Morgunblaðið - 26.05.1987, Page 83
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
83
Stjórnarmenn Skáksambands íslands og fjölskylda Hannesar Hlífars
tóku á móti honum við komuna til landsins á sunnudag. Hér fagnar
amma Hannesar, Hlíf Bjarnadóttir, honum en móðir hans, Sesselja
Friðriksdóttir, fylgist með.
Verðlaunahafarnir á pallinum. Hannes Hlífar er í miðið en vinstra
meginn við hann er Adams frá Englandi, sem varð í 2. sæti, og
hægra megin er Wely frá Hollandi sem náði 3. sæti. Fyrir framan
standa Campomanes forseti FIDE og Jungwirth forseti austurríska
skáksambandsins.
Það var of snemmt fyrir Hannes
á laugardag að spá fyrir um hvað
tekur við hjá honum. Hann kveið
mest fyrir „fjölmiðlavitleysunni"
sem beið hans heima. Hann er ekki
búinn að fá sér sumarvinnu og er
ákveðinn í að ráða sig ekki í garð-
vinnu hjá Ríkisspítölunum eins og
í fyrra. „Mér hundleiddist að vinna
í einhveiju beði,“ sagði hann og
hristi höfuðið yfir þeirri tímasóun.
Hann hefur áhuga á að taka þátt
í heimsmeistaramóti unglinga undir
19 ára aldri á Filippseyjum í sumar
en var ekki viss um hvort hann
gæti það kostnaðarins vegna. „Það
er mjög dýrt að taka þátt í mótum
svona langt í burtu," sagði hann.
En Guðmundur var bjartsýnn og
átti von á að einhveijir fengjust til
að styrkja Hannes Hlífar til ferðar-
innar. „Ætli skákáhugamenn heima
væru ekki tilbúnir að senda hann á
mót til tunglsins eftir þessa frammi-
stöðu,“ sagði Guðmundur hlæjandi,
og þeir Hannes fóru að fá sér stór-
an ís í tilefni af sigrinum.
Bg4! Svartur er ekki af baki dott-
inn. Staða hvíta kóngsins virðist
ótrygg. 28. Heal — Bxg3, 29.
hxg3 — Bf3, 30. Dh4! Hannesi
þótti ekki fýsilegt að leika 30. De4
vegna 30. — e4 ásamt 31. — Hh6.
30. - Bxd5, 31. Hxd5 - Df7?
Svartur uggir ekki að sér.
32. Ha7! Hannes lætur ekki svona
tækifæri úr greipum sér ganga,
þótt hann sé í tímahraki. 32. —
Dg6, 33. Hxh7+ - Dxh7, 34.
Dxf6+ - Kg8, 35. Kxg2 - Hf8?
Tapar strax. Reynandi var 35. —
De4+, 36. Df3 - Dxf3+, 37. Kxf3
- Hxb3, 38. Hxd6 - Hxc3+. 36.
Dg5+ - Kf7, 37. Hxd6 - De4+,
38. Kfl. Svartur gafst upp. Hvítur
sleppur úr skákunum eftir 38. —
Dbl+, 39. Ke2 - Dc2+ 40. Hd2 -
De4+, 41. De3. Hannes Hlífar Stef-
ánsson var orðinn heimsmeistari.
Deilur um upprekstur á Austurafrétt Mývetninga: > -
Hætta á að vorbeitin
valdi alvarlegu sandfoki*
- segir Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri
LANDGRÆÐSLA ríkisins gerði um helgina athugasemdir við upp-
rekstur tveggja Reykjahlíðarbænda á svokallaðan Austurafrétt.
Vitnar Landgræðslan í samkomulag og ákvarðanir á almennum
bændafundi síðastliðið haust þar sem ákveðið var að fé yrði ekki
rekið á afrétt fyrr en í fyrsta lagi 1. júní, en þó ekki fyrr en að
lokinni gróðurskoðunarferð Landgræðslunnar og gróðurverndar-
nefndar sýslunnar. Bændurnir fluttu lambfé á Austurafrétt fyrir
helgina. Landgræðslan kærði uppreksturinn til sýslumannsins á
Húsavík, en féll síðar frá kærunni, „í trausti þess að ekki verði
fleiri kindur fluttar á afréttinn," að sögn Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra.
Sveinn Runólfsson lýsti sjónarmið-
um Landgræðslunnar í þessu máli
á eftirfarandi hátt: „Landgræðslan
hefur undanfarin ár haft áhyggjur
af gróðurfari á afréttarsvæðum
Skútustaðahrepps. Þetta er afskap-
lega sendið land og mikið sandfok,
sérstaklega í þurrkatíð, eins og ver-
ið hefur í vor. Á þessum slóðum,
svokölluðum Austurafrétti, hefur
Landgræðslan girt 5 stór land-
græðslusvæði á undanförnum 20
árum og friðað og þannig forðað
frá því að fara í algera sandeyði-
mörk. Fyrir tíu árum vöruðum við
alvarlega við vorbeit þarna, en það
hefur tíðkast að bændur hafi flutt
fé á afrétt upp úr 20. maí, mánuði
fyrr en víðast annars staðar á
landinu. Almennt er ekki farið að
huga að upprekstri fyrr en um miðj-
an júní og á Suðurlandi í júlí.
Á almennum bændafundi í Mý-
vatnssveit, sem Landgræðslan og
hreppsnefnd Skútustaðahrepps
efndu til síðastliðið haust, var sam-
þykkt að bændur myndu ekki reka
fé fyrr en í fyrsta lagi eftir 1. júní
og þá aðeins að lokinni gróðurskoð-
unarferð Landgræðslunnar og
gróðurverndarnefndar S-Þingeyjar-
sýslu. Tilkynningu um þessa
ákvörðun var dreift á alla bæi í
Mývatnssveit.
