Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 44
44 veset um. .et íHJOAauiívtua ,cuga.ihhuohom MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 19897 atvirma — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Keflavík Blaðburðarfólk óskast. Upplýsingar í síma 13463. Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki í sumarafleysing- ar í stuttan tíma víðs vegar í Reykjavík og sérstaklega í eldri hverfum Kópavogs. Sjáið nánar auglýsingu annars staðar í blaðinu. Tilvalin morgunganga fyrir eldra fólk ! Upplýsingar í símum 35408 og 83033. Hellissandur Umboðsmaður óskast. Upplýsingar hjá umboðsmanni, sími 93-6764 eða afgreiðslu Morgunblaðsins, sími 83033. pIórjpmMMMfo Sendill — filmur Óskum að ráða röskan og sporléttan sendil til starfa á filmusafn auglýsingadeildar. Æskilegur aldur 18-25 ára. Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir mánudaginn 20. júlí merktar: „M — 200“. Verzlunarskóli íslands Ofanleiti 1 Tölvuháskóli VI Skólanefnd Verzlunarskóla íslands óskar að ráða: 1. Kennslustjóra til að skipuleggja og hafa umsjón með uppbyggingu náms í Tölvu- háskólanum. 2. Tölvufræðing sem skal skipuleggja tækni- lega uppbyggingu skólans og annast tækjakost hans og hugbúnaðargerð. 3. Kennara til að kenna eftirtaldar náms- greinar: Grunnnámskeið. Forritun (3 mál). Kerfishönnun. Fjarvinnslu. Stýrikerfi. Gagnasafnsfræði. Öryggismál. Skjölun. Vinnuvistfræði. Stjórnun. Kennsla skal skipulögð í samvinnu við vænt- anlegan kennslustjóra. Öllum stöðum við skólann fylgir kennslu- skylda. Æskilegt er að kennarar hafi starfs- reynslu frá tölvudeildum stórra fyrirtækja. Laun og kjör verða skv. nánara samkomu- lagi við skólanefnd Verzlunarskóla íslands. Umsóknir skulu sendar Þorvarði Elíassyni, skólastjóra, eigi síðar en 15. ágúst nk. Verzlunarskóli íslands. Tölvuháskóli VÍ Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands mun taka til starfa 1. janúar nk. Innritun nemenda hefst í haust og er fyrirhugað að taka þá inn 56 nemendur. Síðar verður þeim fjölgað upp í 160 a.m.k. Kennt verður í húsakynnum Verzlunarskóla íslands, Ofanleiti 1, kl. 14.00-20.00. Námið skiptist í 3 annir sem ná yfir 1 V2 vetur. Stefnt er að viðbótarnámi síðar, sem leiði til B.S. prófs í tölvufræðum. Markmið skólans er: Að nemendur geti að loknu námi skipulagt og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og séð um kennslu og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur. Kenndar verða eftirtaldar námsgreinar: Grunnnámskeið: Með þessu námskeiði.fá nemendur ítarlega þekkingu á undirstöðuatriðum tölvufræðinnar, eins og til dæmis talnakerfinu, rökrásum og aðferðum sem beitt er við lausn vandamála. Forritun: Kennd verða þrjú forritunarmál. Markmiðið er að gera nemendur hæfa til að leysa verk- efni með hjálp tölvu, en góð kunnátta í forritun er undirstaða þess. Kerfishönnun: Markmiðið er að gera nemendur hæfa til að leysa á skipulegan hátt hin ýmsu verkefni með aðstoð margvíslegra hjálpartækja, s.s. flæðirita o.fl. Lögð verður áhersla á að kenna þessi fræði alveg frá grunni, þ.e. frá því að greina núverandi kerfi til þess að hanna nýtt. Fjarvinnsla: Tölvusamskipti milli fjarlægra staða færast sífellt í vöxt. Kennt verður hvernig gögn eru flutt gegnum símakerfi og helstu hugtök í því sambandi. Einnig verður