Morgunblaðið - 26.05.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
Aqua Nor ’87 stærsta
fiskeldissýning’ heims
Fiskeldissýningin Aqua Nor ’87 sem verður í Þrándheimi
dagana 13.-18. ágúst verður sú stærsta sem haldin hefur
verið í heiminum. Yfir 250 sýnendur frá rúmlega 20 löndum
munu sýna á um 8000 fermetra sýningarsvæði. Auk framleið-
enda og sölufyrirtækja, sem sýna alls kyns tæki og búnað til
fiskeldis, eru í hópi sýningaraðila fiskframleiðendur, vinnslu-
fyrirtæki, útflytjendur, rannsóknarstofnanir og alls kyns
þjónustufyrirtæki, bæði einkafyrirtæki og opinberir aðilar.
Aqua Nor '87 er fjórða sýningin
sem haldin er á bökkum Niðaróss
í Þrándheimi. Aðstandendur sýn-
ingarinnar, Sölusamband fískeld-
isstöðva og Félag norskra fískeld-
isstöðva (Fiskoppdrettemes
Salgslag A/L og Norske Fiskeopp-
dretteres Forening), búast við að
milli 20.000 og 30.000 manns heim-
sæki sýninguna frá öllum heims-
hornum.
í tengslum við sýninguna verða
haldnar 3 ráðstefnur. Sú fýrsta,
sem haldin verður 14. ágúst í Stud-
entersamfundet, fjallar um tölvu-
væðingu í fískeldi. Önnur ráðstefn-
an verður haldin 16. ágúst og fjallar
sú um fiskisjúkdóma. Síðasta ráð-
stefnan verður 17. ágúst og snýst
hún um eitraða þörunga og þau
vandamál sem þeir skapa í fískeldi.
Báðar síðastnefndu ráðstefnumar
verða í Royal Garden Hotel.
Auk sýningarinnar og ráðstefn-
anna er ætlunin að bjóða í stærstu
grillveislu Noregs á meðan á sýn-
ingunni stendur. Að henni stendur
Upplýsingaráðið fyrir físk (Opp-
lysningsutvalget for físk) sem er
opinbert ráð sem stuðla á_að auk-
inni fískneyslu í Noregi. Á vegum
sýningamefndar verður aðfaranótt
15. ágúst boðið upp á Aqua Nor
Artic Night, sem er flugferð frá
Þrándheimi til Svalbarða, með veit-
ingum og skemmtiatriðum í lofti
og 3ja tíma kynnisferð um Sval-
barða.
St. Louis Kings of
Rhythm til Islands
Bandaríska rythmablúshljóm-
sveitin St. Louis Kings of Rhythm
er væntanleg hingað til lands til
tónleikahalds i Broadway og á
Akureyri.
Hljómsveitin er að stofni til
hljómsveit Ike Tumer, Kings of
Rhythm, og naut mikillar hylli á
sjötta áratugnum. Hún var endur-
reist á síðasta ári og er að koma
úr sinni annarri Evrópuför er hún
kemur hingað á vegum Jassvakn-
ingar. í hljómsveitinni eru níu
hljóðfæraleikarar og söngvarar, þar
á meðal söngkona.
Hljómleikamir verða í veitinga-
húsinu Broadway 31. maí næst-
komandi og á Akureyri 1. júnf.
Fréttatilkynning
Hallgrímur Sigurðsson framkvæmdastjóri, Hjörleifur Brynjólfsson frystihússtjóri og Pálmar Guðmunds
son velstjori við nýju frystipressuna.
Eyrarbakki:
Búið að ganga frá kaupum
Suðurvarar á hraðfrystihúsinu
Frystigeta hússins bætt með nýjum tækjum
Selfossi.
FYRIRTÆKIÐ Suðurvör hf. á
Unnið við grálúðuverkun hjá Suðurvör á Eyrarbakka.
Eyrarbakka gekk nýlega frá
kaupum á hraðfrystihúsinu á
Eyrarbakka. Fyrirtækið hefur
verið með húsið á leigu undan-
farin tvö ár. Verið er að auka
afkastagetu hússins með nýjum
frystitækjum og búa það undir
að geta sinnt margþættari
vinnslu.
