Morgunblaðið - 26.05.1987, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
yngmennaskipti milli
Islands og Færeyja
Selfossi. - . .— - - .
VIÐ skólaslit Gagnfræðaskólans
á Selfossi föstudaginn 22. maí
afhenti Haraldur B. Arngríms-
son forseti Rotaryklúbbs Selfoss
þremur nemendum fría ferð til
Færeyja, sem viðurkenningu frá
klúbbnum og skólanum, fyrir
störf að félagsmálum innan skól-
ans.
Rotaryklúbbar Selfoss, Breið-
holts, Seltjarnamess og Rangár-
yallasýslu gangast fyrir
~ ungmennaskiptum milli Færeyja og
íslands í samvinnu við Rotary-
klúbba í Færeyjum. Þessum
ungmennaskiptum er þannig hagað
að 28. júní koma til íslands 12
færeysk ungmenni og dvelja í hálf-
an mánuð. íslendingarnir fara til
Færeyja 23. júlí og koma aftur 6.
ágúst.
Við skólaslitin í Gagnfræðaskól-
anum kom fram að 280 nemendur
stunduðu nám í skólanum, þar af
102 í 9. bekk. Breytingar verða á
kennaraliði skólans, meðal annars
sú breyting að skólastjórinn Óli Þ.
Guðbjartsson fær leyfi frá störfum
þar sem hann var kjörinn alþingis-
^naður í Alþingiskosningunum 25.
apríl.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Óli Þ. Guðbjartsson skólastjóri, Ragna Gunnarsdóttir sem fékk viður-
kenningu furir störf að leiklistarmálum, Ólafur Bjarnason umsjónar-
kennari stúlknanna, Guðfinna Tryggvadóttir sem fékk viðurkenn-
ingu furir störf að iþróttamálum og var líka kjörin íþróttamaður
skólans og Haraldur B. Arngrímsson forseti Rotaryklúbbs Selfoss.
Á myndina vantar Guðjón Ólafsson formann skólafélagsins sem fékk
viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum
Óli Þ. Guðbjartsson ávarpar nemendur 9. bekkjar og slítur skóla-
starfi vetrarins.
AUGLÝSING
TIL NÁMSMANNA
Bráöabirgðaákvæði um námsmenn tóku giidi 14. apríl 1987. Ákvæðin
varða lög um Húsnæðisstofnun ríkisins.
Samkvæmt þessum ákvæðum mun Húsnæðisstofnunin fara eftir
neðangreindum reglum við meðferð lánsumsókna frá námsmönnum.
D Námsvottorð gilda til jafns við iðg'aldavottorð frá lífeyrissjóðum
þegar sótt er um lán, hafi námið verið stundað fyrir 1.
september 1986. Eftir 1. september gilda einungis iðgjaldavottorð
frá lífeyrissjóðum.
0 Vegna umsókna, sem lagðar voru inn á tímabilinu 1. september
1986 til 13. aprfl 1987, þurfa námsvottorð (um nám fyrir 1.9. '86)
og/eða lífeyrissjóðsvottorð að spanna 24 sl. mánuði áður en
umsóknin var lögð inn.
h Um umsóknir sem lagðar voru inn 14. apríl og sfðar, gildir, að
námsvottorð (um nám fyrir 1.9. '86) og iðgjaldavottorð frá lífeyrissjóði
verða að gilda fyrir 20 af 24 næstliðnum mánuðum, áður en
umsóknin er lögð inn.
Námsvottorð gildir pvf aðeins að umsækjandinn stundi eða hafi
stundað lánshæft nám, samkvæmt skilgreiningu Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Leggja verður fram vottorð um námstfmann frá
.. hlutaðeigandi skóla. Þeir, sem þegar hafa lagt inn umsóknir, verða að
senda Húsnæðisstofnun rfkisins þessi skólavottorð fyrir l.júnf 1987.
