Morgunblaðið - 22.07.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987
23
Borgarspítalinn:
Þriðji hver Reykvík-
ingur kom á slysa-
deildina á síðasta ári
ÁRIÐ 1986 komu 42.770 manns
á slysadeild Borgarspítalans
vegna slysa eða bráðra veikinda
eða að meðaltali 117 manns á
dag. Níu af hverjum tíu sem
koma á slysadeildina koma frá
Reykjavík, þ.a. það lætur nærri
að þriðjungur Reykvíkinga hafí
heimsótt slysadeildina á síðasta
ári. Þetta kemur fram í öðru
tölublaði Heilbrigðismála í við-
tali við Dr. Gunnar Þór Jónsson
prófessor og yfirlækni slysa-
deildar.
Það kemur fram í viðtalinu að
95% fleiri sjúklingar komu á slysa-
deildina 1985 en árið 1970 á sama
tíma og íbúum Reykjavíkur fjölgaði
um 20%. Að mati dr. Gunnars eru
aðallega þtjár orsakir fyrir þessu.
í fyrsta lagi sú, að deildin sinni
sífellt fleiri sjúkum, sem hafi ekki
aðgang að annarri heilbrigðisþjón-
ustu. „Vaktþjónusta lækna á
höfuðborgarsvæðinu hafi verið
ófullnægjandi og þess var vænst
að álagið á slysadeildina minnkaði
við þær breytingar sem voru gerðar
á vaktþjónustunni fyrir áramótin,
en því miður hefur sú ekki orðið
raunin." í öðru lagi getur dr. Gunn-
ar þess að algengara sé núorðið að
fólk komi á deildina vegna minni-
háttar meiðsla, meðal annars til
þess að fá vottorð vegna skóla eða
vinnu. Þriðja orsökin er að mati
yflrlæknisins fjölgun slysa.
Aðspurður um hvaða slysum hafi
íjölgað mest sagði dr. Gunnar að
af tölum mætti ráða þá
athyglisverðu niðurstöðu að orsökin
„högg af hlut“ væri tvöfalt algeng-
ari en fyrir áratug, en hugsanlegt
væri að skráningin væri orðin betri.
Fjórum sinnum..........323
Fimm sinnum eða oftar..170
Einnig gat hann þess að íþróttaslys-
um hefði fjölgað mjög í kjölfar
aukinnar íþróttaiðkunar, svo og
hefði aukinn frítími fólks á síðustu
árum átt sinn þátt í þessari fjölgun. KcflftVlkl
Um árangur fræðslu og fyrir-
byggjandi aðgerða sagði dr. Gunnar
að dregið hefði úr sumum tegund-
um slysa vegna þessa. Eitrunarslys-
um hefði fækkað um helming og
umferðarslys hefðu staðið í stað
þrátt fyrir mikla aukningu bíla.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Atvikið við Útvegsbankann vakti mikla athygli í Kefíavik í gær.
Vörubifreið ók á Útvegsbankann
Hvar verða slysin?
Úti (ekki við vinnu).10.998
Heimahús..............7.578
Ýmsir vinnustaðir.....3.712
Skólar................1.793
Verksmiðjur...........1.408
Skemmtistaðir.........1.184
Byggingar (í smíðum)....751
Á sjó...................365
Hvernig verða
slysin?
Fall oghras..........11.521
Högg af hlut..........8.563
íþróttaiðkun..........2.954
Ölvun.................2.288
Umferðarslys..........1.682
Áverki frá öðrum......1.360
Bruni, hiti og kuldi....766
Vélar...................671
Bit.....................301
Hestar..................235
Eitur...................209
Hve oft slasast
sama fólkið?
Einu sinni...........27.662
Tvisvar...............4.870
Þrisvar...............1.039
Heyskaparhorfur:
Þurrkur hefiir víða
dregið úr sprettu
VEL HEFUR viðrað til heyskap-
ar Eyjafírði og búast menn við
góðum heyfeng þar. Einnig lítur
út fyrir góðan heyfeng víða á
Suðurlandi, en sums staðar hafa
tún eyðilagst vegna þurrka. Á
Austurlandi hefur heyskapartíð
verið erfið og þar eru menn ný-
byijaðir að slá.
Heyskapur er víða langt kominn
á Suðurlandi. Þó hefur heyskapar-
tíð verið erfið á sumum stöðum, til
dæmis í Skaftafellssýslum. Fyrst í
stað spratt lítið vegna þurrka, en
þegar menn ætluðu að byija að slá
fór að rigna. Að sögn Einars Þor-
steinssonar ráðunautar í Sólheima-
hjáleigu í Mýrdal er talsvert mikið
af túnum, á söndum og aurum,
ónýt á Rangárvöllum, undir Eyja-
Qöllum og í Vestur-Skaftafells-
sýslu.
