Morgunblaðið - 20.06.1987, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20..JÚNÍ 1987
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
LOGM JOH ÞORÐARSON HDL
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Skammt frá Fossvogsskóla
Glæsil. raðhús á tveimur hæðum. Um 180 fm nettó auk bílsk. Eld-
hús, stofur m.m. á efri haeð, 4 svefnherb. m.m. á neðri hæð. Snyrting
á báðum hæðum. Sólsvalir á efri hæð, verönd á neðri hæð. Ræktuð
lóð. Hagkvæm grkjör.
Á útsýnisstað við Funafold
Stórt og glæsil. raðhús í smíðum á „einni og hálfri hæð" með tvöf.
bílsk. rétt við Gullinbrú i Grafarvogi í fremstu röð. Allur frág. fylgir
utanhúss. Byggjandi Húni sf. Grkjör við hæfi kaupanda.
Á rúmgóðri eignarlóð
Endurn. einbhús i gamla Austurb. um 60 fm að grunnfl. með 4ra-5
herb. íb. á hæð og rishæð. Snyrting á báöum hæðum. Rúmg. kj. fylg-
ir. Laust strax.
Með frábærum greiðslukjörum
3ja og 4ra herb. stórar og glæsilegar íbúðir í smíðum við Jöklafold.
Byggjandi Húni sf. Frágengnar undir tréverk. Sameign fullgerð. Vin-
samlegast kynnið ykkur teikningar, upplýsingar um frágang og óvenju
hagstæð grkjör.
í Vesturborginni eða nágr.
óskast til kaups rúmg. húseign eða séreignarhluti. Skipti mögul. á
5 herb. úrvalsíb. í Vesturb. Fjöldi fjársterkra kaupanda að fbúðum,
sérhæðum, einbýlis- og raðhúsum. Margir með óvenju góðar greiðsl-
ur strax við kaupsamning. Vinsamlegast leitið nénari upplýsinga.
Opið í dag, laugardag,
frákl. 11.00-16.00.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
„Erfiðara að fá
keyptan fisk“
- sagði Júlíus Rafnsson framkvæmda-
stjóri RA Pétursson hf. í Njarðvík.
Ytri-Njarðvík.
„ÚTFLUTNINGUR á gámafiski
hefur haft umtalsverð áhrif á
reksturinn hjá okkur,“ sagði Júlí-
us Rafnsson, framkvæmdasyóri
hjá frystihúsinu RA Pétursson
hf. i Njarðvík. „Fyrirtækið á
enga báta og við verðum að
kaupa allt hráefni sem hér er
unnið. Útflutningur á fiski i gám-
um hefur orsakað að nú er
erfiðara að fá keyptan fisk, verð
á honum er hærra en áður hefur
þekkst og í kjölfarið fylgir að
erfiðara er að halda uppi fastri
atvinnu.
Júlíus sagði að sjómenn fengju
hærri skiptaprósentu fyrir afla sem
væri seldur erlendis og þeir kysu
því frekar að selja aflann þar en
hér heima. Hann hefði til að mynda
boðið tvöfalt Landssambandsverð í
9 tonn af ýsu sem átti að fara í
gám. „Útgerðarmaðurinn var tilbú-
inn að selja, en sjómennirnir á
viðkomandi veiðiskipi vildu heldur
að aflinn yrði seldur erlendis. Út-
koman varð sú að eftir söluna úti
var skilaverðið 4 krónum lægra til
útgerðarinnar en það verð sem ég
bauð fyrir fiskinn. Sjómennirnir
fengu hins vegar meira fyrir sinn
snúð og þeir eru einfaldlega ekki
tilbúnir til að selja aflann hér heima
á meðan skiptaprósentan er ekki
leiðrétt.
Vandamálið við þetta fyrirkomu-
lag er margvíslegt, ekki er hægt
að reikna út afkomu frystihúsanna
og stjómvöld vita ekki hið raun-
verulega fiskverð. Með tilkomu
fiskmarkaða verða óháðir aðilar
sem skrá verðið og tel ég þá vera
þróun í rétta átt.“ Júlíus sagði enn-
fremur að hann teldi að útflutning-
Vorum að fá aukasendingu
af hinum sívinsæla
Ford Fiesta
Verð frá kr.338.000.”
Opið virka daga kl. 9-18
laugardaga kl. 10-17
I II. AFGREIÐSLU STRAX
Framtíð
VIDSKEIFUNA
FORD UMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON HF. S: 685100 - 689633
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Júlíus Rafnsson framkvæmda-
stjóri RA Pétursson hf. í
Njarðvík.
ur á fiski í gámum ætti aðeins rétt
á sér þegar ekki hefðist undan að
vinna aflann og ef til vill á einstaka
fisktegund. — BB
Morgunblaðið/Bjðm Blðndal
Guðfinnur Sigurvinsson forseti
bæjarsljórnar Keflavikur.
„ÚtflutningTir
í gámum hef-
ur ekki haft
veruleg áhrif
í Keflavík“
- sagði Guðfinnur
Signrvinsson forseti
bæjarstjórnar
Keflavlk.
„FISKÚTFLUTNINGUR í gám-
um hefur ekki haft áberandi
áhrif á atvinnulifið í Keflavík,
því við höfum það lítinn kvóta
að hann leyfir ekki þennan út-
flutning,“ sagði Guðfinnur
Sigurvinsson, forseti bæjar-
stjómar Keflavíkur, í samtali við
Morgunblaðið. Guðfinnur sagði
að flest fiskverkunarfyrirtæki í
Keflavík ættu báta eða togara
sem öfluðu hráefnis og oftast
hefðu þau getað unnið aflann
sem á land hefði borist.
Hann teldi eðlilegt að nýta sér
þessa tækni til að selja afla erlend-
is sem ekki væri hægt að vinna hér
á landi. Þessum útflutningi fylgdi
töluverð áhætta eins og komið hefði
í ljós í Vestur-Þýskalandi fyrir
páska þegar verð á gámafiski hefði
dottið niður.
„Mín skoðun er að einstaklingar
eigi að njóta sín í þessari atvinnu-
grein við að selja þessa vöru á sem
bestu verði erlendis. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna hefur haft of
mikið með þennan útflutning að
gera og mér sýnist það sé af hinu
góða að fyrirtæki eða einstaklingar
reyni að fá sem best verð fyrir fisk-
inn erlendis. Að flytja flskinn út
ferskan með flugi er álitlegur kost-
ur sem áreiðanlega á framtíð fyrir
sér,“ sagði Guðfínnur ennfremur.
- BB