í lok síðustu viku gerðist það
hinsvegar að tveir bændur úr
Reykjahlíð fluttu lambfé á Austur-
afrétt. Þarna hefur verið ákaflega
þurrviðrasamt í vor og mikið sand-
fok. Því erum við sérstaklega
hræddir um afleiðingar upprekst-
ursins.
Það hefur komið fram í fjölmiðl-
um að viðkomandi telja sig eiga
þetta land og því komi það Land-
græðslunni og sveitarstjóminni lítið
við. Það er ljóst að samkvæmt lög-
um um Landgræðsluna ber okkur
að hafa gát á meðferð gróðurs hvar
sem er á landinu og án tillits til
hvort um er að ræða heimalönd eða
önnur eignarlönd eða afrétti. Enda
er það svo að þegar uppblástur
hefst á eignarlöndum er kallað á
Landgræðsluna og nauðsynlegar
aðgerðir kostaðar af almannafé.
Það urðu okkur mikil vonbrigði
að samkomulag um upprekstur á
þessu svæði skyldi brotið. Land
þetta er í tæplega 400 m hæð yfú^
sjávarmáli og þama er enginn gró^^*
ur kominn af stað nema íslenska
melgresið. Það þolið illa beit, sérs-
taklega fer vorbeit illa með það. í
augum almennings er þetta svæði
til að sjá eins og eyðimörk með
stöku melgresishólum. Frá gróður-
farslegu sjónarmiði er út í hött að
flytja fé á þessi sandsvæði svona
snemma á vorin. Vorbeitin gerir það
að verkum að melgresið myndar
síður eða ekki fræ og fær því ekki
tækifæri til að endumýja sig og í
þurrkatíð verður afleiðingin alvar-
legt sandfok.
Landgræðslan kærði upprekstur-
inn símleiðis til sýslumanns og
lögreglu. En í trausti þess að ektei.
verði rekið meira fé á afréttinn
höfum við ákveðið að falla frá kær-
unni og ætlum ekki að sækja málið
frekar. Við trúum því og treystum
að bændur muni standa við ákvarð-
anir og samkomulag um upprekstur
sauðfjár á þessu svæði frá síðast-
liðnu hausti," sagði Sveinn.
Morgunblaðið/PPJ
Áhöfn nýju Piper Navajo-flugvélarinnar, TF-VEL, við komuna til Reykjavíkur, Valur Andersen til^»»-
hægri og Hörður Hafsteinsson.
Ný flugvél til Vestmannaeyja
NÝ tveggja hreyfla farþega-
flugvél bættist við í flugflota
landsmanna sl. laugardag, en
þá lenti á Reykjavíkurflugvelli
Piper PA-31C/R Navajo TF-
VEL sem Valur Andersen
flugmaður í Vestmannaeyjum
festi kaup á nýlega vestur í
Bandarikjunum.
Valur sótti nýju flugvélina vest-
ur til Chicago ásamt Herði Haf-
steinssyni flugmanni og flugu þeir
vélinni heim um Kanada og Græn-
land, en heildarflugtíminn hingað
var um sextán og hálf klukku-
stund.
Nýja Navajo-vélin verður gerð
út frá Vestmannaeyjum en þaðan
hefur Valur stundað leigu- og
sjúkraflug um þriggja ára skeið
með einshreyfilsflugvél, TF-SVO,
sem er af gerðinni Socata TB.10
Tobago. Það er talið mikið öryggis-
atriði að hafa tveggja hreyfla
sjúkraflugvél staðsetta í Vest-
mannaeyjum.
Stjórnunarfélag íslands:
Námstefna um milliríkjaviðskipti
NAMSTEFNA um milliríkjavið-
skipti verður haldin á Hótel Sögu
í dag á vegum Stjórnunarfélags
Islands og verður fyrirlesari
hinn kunni Stephen D. Cohen,
prófessor við School of Intern-
ational Service, við American
University í Washington. Nám-
stefnan hefst kl. 12.15 og henni
lýkur kl. 16.
Að sögn Láru Margrétar Ragn-
arsdóttur, framkvæmdastjóra
Stjómunarfélagsins verður megin-
efni námstefnunnar, sem er ætluð
öllum þeim sem tengjast eða hafa
áhuga á milliríkjaviðskiptum, hver
staða íslands sé í ljósi núverandi
milliríkjaviðskipta, tolla, skatta og
tengsla íslands við EFTÁ og EBE.
Lára Margrét sagði að rætt yrði
hvaða kröfur þyrfti að gwera til
íslands til þess að hagstæðari við-
skiptakjörum yrði náð. Auk þess
yrði rætt hveijar horfur væru í þró-
un utanríkisviðskipta og tvíhliða
samninga á milli Islands og Banda-
ríkjanna. Hún kvaðst telja þetta
efni vera mjög spennandi í dag fyr-
ir okkur íslendinga í ljósi þeirrar
auknu umræðu sem færi nú fram
í Bandaríkjunum um varnaraðgerð-
ir gegn innflutningi. „Slíkar aðgerð-
ir gætu snert fiskútflutning okkar
og útflutning á ullarvörum,“ sagði
Lára Margrét.
Hver sá slysið?
LÖGREGLAN óskar eftir að
hafa tal af vitnum að slysi á
mótum Skúlagötu og Rauðag^
árstígs hinn 8. maí síðastliðinn. *“
Sendibifreið var ekið á mann á
reiðhjóli á gatnamótunum um há-
degið þennan dag, sem var föstu-
dagur. Þeir sem kynnu að hafa séð
atburðinn eru beðnir um að hafa
samband við slysarannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.