Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 33

Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1987 ÞP 33 Grindavík: Humarveiðarnar byrja nokkuð vel Gríndavík. ÞOKKALEGASTA veiði er hjá Grindavíkurbátum sem byijuðu humarveiðar síðastliðinn mið- vikudag. Flestir eru að austur við Vestmannaeyjar á bleyðu við Skúlnasker. Að sögn Gunnars Sigurðssonar skipstjóra á Vörðunesinu GK var hann búinn að taka eitt hal þegar kúppling við spil bilaði, svo hann varð að koma í land. Út úr þessu hali fengust 200 kg af slitnum hum- ar eftir íjögurra tíma tog. Um 50% af humrinum var í stærri flokkinn og er það vel við unandi. Nokkrir bátar voru með mjög gott eða um 900 kg eftir sólar- hringinn. Lítil veiði er hins vegar út af Krísuvíkurberginu en þar var Sigrún GK að toga. Undirbúningur hjá þeim fjórum stöðvum í Grindavík sem verða í humarvinnslunni í sumar er langt kominn. Verið er að stilla upp vélum og mála auk fjölmargra atriða sem þarf að betrumbæta svo allt gangi vel þegar sjáif vinnslan hefst eftir helgina. — Kr. Ben. Morgunblaðið/Kr.Ben. Unnið við uppsetningu á humarskoltromlum í frystihúsinu Arnarvík í Grindavík fyrir helgina. / an. Flaututón- leikar Gunnars Gunnarssonar Jónshúsi, Kaupmannahöfn. GUNNAR Gunnarsson flautu- leikari hélt tónleika i „Húsinu" í Magstræde hér í Höfn nýlega. Tónleikarnir voru vel sóttir og fengu færri sæti en vildu. Var tónlistarmanninum fagnað inni- lega. Bæjarráð Hafnarfjarðar veitti styrk til tónleikanna. Á dagskránni voru lög eftir Dut- illeux, Poulenc, Roussel, Rivier, Gaubert og Bome og lék Gunnar nokkur aukalög. Undirleikari hans á tónleikunum var Jens Ramsing, þekktur undirleikari hljómlistar- manna og söngvara. Léku þeir í salnum uppi, þar sem oft eru haldn- ir kammertónleikar. Kennari Gunnars, Toke Lund Christensen, var mjög ánægður með árangur nemanda síns á tón- leikunum. Hann er dósent við Det Kongelige Musikkonservatorium og hefur Gunnar Gunnarsson sótt einkatíma hjá honum undanfarin 4 ár. „Feikilega góður kennari," sagði Gunnar, „og hef ég haft frábærlega gott gagn af dvölinni hér“. Gunnar flautuleikari hefur einnig kennt einn dag í viku í tónlistarskóla hér og oft leikið á flautu í íslenzku guðsþjónustunum og á ýmsum sam- komum. Nú er Gunnar Gunnarsson að flytja heim ásamt fjölskyldu sinni og sagðist hann hlakka til að reyna fyrir sér á Íslandi. Hann er ráðinn flautukennari við Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar og Tónlist- arskóla Hafnarfjarðar. Er Gunnari ofarlega í huga þakklæti til Hafnar- Qarðarbæjar fyrir styrkveitingu til tónleikanna. 