Morgunblaðið - 20.06.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987
23
Greinarhöfundur, Sigurður Bjarnason á góðri stund.
Skrá yfir um 7 0
mannúðarsamtök
Á SJÖUNDA tiíg líknar og mannúðarsamtaka starfa
hérlendis samkvæmt nýútkominni handbók bókaútg-
áfunnar Grundar sem ber heitið „Hver hjálpar
hverjum ?“.
Samtök þessi eiga flest aðset-
ur á höfuðborgarsvæðinu og
spanna vítt svið, svo sem stuðn-
ing við aldraða, vangefna,
fatlaða, heymarskerta, blinda og
sjónskerta, aðstoð vegna áfeng-
isvandamála og kvennaahthvarf.
í bókinni eru einnig talin upp
lándssamtök á borð við Krabba-
meinsfélagið, Slysavamarfélag-
ið og Kvenfélagasambandið.
Heiti og heimilisfangi hvers fé-
lags fylgir stutt skilgreining og
lýsing á starfseminni.
Þetta er þriðja útgáfa handa-
bókarinnar. Pétur Þorsteinsson
tók hana saman. í formála lýsir
Gísli Sigurbjömsson þeirri von
sinni að skýrslan sé nú ýtarlegri
en áður og vonar hann að at-
hugasemdum verði komið á
framfæri við Ellihjálpina reynist
einhveijar upplýsingar skorta í
bókinni.
ýmissa innlendra milliliða hefur
hjálpast að við að hækka veiðileyfin
óhóflega. Hér er því varla hægt að
tala um almenningsíþrótt gagn-
stætt því sem gildir um silungsveiði.
Nú á tímum, þegar allskyns ávana-
og fíkniefni eru boði föl viðkvæmum
sálum bama og unglinga, er fátt
skynsamlegra en að leiða þau á
fund veiðigyðjunnar.
Stangveiðifélögin, mörg hver,
bjóða upp á námskeið í fluguhnýt-
ingum og fluguköstum yfir vetur-
inn. Ekki eru margar stundir jafnt
ungum sem öldnum veiðimanni
merkilegri þeirri er hann hefur
dregið sinn fyrsta lax eða silung á
land á flugu, hnýttri af honum sjálf-
um.
Hinn félagslegi þáttur veiði-
mennskunnar er ekki svo lítill. Þeim
tómstundum er vel varið, sem menn
eyða við ár og vötn í fylgd fjöl-
skyldu og annarra góðra vina.
Þangað flýja menn gjaman til þess
að hvfla sig frá amstri og erli hins
daglega líf og safna kröftum til
þess að takast á við vandamálin,
sem framundan eru. Hver man ekki
eftir svari leikarans góðkunna,
Áma Tryggvasonar, í Stikluþætti
Ómars Ragnarssonar forðum {
skaktúr úti á miðjum Eyjafirði.
Ómar spurði hvers vegna hann
færi ekki til Mallorca til hvfldar og
hressingar. Ámi benti til Hríseyjar
og sagði að þama væri sín Mallorca
og hingað kæmi hann til þess að
sækja sér Hrísorku.
Að deila veiðigleðinni með félög-
um er ómetanlegt og stór hluti
veiðimennskunnar. í veiðitúrum
hafa menn oft tengst vináttubönd-
um, sem enst hafa ævilangt, öllum
til heilla. Oft og tíðum er veiðiferð-
in sjálf ekki allt, heldur tilhlökkun-
in, sem allir sannir veiðimenn finna
áður en á veiðar er haldið, undirbún-
ingur ferðarinnar og síðast en ekki
síst eftirmáli. Á löngum vetrar-
kvöldum er gaman í góðra vina
hópi að riíja upp og hlusta á frá-
sögn af vel heppnaðri veiðiferð.
Ekki er lakara að geta kryddað frá-
sögnina með myndum, sem teknar
hafa verið í ferðinni.
Hinn 21. júní næstkomandi er
Veiðidagur íjölskyldunnar. Nokkur
undanfarin ár hefur það verið fast-
ur liður í starfsemi margra stang-
veiðifélaga að bjóða fólki að veiða
í ýmsum vötnum nálægt þéttbýlis-
stöðum þennan dag. Á þessum
stöðum er öllum, ungum sem göml-
um, velkomið að koma og spreyta
sig með flugu, maðk eða spón.
Þennan dag verða vanir stangveiði-
menn til taks og leiðbeina fólki, sem
þangað leitar með veiðiðtæki sín.
Við hvetjum fólk til að mæta og
kynna sér hvemig standa skal að
veiðunum.
Munið að veiðibakterían er
hættulaus baktería og gegn henni
hefur ekkert bóluefni fundist. Hollir
lífshættir eru undirstaða góðs lífs
og heilsu. Sannur veiðimaður er
náttúruunnandi, sem skilur aðeins
eftir sig sporin sín, virðir bónda vel
og lokar hliðinu á eftir sér.
VW JETTA er talandi dœmi
um vönduö vinnubrögö.
VW JETTA er traustur og
endingargóöur bíll.
VW JETTA er meö íram-
hjóladrií og íer meistaralega
á íslenskum malarvegum.
Verö frá kr. 549.000
Höfundur er tannlœknir.
PRtSMA