fjallað um nær- net og notkun þeirra og tengingu tölvutækja almennt. Stýrikerfi: Markmiðið er að kenna nemendum notkun og hönnun stýrikerfa, sem sjá t.d. um að raða notendum á fjölnotendavélar, stýra samskiptum og fleira. Góð þekking á stýri- kerfum er forsenda þess að geta nýtt vélbúnað á hagkvæman hátt. Gagnasafnskerfi: Kennd verða helstu hugtök í gagnasafns- fræði, hönnun og notkun þeirra ásamt uppbyggingu. Oryggismál: Markmiðið er að kynna nemendum mikil- vægi öryggis í tölvuvinnslu. Gögn eru dýrmæt, og mikilvægt að þeirra sé vel gætt. Bæði er um að ræða öryggi vélbúnaðar, s.s. eldvarnir og þjófavarnir, og eins hugbúnaðar með öryggisafritun, aðgangstakmörkun, skipulagi í kerfishönnun og forritun. Skjölun: Með þessari grein er ætlunin að gera nem- endur hæfa til að skrifa leiðbeiningar og handbækur um notkun tölvukerfa. Einnig verður þeim kennt að leiðbeina notendum, sem oft hafa litla sem enga þekkingu á tölv- um og þurfa því að fá hjálp á máli sem þeir skilja. Vinnuvistfræði: Markmiðið er að kenna nemendum að hanna kerfi með það fyrir augum að ná fram há- marks afköstum notenda og vinnugæðum ásamt þægindum í notkun. Verkefni 1: Raunhæft verkefni sem nemendur leysa með hjálp þeirra verkfæra sem þeir hafa lært að beita. Verkefni 2: Sama og verkefni 1, nema hvað það verður jafnframt lokaverkefni og mun stærra í snið- um en verkefni 1. Stjórnun: Kennd verður uppbygging fyrirtækja, hugtök stjórnunar, vinnudreifing, skipulagning og fleira. Verslunarskóli Islands. Siglufjörður Vantar blaðburðarfólk í afleysingar. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 71489 Sölumaður vítamín Fyrirtækið framleiðir og selur vítamín o.fl. Starfið felst í kynningu og sölu á vítamínum um allt land. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi áhuga á verkun vítamína og hollefna og/eða undirstöðumenntun í lífrænni efnafræði. Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00. Alleysmga- og radningaþjonusta Liósauki hf. Skólavörduslig la - 101 Reykjavik - Simi 621355 Starf afgreiðslugjaldkera Starf afgreiðslugjaldkera á bæjarskrifstofu Akraness er hér með auglýst laust til um- sóknar. Um er að ræða 50% starf þar sem unnin er vika í senn frá fimmtudegi til mið- vikudags. Starfið felst m.a. í móttöku greiðslna í bæjarsjóð, innheimtu og greiðslu smærri reikninga og uppgjöri. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 93-11211. Umsóknarfrestur er til 14. ágúst nk. og skulu umsóknir sendast Bæjarskrifstofu Akraness, Kirkjubraut 28. Bæjarritarinn á Akranesi. Setjari Þekkt fyrirtæki í prentiðnaði vill ráða setjara til starfa fljótlega. Viðkomandi þarf að vera vanur pappírsumbroti. Góð laun í boði. Vaktavinna. Umsóknir, er tilgreini aldur og fyrri störf, sendist skrifstofu okkar. ClJÐNT TÓNSSON RADCJÖF &RAÐNINCARÞJONUSTA TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322 Fóstrur, kennarar og annað upp- eldismenntafólk Okkur vantar fóstru, kennara eða fólk með aðra uppeldismenntun á skóladagheimilið á Kirkjuvegi 7. Okkur vantar forstöðumann á leikskólann/ dagheimilið Ásheima og forstöðumann á leikskólann Glaðheima. Fóstrumenntun áskilin. Fóstrur á öllum deildum. Nánari upplýsingar á félagsmálastofnun Selfoss, Eyravegi 8, sími 99-1408. Dagvistarfulltrúi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.