1983 hélt Gunnar tón- leika í Hafnarfirði, en þá hafði hann lokið einleikaraprófi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Héðan úr íslendinganýlendunni í Kaupmannahöfn fylgja Gunnari beztu árnaðaróskir til frekari frama á tónlistarbrautinni. — G.L. Ásg. I L f ^ T. DELGRECO 4) \/V SSSláiS n flautuleik- $ POMPEI T. ANNUNZIATA VVI| /ú( o/;'' -fýj/li-i/l 1 ROM FYRIR AÐEINS GETUR ÞAÐ VERIÐ? JÚ, ÞAÐ ER HÁRRÉTT NAPOlK^U PORTICI W? ERCOLANO v \ .' í':' .' • ‘ - ‘ - ■ ' CASTELLAMMARE STABIA VICOEQUENSE0 META 0 PIANO Dl SORRENTO (f| 30HRENTO 0 llilllilil MAIORI AMALFI SALERNO MASSALUBRENSE ANACAPRI CAPRI * PÓSITANO 0 PRAIANO FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL býður þér upp á beint flug til RÓMABORGAR 25. JÚLÍ fyrir aðeins 12.500.- krónur. I Sorrento er götulíf- ið hvergi meira og þar er kvöldlífið eins og það gerist best á Ítalíu. Síðan getur þú valið að auki: - 19 dagar í Sorrento 8 dagar í Sorrento - Til Rómar um Luxem 5 dagar í Róm 3 dagar í Róm Heim um Luxembourg bourg 5. ágúst 8 dagar í Sorrento 5 dagar í Róm Eða bara bílaleigubíl allan tímann Fararstjóri allan tímann verður LJrvalsfararstjórinn Friðrik Rafnsson. Boðið verður upp á fjöldan allan af skoðunarferðum s.s. til Caprí, Pompei, Vesuvíus, Napolí og Caserta Cassino. Um Sorrento hefur oft verið sagt að hvergi sé fegurð Ítalíu meiri, hvergi sé hægt að komast nær sögufrægri menningu Rómaveldis og í snertingu við einhverjar ægilegustu náttúruhamfarir sögunnar. KOMDU MEÐ TIL ROMAR OG SORRENTO. FERÐASKRIFSTOFAN URVAL V AUSTURVÖLL. PÓSTHUSSTRÆTI 9, 101 REYKJAVlK Umboðsmenn Úrvals um land allt: SIMI 26900 Akranes: Ólafur B. Ólafsson, Skólabraut 2, s. 1985 Akureyri: Feröaskrifstofa Akureyrar. Ráðhústorgi 3, s. 25000 Bolungarvík: Margrét Kristjánsdóttir, Traöarstig 11, s. 7158 Borgarnes: Póra Björgvinsdóttir, Sæunnargötu 2, s. 7485 Dalvík: Sólveig Antonsdóttir, Goöabraut 3, s. 61320 Egllsstaöir: Feröamiöstöö Austurlands, Kaupvangi 6, s. 1499 Flateyri: Jónina Ásbjarnardóttir, Eyrarvegi 12, s. 7674 Gríndavík: Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. Noröurvör, s. 8060 Grundarfjöröur: Dóra Haraldsdóttir, Grundargötu 50. S. 8655 Hafnarfjöröur: Jóhann Petersen, Strandgötu 25, s. 51500 Hella: Aöalheiöur Högnadóttir, v/Suöurlandsveg, s. 5165 Húsavík: Björn Hólmgeirsson, Háageröi 10, s. 41749 Höfn: Hornagaröur hf., Hrisbraut 12, s. 81001 ísafjörður: FerÖaskrifstofa Vestfjaröa, Hafnarstræti 4, s. 3557 Keflavik: Nesgaröur hf, Faxabraut 2, s. 3677 Ólafsvik: Valdis Haraldsdóttir, Brautarholti 3, s. 6225/6565 Patreksfjöröur: Flugleiöir hf., Aöalstræti 6, s. 1133 Rif: Auöur Alexandersdóttir, Háarifi 33, s. 6644 Sauðárkrókur: Árni Blöndal, Viöihliö 2, s. 5630 Selfoss: Suöurgaröur hf., Austurvegi 22, s. 1666 Seyðisfjörður: Adolf Guömundsson, Túngötu 16, s. 2339 Siglufjöröur: Birgir Steindórsson, Aöalgötu 26, s. 71301 Skagaströnd: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hólabraut 4, s. 4790 Stykkishólmur: Hrafnkell Alexandersson, versl. HúsiÖ, s. 8333 Vestmannaeyjar: Úrvalsumboöiö, Tryggingahúsinu, s. 1862 Vopnafjöröur: Bragi Dýrfjörö, Kolbeinsgötu 15, s. 3145 Þingeyri: Katrin Gunnarsdóttir, Aöalstræti 39, s. 8117

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.