Sveinn Sigmundsson hjá Búnað-
arsambandi Suðurlands sagði í
samtali við Morgunblaðið að nokkr-
ir bændur hefðu byijað að slá í
kringum 20. júní. Flestir hófu slátt
í byrjun júlí, en einnig væru dæmi
þess að menn væru komnir skammt
á veg í heyskap. Þeir sem byijuðu
snemma að slá hefðu náð inn mjög
góðum heýjum og almennt virtist
heyfengur all góður.
Heyskapur gengur glatt þessa
Keflavík.
VÖRUBIFREIÐ með aftanívagni
var ekið á Útvegsbankann í
Kefíavík í gær. Ökumaðurinn er
talinn hafa fengið aðsvif og fór
vörubíllinn stjórnlaus þvert yfir
Hafnargötu, sem er aðalbraut,
yfir umferðamerki og hafinaðai
að lokum uppi á gangstétt og á
gluggalausum vegg bankans.
Vörubíllinn straukst við litla
fólksbifreið, sem ekið var eftir
Hafnargötu, og var mesta mildi að
enginn vegfarandi var á þessari
leið. Atvikið átti sér stað um tvö
leytið og sagði ökumaður litlu fólks-
bifreiðarinnar að engu hefði mátt
skeika að vörubíllinn hefði ekið á
sig.
Starfsfólki bankans brá óneitan-
lega í brún og sagði að því hefði
helst dottið í hug að sprenging hefði
orðið í bankanum þegar bflinn skall
á veggnum. Ökumaður vörubifreið-
arinnar var fluttur í sjúkrahús í
Keflavík. Bifreiðin skemmdist tals-
vert að framan, en var ökufær.
B.B.
dagana í Eyjafirði að sögn Guð-
mundar Steindórssonar hjá Búnað-
arsambandi Eyjafjarðar, enda
glaðasólskin og þurrkur. Dæmi voru
um að heyskapur hæfist um miðjan
júní í Eyjafirði, en allur gangur
hefur verið á því. Nokkrir bændur
sjá fram á að slá aftur, en að und-
anförnu hefur verið góð sprettutíð.
„Ég held að margir bændur hafi
náð inn ágætis heyjum, bæði að
magni til oggæðum," sagði Guðmd-
undur. „Líklega verður heyfengur
meiri nú en í fyrra, en þá voru hey
mjög góð. Ástandið er því heldur
gott, en dálítið misjafnt eftir svæð-
um. Út með firðinum bar sums
staðar á kalskemmdum í túnum og
um tíma dró nokkuð úr sprettu
vegna þurrka,“ sagði hann.
Á Austurlandi er sáralítið byijað
að slá að sögn Jóns Snæbjömssonar
hjá Búnaðarsambandi Austurlands.
Eins og í Skaftafellssýslum dró
þurrkur úr sprettu, en er bændur
hugðust byija að slá fór að rigna.
Fyrir rúmri viku kom svo þurrkur
og hófst þá sláttur á mörgum bæj-
um, en í síðustu viku fór aftur að
rigna. Síðustu daga hefur verið
ágætt heyskaparveður.
„Ég tel heyskaparhorfur ekkert
afleitar, ef tíðin verður góð,“ sagði
Jón. „Tíminn verður að leiða það í
ljós“.
Nýja mjúka heimilistækjalínan er komin
Blomberg kynna fyrstir heimmstækja-
framleiðenda glæsilegu mjúku línuna
Blomberg býður stærra og
glæsilegra úrval í innbygging-
artækjum en nokkur annar.
Verið velkomin, við höfum
tímafyrirþig.
Mercedes Benz og BMW riðu
á vaðið, svo komu húsgagna-
framleiðendurnir.
Nú kynna Blomberg fyrstir
heimilistækjaframleiðenda
þessa gullfallegu línu.
BA2334 glerhelluborö
með rofum. Auðvelt í
þrifum.
mmm
UE614gufugleypir.
Kraftmikill en lágvær.
KE2520 kæliskápur
til innbyggingar með eða
án frystihólfs. —-
Blomberg
BO2230 Ofn
með blæstri, grilli og yfir-
og undirhita.
Þetta er örlítið sýnishorn
af tækjum.
Líttu ifið, það borgarsig
„r Farestveit & Co.hf.
orgartúni28, símar 91 -16995, 91-622900.
ílheja ivij gÍH 'ugsa 6fici .nnrgov -ejihiflo go iuöiövisJív is Jaitni