Morgunblaðið - 26.05.1987, Qupperneq 52
fið
52
??fff I*V .32 5It.TOA(TTÍT,(TI5T!T (TISAJ9VÍITQÍTÖM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
V estmannaeyjar:
*
Arni Johnsen
sæmdur gull-
merki SVFÍ
ÁRNI Johnsen, fyrrverandi al-
þingismaður, var sæmdur
gullmerki Slysavarnafélags Is-
lands við skólaslit Stýrimanna-
skólans í Vestmannaeyjum.
Skólaslitin voru tengd komu
Sæbjargar — slysavarnaskóla
sjómanna — til Vestmannaeyja.
í frétt frá Slysavamafélagi Is-
lands kemur fram að Arni var
sæmdur gullmerki SVFÍ í þakk-
lætisskyni fyrir stóran þátt hans
í því að skipið var afhent félaginu
til þessa starfs á sínum tíma, svo
og fyrir margvísleg störf hans í
þágu öryggismála og fræðslumála
sjómanna.
„Ég er þakklátur fyrir þann
hlýhug sem Slysavarnafélagið
sýnir með þessu," sagði Ámi Jo-
hnsen í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins af þessu tilefni.
„Ég lít fyrst og fremst á þetta
sem viðurkenningu á frumkvæði
og baráttu margra manna í Eyjum
fyrir þessum málum. Ég er aðeins
einn úr þeirra hópi,“ sagði Ámi.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Haraldur Henrysson, forseti SVFÍ, afhendir Arna Johnsen gullmerki félagsins fyrir störf að örygg-
is- og fræðslumálum sjómanna.
Skólaslit Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum:
Flest öll verðlaun komu í hlut
Birgis Þórs Guðmundssonar
Vestmannaeyjum.
SKÓLASLIT Stýrimannaskól-
ans í Vestmannaeyj um fóru
fram i Básum 16. maí. Skólaslit-
in nú tengdust komu skips
Slysavarnafélags Islands, Sæ-
bjargar, til Eyja. Meðal gesta
við skólaslitin voru Haraldur
Henrýsson forseti SVFÍ, Þor-
valdur Axelsson skipstjóri á
Sæbjörgu og forstöðumaður
Slysavarnaskóla sjómanna, og
áhöfn Sæbjargar.
I vetur vom 11 nemendur í I.
stigi og 15 á II. stigi. Þá luku 7
nemendur í vetur undanþágunám-
skeiði við skólann. Bestum
árangri á I. stigi náði Stefán
Guðmundsson frá Húsvík með
meðaleinkunnina 9,20. Annar
varð Gylfi Siguijónsson, Vest-
mannaeyjum, með 8,82 og þriðji
Haraldur Sverrisson, Vestmanna-
eyjum, með 8,74.
Á öðru stigi varð hæstur Birgir
Þór Guðmundsson, Garði, með
9,15 í meðaleinkunn. Annar varð
Þórður Bjömsson, Siglufirði, með
8,53 og þriðji Nökkvi Jóhannes-
son, Blönduósi, með 8,13. Fjöl-
margar viðurkenningar em árlega
veittar fyrir góðan námsárangur
og svo vildi til nú að flest öll verð-
launin féllu í skaut eins og sama
nemandans, Birgis Þórs Guð-
mundssonar. Hann hlaut sjónauka
í verðlaun fyrir hæstu einkunn í
siglingafræði, baromet fyrir
hæstu meðaleinkunn á II. stigi,
bókaverðlaun fyrir hæstu einkunn
í íslensku og bestu skólasókn og
loks Verðandi-úrið.
Tveir nemendur, Sigurður G.
Pálsson og Þórður Björnsson,
fengu bókaverðlaun fyrir frábær-
ar íslenskuritgerðir. Þess má geta
að fjórir nemendur náðu þeim frá-
bæra árangri að fá 10 í einkunn
fyrir ritgerð, en það hafði aðeins
einum nemanda tekist fram til
þessa frá stofnun skólans árið
1964.
Skólanum bámst margar góðar
gjafir við skólaslitin frá gömlum
nemendum og öðmm velunnumm
skólans. Nemendur sem útskifuð-
ust nú lögðu fram 25 þús. krónur
sem stofnframlag í sjóð sem þeir
stofnuðu til styrktar ekkjum nem-
enda skólans sem hafa farist.
Skólastjóri Stýrimannaskólans
í Vestmannaeyjum er Friðrik Ás-
mundsson. Auk hans er Sigurgeir
Jónsson fastráðinn kennari við
skólann en 10 stundakennarar
vom við skólann í vetur.
— hkj.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sæbjörgn færðar góðar gjafir
Vestmannaeyjum.
SÆBJÖRG, skip Slysavarnafé-
lags Islands, kom tll Vest-
mannaeyja fyrir fyrri helgi í
sinni fyrstu ferð út á land. Skip-
ið fékk höfðinglegar móttökur
í Eyjum og því voru færðar
margar góðar gjafir sem af-
hentar voru við hátíðlega
athöfn um borð í skipinu á laug-
ardaginn. Sæbjörgin er sem
kunnugt er fljótandi Slysa-
varnaskóli sjómanna og i
vikunni var þriggja daga vel
heppnað námskeið í skólanum
sem fjölmargir sjómenn úr Eyj-
um sóttu.
Það var strax að loknum skóla-
slitum Stýrimannaskólans í
Eyjum sem boðað var til athafnar
um borð í Sæbjörginni þar sem
hún lá við festar við Básaskers-
bryggju. Þar færðu ýmis félög og
fyrirtæki skipinu góðar gjafir sem
þeir Haraldur Henrýsson, forseti
Frá öryggisnámskeiði um
borðí Sæbjörgu í Vest-
mannaeyjum.
SVFÍ, og Þorvaldur Axelsson,
skipstjóri og skólastjóri Slysa-
varnaskóla sjómanna, veittu
viðtöku og þökkuðu.
Ýmis félagasamtök og fyrir-
tæki í Eyjum gáfu peningagjafir,
alls um 625 þús krónur, sem var-
ið verður til tækjakaupa í skipið.
Stærsta framlagið kom frá Slysa-
vamadeildinni Eykyndli, 300 þús.
krónur. Afhent var framlag að
fjárhæð 275 þúsund krónur frá
Bátaábyrgðarfélagi Vestmanna-
eyja, Sjómannadagsráði, Sjó-
mannafélaginu Jötni, Trygginga-
miðstöðinni hf., Utvegsbændafé-
lagi Vestmannaeyja,
Vélstjórafélagi Vestmanneyja og
Vestmannaeyjabæ. Sigurður Ein-
arsson forstjóri afhenti 50 þúsund
króna framlag frá fyrirtæki sínu.
Þá afhentu félagar í Kiwanis-
klúbbnum Helgafelli gjafabréf
fyrir tveimur Sigmunds-gálgum
og frá vélsmiðjunni Þór hf. fyrir
einum Sigmunds-gálga og upp-
setningu sleppibúnaðarins á
skipinu. Ýmsar fleiri góðar gjafir
voru færðar skipinu við þetta
tækifæri.
Eftir helgina hófst síðan
þriggja daga námskeið fyrir sjó-
menn í slysavarnaskólanum þar
sem var bæði bóklegt og verklegt
nám í slysavarna- og björgunar-
málum. Sjómenn sem sóttu
námskeiðið og fréttaritari ræddi
við rómuðu mjög þessi námskeið,
framkvæmd þeirra og allan að-
búnað um borð í Sæbjörgu.
— hkj.