^Húsnæðisstofnun ríkisins
LAUGAVEÖI 77 101 REVKJAVIK S: 28500
Sófinn „01é“ sem var í sýningarglugga Illums Bolighus á Strikinu.
Kaupmannahöf n:
Dansk-íslensk-
ur sófi í Illum
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
NÝLEGA lauk húsgagnasýningu
á Bella Center, þar sem m.a.
voru 3 íslenzkir sýningarbásar.
Meðan á sýningunni stóð og
nokkru lengur var dansk-íslensk-
ur sófi til sýnis í eftirsóttasta
sýningarglugga Danmerkur, þ.e.
hjá Illums Bolighus á Strikinu.
Sófinn ber nafnið „01é“-sófinn,
dregið af nafni hönnuða hans
Ole Kortzau og Ole Gormsen, en
hönnunin og áklæðið er danski
þátturinn við framleiðslu hans.
íslenzka hlutann má rekja til
Eyjólfs Pálssonar í Epal, sem átti
frumkvæðið að gerð sófans. Epal
hefur um 10 ára skeið haft umboð
fyrir íjölbreytta muni Ole Kortzau,
sem er mjög þekktur arkitekt og
hönnuður hér í Danmörku. Kortzau
var staddur í Reykjavík í sambandi
við kynningarsýningu sína í Nor-
ræna húsinu fýrir ári síðan. Varð
þá að samkomulagi með þeim Eyj-
ólfi að ráðast í samvinnu um gerð
sófans og hafði arkitektinn þá þeg-
ar skissu með, þótt ekki hefði hann
hannað sófa fyrr.
Samvinnan varð enn norrænni,
en Finnar framleiða aðra gerð sófa
frá Kortzau, sem eru stærri, en
dansk-íslenski sófinn er tveggja
sæta og með blómstrandi bómullar-
og ullaráklæði frá hinu þekkta vefn-
aðarfyrirtæki Kvadrat í Ebeltoft.
En um 10 mismunandi munstur að
ræða. Fætur sófans eru óvenjuleg-
ir, lakkaðir tréfætur og sófinn hinn
hentugasti og vel unninn, segja
hönnuðir hans og hrósa þessari
dansk-íslenzku samvinnu. Epal er
framleiðandinn, en sófinn er búinn
til á fleiri en einu verkstæði. Má
nefna í leiðinni, að Kvadrat-tekstil-
eme fengu húsgagnaverðlaunin
1987, en áklæði frá þeim er hannað
af þekktum listamönnum og hefur
verið notað á húsgögn frá 68 hús-
gagnaframleiðendum.
Ole Kortzau er á fimmtugsaldri,
útskrifaðist arkitekt frá Listaaka-
demíunni í Kaupmannahöfn 1966
og hefur á löngu tímabili verið
kennari þar. Frá 1973 hefur hann
haft eigin stofu í hjarta borgarinnar
og 1982 fékk hann arkitektaverð-
laun ársins. Hann hefur tekið þátt
í Qölda sýninga, m.a. á Statens
Museum for Kunst og Louisiana og
er afar fjölhæfur listamaður og
hönnuður.
Heima á íslandi eru margir mun-
ir hans þekktir, t.d. gluggatjöldin,
sem hanga geysivíða fyrir gluggum
opinberra bygginga, framleidd af
Kvadrat. Þá munu margir þekkja
póstkortin og plakötin stílhreinu,
leikföng, fatnað, postulín frá
Kongelig Porcelainsfabrik, silfur-
muni frá Georg Jensen, gull frá
A. Michelsen, umbúðir, dyr og
skápa. Listamaðurinn hélt sýningu
í dag
Laugaveg i
Hverf isgötu 37 Víkurbraut 13
Reykjavík Keflavík
Símar: 21490, Sími2121
21846
Thermor
rafmagnsvatnshitarar
frá 10-450 lítra.
10 ára ábyrgð.
W
Löng og
góð
reynsla
hérlendis.
Hverfisgötu 37 Vikurbraut 13
Reykjavík Keflavik
Simar: 21490, Simi2121
21846