Hjá Suðurvör er nú unnið að
undirbúningi humarvertíðarinnar
og mun frystihúsið á Eyrarbakka
taka á móti 90—100 tonnum af
humri frá 8 bátum. Fjórir þeirra
munu landa á Eyrarbakka, en hinir
landa í Þorlákshöfn.
Hallgrímur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri sagði að rekstur
hraðfrystihúsisns hefði gengið
þokkalega miðað við að vertíðimar
hafa verið lélegar og þó einkum sú
sem er nýlokið. Þeir gerðu ráð fyr-
ir að frysta ýsu á vertíðinni og
hafa yfírleitt verið með um 1000
tonn, en nú náði ýsuaflinn ekki 100
tonnum.
„Vertíðarfískur virðist ekki
ganga inn á miðin, hann virðist
vera drepinn annars staðar og þá
smærri," sagði Hallgrímur. „Ég hef
alltaf litið svo á að það ætti að
byggja upp bátaflotann, en ekki
hleypa svona mörgum togurum að.
Með bátunum náum við fiskinum
eldri. Þó útlendingarnir séu famir
þá em þessir togarar mun afkasta-
meiri núna.“
Hallgrímur sagði og að það gæti
orðið bið á því að þeir fengju góða
vertíð sunnanlands. Það væri spum-
ing hvort aðrir landshlutar, sem
væm betur settir, hefðu náð sér
up á því að vinna smáfisk.
Hjá Suðurvör hf. em nú í allt
185 manns á launaskrá. Fyrirtækið
hefur unnið físk af eigin bátum og
líka verið að vinna grálúðu fyrir
Japansmarkað og langlúm sem
Hallgrímur segir að sé ljós punktur
í vertíðartilvemnni. Einnig hefur
verið unnið í skreið fyrir Ítalíumark-
að og um þessar mundir er verið
að pakka saltfiski hjá fyrirtækinu
í Þorlákshöfn.
Jafnframt því að bæta við frysti-
getuna með nýrri pressu og frysti-
skápum hafa verið gerðar
endurbætur á tækjasal hússins og
sérvinnslusal. Eftir þessar breyting-
ar er unnt að vinna annan físk á
meðan verið er í humri. Það sama
á við á haustin þegar verið er í loðnu
og langlúran þarf einnig mikið
frystipláss. Einnig kemur sér vel í
toppum á vertíðinni að hafa nægi-
Þorlákur Kristinsson eða Tolli við eitt af verkum sínum.
Tolli sýniríAkoges í Vestmannaeyjum
í AKOGES i Vestmannaeyjum verður opnuð mið-
vikudaginn 27. maí kl. 20.00 myndlistarsýning á
verkum Þorláks Kristinssonar eða Tolla. Sýnd
verða um 30 oliumálverk, máluð á árunum
1984-1987.
Þetta er fímmta einkasýning Tolla en hann hefur
áður tekið þátt í samsýningum. Síðast sýndi hann
með s-kóreska myndlistarmanninum Bono Kyoulm í
Kóresku menningarmiðstöðinni í París í byijun apríl
á þessu ári.
Sýning Tolla í Akoges stendur til 31. maí og er
opin kl. 14-22.
Selfoss:
Kona forseti
bæjarstjórn-
ar í fyrsta sinn
Kosið í nefnd til að skrifa sögu bæjarins
Selfossi.
Á FUNDI bæjarstjórnar 20. maí
siðastliðinn var kona í fyrsta sinn
í forsetastól. Það var Sigríður
Jensdóttir sem stýrði fundi i for-
föllum Steingríms Ingvarssonar.
Fundurinn sem Sigríður stýrði
var viðburðaríkur og tókust bæjar-
fulltrúar snarplega á um mál sem
m.a. tengdust afgreiðslu eldri reikn-
inga bæiarins. Um tíma var svo
heitt í kolunum að hnútur flugu á
milli manna úr sætum sem er
ósæmandi, enda áminnti forseti
bæjarfulltrúa um að grípa ekki
frammí.
Fundurinn varði í 6 klukkustund-
ir og um hann miðjan gerði Sigríður
fundarhlé vegna harðrar gagnrýni
frá minnihluta bæjarstjómar um
dagskráratriði og málsmeðferð.