Morgunblaðið - 20.06.1987, Qupperneq 17
V8GI ÍKUl .OS HUOAaaAOUAJ .aíaAJaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 198F
Týr heimsótti
nágrannalöndin
Endurgalt komur breskra herskipa
hingað til lands
VARÐSKIPIÐ Týr er fyrir
skömmu komið til landsins eftir
að hafa heimsótt Danmörku,
Skotland og Færeyjar. Land-
helgisgæslunni var boðið til
Danmerkur í tilefni 400 ára af-
mælis Fiskveiðieftirlits Dana og
þaðan var haldið til Leith í Skot-
landi til að endurgjalda komu
breskra herskipa hingað til
lands. Þetta er í fyrsta sinn sem
íslenskt varðskip gerir svona
víðreist. Skipherra á Tý var Sig-
urður Árnason og með í förinni
voru forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, Gunnar Bergsteinsson og
kona hans Brynja Þórarinsdóttir.
Týr lagði af stað til Danmerkur
31. maí og kom til Kaupmanna-
hafnar fímmtudaginn 4. júní.
Sigurður Ámason, skipherra, sagði
að ástæða þess að íslendingum
hefði verið boðið að taka þátt í
þessari afmælishátíð væri sú að
árið 1587, þegar Danir sendu flota
danskra herskipa til fískveiðieftir-
lits, hefðu þau meðal annars farið
á íslandsmið, auk eftirlits við Noreg
og Færeyjar.
„Þetta var ákaflega gagnleg og
fróðleg ferð í alla staði; þama vom
varðskip og fískveiðieftirlitsskip frá
bæði Færeyjum og Skotlandi, og
það var bæði mjög skemmtilegt og
gagnlegt að fá þar tækifæri í fyrsta
sinn til að fyrirhitta menn sem
maður hefur margoft þurft að hafa
samband við og talað við í gegnum
síma. Auk þess sem heimsóknimar
til þessara þjóða hafa gildi að því
leyti að margt má af þeim læra,“
sagði Sigurður Ámason.
„Þá fengum við höfðinglegar
móttökur hjá þessum nágrönnum
okkar. í Kaupmannahöfn heilsaði
Margrét Danadrottning upp á yfír-
menn þeirra erlendu skipa sem
þama voru vegna afmælisins og
ræddi stuttlega við þá, en þama
vom gestir frá Færeyjum á eftirlits-
skipinu Tjaldrið, og yfírmenn
skoska fískveiðieftirlitsskipsins
Orkney vom þama einnig. Einnig
vom mótttökur fyrir yfírmenn í öll-
um skipunum, þannig að gott
tækifæri gafst til að kynnast þeim
og sjá tækjakost skipanna.
Sfðan var haldið úr höfn þann
8. júní og siglt til Skotlands og
komum við þangað að morgni 10.
júní. Við höfðum þar 36 klukku-
stunda viðdvöl og héldum fund þar
sem Gunnar Bergsteinsson, for-
stjóri, útskýrði verkefni Landhelgis-
gæslunnar.
Það er okkur alveg ómetanlegt
að kynnast þeim mönnum á per-
sónulegan hátt sem hafa með þessi
málefni að gera hjá nágrannaþjóð-
um okkar. Samskipti við þær hafa
aukist svo vemlega á sviði björgun-
ar og leitarmála, auk þess sem við
getum margt af þeim lært. Ég undr-
aðist mjög umfang þeirrar starf-
semi á sviði fískveiðieftirlits sem
Skotamir hafa með höndum, þetta
er gríðarlega stór floti sem þeir
þurfa að fylgjast með, en þeir hafa
yfír að ráða nýrri skipum og nýrri
tækjabúnaði en til dæmis við hér
heima. Ég gat þó ekki annað séð
en að við stæðum þeim fyllilega á
sporði hvað varðaði margvíslegan
útbúnað," sagði Sigurður.
Tý var síðan siglt til Færeyja og
var komið þangað 13. júní. „Þar
hittum við einnig yfírmenn fær-
eyska fískveiðieftirlitsins, og var
það sannarlega ánægjulegt að hitta
þessa nágranna í suðaustri, sem við
höfum haft mikil samskipti við,
enda tóku þeir okkur ákaflega vel,“
sagði Sígurður.
Týr kom svo til hafnar í
Reykajvík 16. júní eftir að hafa
farið sína fyrstu ferð af þessu tagi.
Fiskveiðieftirlitsskip gestkomandi þjóða f röð við bryggju i Kaupmanna-
höfn. Fremst má sjá norskt skip, þá færeyska skipið Tjaldrið og loks Tý.
Sigurður Árnason, skipherra, ásamt þeim hjónum Jónasi Jónassyni,
útvarpsmanni, og konu hans Sigrúnu Sigurðardóttur.
O
2ö#í
o
fctúniur og 4 önnur góö tilboö
Petúnian (Tóbakshorntójermpg^ns^su^^^
ssssasfisr aSæ“
birgöir endast. VerðkrTjgr
Útipottar úr leir
Ve ggpottar,
hengipottar o.ft.
30-50% atsláttur
Verö:
59S;- 387,-
498;- 299,-
238,-
30% afsláttur
Verð:
4J6r- 291,-
33er- 235,-
Svalakassar
30% afsláttur
Verö:
100cmJ389T- 272,-
80 cm 3047- 213,-
60 cm l74’"
í 3 stærðum meö
30% kynningarafslætti.
Fagleg þekking - fagleg þjónusta.
365T