Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 36

Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞP’OJUDAGUR 26. MAÍ 1987 DAGANA 28., 29. og 30. maí nk. munu ísraelsku þátttakend- urnir í Eurovision-söngfva- keppninni 1987, þeir Datner og Knshnir, skemmta i veitinga- húsinu Evrópu i Borgartúni 32. Datner og Kushnir vöktu mikla athygli fyrir skemmtilega sviðsframkomu og óvenjulegt lag. Fullu nafni heita þeir félagar Avi Kushnir og Nathan Datner. Þeir eru 26 ára og 31 árs. Báðir eru þeir söngvarar og leikarar auk þess sem þeir eru liprir íþrótta- menn. Datner og Kushnir munu syngja lagið sitt, „Shir Habatlan- im“, í Evrópu. Einnig mun Halla Margrét Arnadóttir koma fram á fimmtudagskvöldinu og syngja lagið „Hægt og hljótt". Sama kvöld verður Ríkisútvarpið, rás 2, með beina útsendingu frá Evr- ópu og hefst hún á miðnætti. Ufsaflökum pakkað í Hraðfrystistöðinni Morgunblaðið/Sverrir Barnaverndarráð Islands: Leyfi fyrir rekstri sumarbúða ekki veitt Datner og Kushnir skemmta gestum Evrópu dagana 28., 29. og 30. maí nk. Datner, Kushnir og Halla Margrét í Evrópu Brunavarnir víða í miklum ólestri SUMARBÚÐIR og sumardvalar- heimili fyrir börn hafa verið starfrækt á sumrin í áratugi og aldrei í meira mæli en á síðustu árum. Í fyrra tóku gildi nýjar reglur um sumardvalarheilmili og sumarbúðir og fela þær í sér þær breytingar meðal annars, að krafist er vottorðs slökkviliðs- stjóra í viðkomandi sveitarfélagi um að brunavarnir séu í lagi. Þar er einnig kveðið á um að verði uppvíst um starfrækslu sumardvalarheimilis eða sumar- búða, sem rekið sé án tilskilinna rekstrarleyfa, skuli Barnavernd- arráð krefjast lokunar þeirra. Sækja verður um til Barnavemd- arráðs íslands. Að sögn Guðjóns Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Bamaverndarráðs, er algengt að umsóknum fylgi ófullnægjandi upplýsingar og eldvarnir víða í miklum ólestri. Um 20 umsóknir hafa borist á þessu ári, en aðeins ein þeirra verið afgreidd enn sem komið er. „Úrbóta er mjög víða þörf, sérs- taklega hvað eldvarnir varðar. Við hvorki viljum né getum mælt með starfsemi staða þar sem öryggi barnanna er ekki tryggt," sagði Guðjón. Hann sagði hlutverk Bamaverndarráðs að meta umsókn- ir og mæla með að leyfi sé veitt ef umsækjandi uppfyllir tiltekin skilyrði. En Menntamálaráðuneytið veitir formlegt leyfi. „Ef í ljós kem- ur að skilyrði eru ekki uppfyllt, getum við ekki ábyrgst þessa staði," sagði Guðjón. Hann sagði að gerðar væru nú meiri kröfur til þess að lýst væri uppeldisstarfí og hvað ætlast væri fyrir með rekstrinum. Umsóknum skal fylgja umsögn og mat læknis eða heilbrigðisfulltrúa á húsnæðinu og slysahættu, grein- argóð umsögn barnaverndarnefnd- ar um heimilið, hæfni þess og aðstæður. Þá á að fylgja umsókn mat og vottorð slökkviliðsstjóra um ástand brunavarna. „Við eftir- grennslan hefur komið í ljós að á mörgum þessara staða eru aðstæð- ur þannig að þar ættu alls ekki að dveljast böm. Við frekari athugun kom í ljós að þeir sem gefa vott- orð, eru í sumum tilfellum ekki nógu ábyrgir. Ég get nefnt sem dæmi að fyrir algera tilviljun komst ég að því að slökkviliðsstjóri, sem vottaði að