Morgunblaðið - 22.07.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987
25
Reuter
Umferðarslysin eira engum
Gilbert Mitterrand, sonur Francois Mitterrand Frakklandsforseta, og dætur hans tvær, Pasc-
ale, níu ára, og Justine, sex ára, slösuðust í gær í hörðum árekstri í Gerona á Spáni. Okumaður
hins bílsins lést samstundis en svo virðist sem þau feðginin hafi ekki meiðst jafh alvarlega og
í fyrstu var talið. Var gert að meiðslum þeirra á nálægu sjúkrahúsi og þótti líklegt, að þau
yrðu strax fiutt til Frakklands. Eins og sjá má á bílnum, sem Gilbert ók, Peugeot 205, hefur
áreksturinn verið mjög harður.
Holland:
Skaðlegar auka-
verkanir svefti-
lyfsins Halcion?
Amsterdam. Reuter.
HOLLENSKUR dómstóll hefúr komist að þeirri niðurstöðu að
skipa beri nefiid þriggja sérfræðinga til þess að rannsaka rétt-
mæti fúllyrðinga um að svefiiiyfið, Halcion, geti haft alvarlegar
aukaverkanir.
Áfrýjunarréttur í bænum Am-
hem, komst að þeirri niðurstöðu
að margt benti til þess að eins
milligramma töflur af lyfinu
Halcion, sem bandaríska fyrirtæk-
ið Upjohn framleiðir, sé slæm og
hættulega vara. Lyfjafyrirtækið
og þeir sem reka málið gegn því
munu koma sér saman um hvaða
sérfræðingar sitja í nefndinni.
Lögfræðingur þeirra er höfðuðu
mál á hendur fyrirtækinu, Egbert
Dommering, segir að skjólstæð-
ingar sínir hafí þjáðst af langvar-
andi minnistapi, kvíðaköstum og
þeir hafí átt erfitt með að einbeita
sér eftir að hafa neytt lyfsins á
árunum 1978 og 1979. Höfðu
þeir allir fengið það samkvæmt
lyfseðli frá heimilislækni. Yfirvöld
í Hollandi bönnuðu sölu á Halcion
árið 1979 eftir að fjöldi kvartana
hafði borist um aukaverkanir er
lyfíð hafði.
Framkvæmdastjóri Upjohnfyr-
irtækisins í Hollandi, Jef Vanden-
bossche, sagði við Reuter-frétta-
stofuna í gær að of fljótt væri að
segja nokkuð um málið á þessu
stigi. Halcion væri selt um allan
heim, hætt væri að selja eins
milligramma töflur í lyfjaverslun-
um og dómstólar í Hollandi hefðu
áður hafnað svipuðum skaðabó-
takröfum og nú hefði verið komið
fram með gagnvart fyrirtækinu.
Panama:
Allsherjarverk-
fall í næstu viku
Panamaborg. Reuter.
ANDSTÆÐINGAR ríkisstjórnar
Panama hafa hvatt til þess að
efiit verði til allsherjarverkfalls
í landinu til þess að kreflast af-
sagnar Manuel Antonio Noriega,
hershöfðingja, sem talinn er
raunverulegur stjórnandi Pa-
nama.
Gert er ráð fyrir að verkfallið
standi í a.m.k. 48 klukkustundir og
hefjist næstkomandi mánudag.
Samtök er kalla sig „Herferð borg-
aranna" tilkynntu um verkfallið.
Eru þau bandalag ýmissa afla sem
eru í andstöðu við ríkisstjórnina og
hefur verslunarráð landsins verið
þar fremst í flokki. í tilkynningu
frá samtökunum sagði að allshetj-
arverkfallið væri eina svar almenn-
ings við kúgun þeirri og ofbeldi er
öryggislögregla landsins hefði beitt
til að kveða niður mótmæli við völd-
um Noriega.
Reuter
Fimm milljarðastiþegninn
Á myndinni má sjá nýfætt sveinbarn, Matija Gaspar, í faðmi
hjúkrunarkonu í Zagreb, höfúðborg Króatíu. Það var valið af
sérstakri nefnd Sameinuðu þjóðanna til þess að tákna fimmta
milijarðasta þegn Móður Jarðar, en svo ógnarlegur er inannfjöld-
inn orðinn á yfirborði jarðkúlunnar. Óttast sumir að með þessu
áframhaldi verði hnötturinn ein iðandi kös þvalra mannslík-
ama, en stærðfræðingar hafa mönnum til hugarhægðar reiknað
það út að jarðarbúar kæmust allir fyrir í borginni Hong Kong
einni — raði þeir sér þétt.
MYNDBAND SUMARSINS
NAFN ~
ROSARINNAR
Hver, í guðs nafni, kemst upp með morð?
Dreifing
HÁSKÓLABÍÚ
SIMI 611212
Sjónvarpsvemd 8 mánuðir
HRINGDU
og fáðu áskriftargjöld-
in skuldfærð á________
greiðslukortareikning
SÍMINN ER
691140 691141
|Hi>ir0TOÍíW»ll>