið um miðjan júlí. Garðlöndin em hituð upp með því að rör með heitu vatni eru lögð í jörðina og þá hefur einnig færst mjög í vöxt síðustu ár að setja svokallaðan akrýldúk yfir plöntumar. Hvorutveggja flýtir fyrir þróska matjurtanna og skap- ar öryggi ef kuldakast gerði. En við hugsum ekki til þeirra hluta í allri þeirri sól og blíðu sem verið hefur síðustu daga. Þegar fréttaritara bar að garði á garð- yrkjubýlinu Jörva fyrir skömmu var Georg Ottósson að planta út blómkáli með aðstoð bama sinna Daða og Lárettu og nágrannabörn vildu hjálpa til og vera með á myndinni. Til að koma plöntunum í jörðina er notuð stórvirk vél sem fest er aftaná dráttarvél. — Sig. Sigm. Morgunblaðið/Sig.Sigm. Georg Ottósson á Jörva plantaði út blómkáli með aðstoð barna sinna og nágrannabörn vildu vera með á myndinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.