bmnavarnir væru í góðu ástandi og uppfylltu öll skilyrði, hafði ekki komið á staðinn. í öðm tilfelli var um að ræða vandaða umsókn þar sem teikningar af hús- næði fylgdu. Þar kom í ljós að húsið er óbyggt, enda þótt vottorðin gæfu annað til kynna. Einnig höfum við gmn um að ákveðnir staðir sem ekki hafa sótt um leyfi hyggist samt reka sumarbúðir. Barnavemdar- nefndir eiga að hafa eftirlit með sumardvalarheimilum í sínu um- dæmi og gera viðvart, en við vitum nú að margir þessara staða hafa starfað í mörg ár án tilskilinna leyfa. Nokkur sumardvalarheimilana em heimavistarskólar á vetuma, svo í húsnæðinu em böm allt árið, og þess vegna er þetta ennþá alvar- legra en ella. Það kom okkur geysilega á óvart hvað eldvömunum er víða ábótavant," sagði Guðjón. Flestir sumardvalarstaðir hafa auglýst starfsemi sína frá júníbyij- un. Fjöldi bama er mismunandi, allt frá 6 upp í 90 böm. Guðjón sagði að staðimir væm ákaflega mismunandi og um þriðjungur um- sókna væri frá stöðum sem ekki hefðu áður rekið sumardvalarheim- ili eða sumarbúðir. „Bmnamála- stofnun ríkisins hefur að okkar tilmælum byrjað á úttekt um ástand staðanna, en henni er auðvitað ekki lokið. Að því er stefnt eins fljótt og unnt er. Stofnunin hefur sýnt mjög góðan skilning á því hve þetta er mikilvægt, en hún er bæði fálið- uð og með mjög viðamikil verkefni og skyldur. Allt eins má búast við að einhverjir staðir fái ekki leyfi í sumar og aðrir verði þegar í stað að gera viðeigandi ráðstafanir. Það er ekki hægt að láta það viðgang- ast að þar sem börn em séu þessir hlutir ekki í lagi. Þetta er mál sem fara þarf ofan í kjölinn á og það verður ekki gert í einni svipan. Bamavemdarráð mun ekki mæla með að leyfi verði veitt til þeirra staða sem vitað er að ekki uppfylla skilyrðin," sagði Guðjón að lokum. Morgunblaðið/Júlíus Guðjón Bjarnason, framkvæmdastjóri Barnaverndarráðs. „Það er aftur komin fisklykt í húsið“ Frysting á bolfiski hafin að nýju í Hraðfrystistöðinni HEFÐBUNDIN vinnsla og fryst- ing bolfisks er hafin að nýju hjá Hraðfrystistöðinni í Reykjavík eftir hlé frá því á síðasta hausti. Frystingu var þá hætt vegna erfiðrar fjárhagsstöðu, en nú hefur staðan lagazt, að sögn Ágústs Einarssonar, fram- kvæmdastjóra. „Við hættum hefðbundinni fryst- ingu bolfisks hér 1. október síðast- liðinn vegna erfiðrar stöðu,“ sagði Ágúst Einarsson, í samtali við Morgunblaðið. „Síðan fómm við í frystingu loðnu og loðnuhrogna í febrúar og stóð sú vinnsla fram eftir marzmánuði og náði tæpum 500 tonnum. Mánuður er svo liðinn síðan við fómm að frysta bolfiskinn aftur. Þetta verður í smáum sniðum hjá okkur, mun smærri en áður fyrr. Þá tek ég eitthvað af fiski af eigin skipum og að auki er alltaf einhver fiskur til í skiptum milli útgerða. Skipin munu áfram ýmist landa heima eða erlendis, en með tilkomu fiskmarkaða getur þetta allt breytzt. Það hefur sýnt sig, því miður, að það var rétt ákvörðun á sínum tíma að hætta frystingunni. Staðan hefur lagazt, útlitið er nokkuð bjart og svo getur maður bara ekki slitið sig frá þessu. Það er aftur komin fisklykt í húsið," sagði Ágúst Ein- arsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.