Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 19897
23
,ÞingvalIabóndinn,“ oiía
Mannshöfuð
Mannshöfuð
tíma að uppgötva að meðal þeirra
starfaði risi í myndlist. Þó má
ekki gleyma þvi að til voru menn
á íslandi á þeim tíma sem skynj-
uðu sinn vitjun artíma hvað varðar
Kjarval. Ég verð að segja að ég
sakna þess að ekki skuli finnast
svona stórhuga einstaklingar í
öllu velmegunarróti okkar tíma.
í dag finnast ekki íslendingar
á borð við Ragnar í Smára, Mark-
ús ívarsson, Ragnar Ásgeirsson,
Guðbrand Magnússon og fleiri.
Því miður hefur gildismat nútíma
íslendingsins ruglast, þó svo allir
séu að kaupa sér afruglara. Efna-
leg stundarfyrirbæri, sem afreka
ekkert annað en að gera fólk að
vinnuþrælum og óöruggt, er sú
mynd sem blasir við.
Metnaðarleysi ljósvakaíjölmiðl-
anna, og það nútímafrelsi sem
hefur átt sér stað, virðist ganga
þvert á stuðning og ræktun
íslenskrar menningar. Ef fram fer
sem horfír er ég ansi hræddur um
að ekki verði mjög langur tími
þangað til yngri kynslóðin á ís-
Ungur maður,
landi veit ekki hvað maður er að
tala um þegár maður nefnir nafn-
ið Kjarval, eða nöfn annarra af
okkar andans jöfrum.
Mér finnst ég ekki geta skilið
svo við þetta tal, að ég skori ekki
á forsvarsmenn þessara íjölmiðla
um að þeir þekki sinn vitjunartíma
á sama hátt og þeir heiðursmenn
sem ég nefndi hér áðan, vegna
þess að framtíðin er framundan
og ég efast um að þeir vilji láta
minnast sín sem mannanna sem
eyddu íslenskri menningu.
Margan hefur undrað hvers-
vegna Kjarval er ekki þekktari
erlendis en raun ber vitni. í sam-
bandi við það verður að geta þess
að hann sjálfur hafði ekki slfkan
metnað fyrir sjálfs sín hönd.
Reyndar sagði hann sjálfur, þegar
hann var beðinn að tala um frægð-
ina, að það væri alveg undir
hælinn lagt hvort listamönnum
áskotnaðist slík frægð og ef þeir
væru verðir hennar kæmi hún
hvort eð er, fyrr eða síðar.
Reynar þurfti Kjarval á öllu
sínu að halda stóran hluta ævi
sinnar þar sem hann var land-
námsmaður og frumherji í
íslenskri myndlist. Þó efa ég ekki
að þessi landlæga minnimáttar-
kennd íslendinga fyrir öllu því sem
útlenskt er, fyrir nöfnum á
skemmtistöðum, fatnaði og skó-
taui, þetta verður allt að heita
erlendum nöfnum svo að landinn
taki við því, er enn í fullu gildi.
Það virðist vera betra fyrir
íslenska myndlistarmenn að starfa
erlendis og sýna hér heima á 2—3
ára fresti og láta orðstý sinn ber-
ast, hvort sem hann er sannur eða
loginn. Allavega tekur maður eft-
ir því að það sem frá útlandinu
kemur fær hér meiri eftirtekt
þeirra sem um fjalla en þeir sem
hafa eytt starfsævi sinni hér, eða
þeir sem hafa þreytt þorrann hér.
Menn skulu ekki gleyma því
að Kjarval var orðinn fímmtugur
þegar árangur hans erfiðis fór að
skila sér í viðtökum hér á iandi.
Flest af því sem gert var til þess
að búa honum betri aðstöðu kom
oftast alltof seint. Hann var kom-
inn langt á áttræðisaldur þegar
hlaupið var til og byggt yfir hann
hús á Seltjamamesi. Honum
fannst það örugglega koma of
seint, enda verulega farið að halla
á starfsævina og hann kom þar
bara einu sinni. Mér hefur verið
sagt hann hafí beðið vin sinn einn
góðan fyrir lyklana. Og það fór
með það hús eins og oft þegar
kemur að listum að það var tekið
til annarra nota.
Ef ég horfi frá sjónarhóli mynd-
listamanns, þá eiga íslenskir
myndlistarmenn Kjarval geysi-
mikið að þakka. Löngun hans var
aldrei að byggð væm nein sérstök
„monument" fyrir hann persÖnu-
lega, heldur var áhugi hans ávallt
fyrir því að byggt væri listasafn
ríkisins, svo og þessi sýningarað-
staða hér á Kjarvalsstöðum, sem
við myndlistarmenn, allir, njótum.
Ef menn vilja fræðast meira um
þetta ættu þeir að lesa ævisögu
hans sem Indiriði G Þorsteinsson
skrifaði og kom út í sambandi við
100 ára fæðingarafmæli Kjarvals
árið 1985.
Þó svo að Kjarval hefði ekki
áhuga á sérsafni, eða sérstöku
minnismerki um sjálfan sig, annan
heldur en sín stórkostlegu lista-
verk, finnst mér vel við hæfi að
borgaryfirvöld skuli nú hafa
ákveðið að reist verði sérstakt
Kjarvalssafn, þar sem verður að-
staða til rannsókna á verkum hans
og þar sem sýningar á verkum
hans geta verið’ óslitið árið um
kring til gleði fyrir komandi kyn-
slóðir."
Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir