Morgunblaðið - 22.07.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987
Eyfirðingar íhuga úrsögn úr samtökum hestamanna:
Forkastanleg vinnubrögð
LH við val á landsmótsstað
segir Jónas Vigfusson Litla-Dal
________Hestar
Valdimar
Kristinsson
Fyrir skömmu ákvað stjórn
Landsambands hestamannafé-
lajfa að næsta landsmót verði
haldið á Vindheimamelum í
Skagafirði. Hefur þessi ákvörð-
un valdið mikium kurr meðal
hestamanna í Eyjafirði, þar sem
þeir hafa gengið út frá þvi sem
vísu að þeir myndu halda mótið.
Þetta hafa þeir byggt á söguleg-
um fimdi, sem haldinn var í
Varmahlíð 1980, þar sem sam-
þykkt var af fulltrúum fiestra
hestamannafélaga á Norðurlandi
viijayfirlýsing þess efhis að Ey-
firðingar héldu landsmótið 1990
ef þeir sættu sig við að landsmót-
ið 1982 yrði haldið f Skagafirði.
Einn þeirra óánægðu er Jónas
Vigfússon í Litla-Dal, en hann hef-
ur haft mikil afskipti af uppbygg-
ingu á Melgerðismelum, þar sem
Eyfirðingar hugðust halda lands:
mótið, hefðu þeir fengið það. í
samtali við Morgunblaðið nýlega
lýsti Jónas furðu sinni á þessari
ákvörðun stjómar LH með tilliti til
viljayfirlýsingarinnar og vitnaði
hann þar í ummæli Alberts Jó-
hannssonar, fyrrverandi formanns
LH, í „Hestinum okkar", en hann
var einn þeirra sem stóð að þessu
samkomulagi. Þar segir Albert:
„Við fómm norður í Eyjafjörð á
fund með eyfírsku félögunum, við
Sigurður Haraldsson og fleiri.
Þama vom málin rædd af fullri
hreinskilni og síðar var haldinn
fundur með norðlensku hesta-
mannafélögunum í Varmahlíð í
Skagafirði þar sem endanlegt sam-
komulag náðist.
Það var í grófum dráttum gefin
út viljayfirlýsing um það hvemig
mótshaldi í fjórðungnum skyldi
háttað þennan áratug. Og það sem
er að gerast núna er það að menn
virðast ekki hafa tekið það alvar-
lega eða gleymt því.“
Síðastliðinn vetur sendi stjóm
LH út bréf til hestamannafélaga á
Norðurlandi þar sem gerð er könn-
un á því hvar félögin vildu halda
landsmótið 1990 og telur Jónas
fáránlegt að stjómin skuli gera
þetta, þar sem viljayfirlýsingin hafi
legið fyrir. Einnig lýsti hann þeirri
skoðun sinni að Skagfirðingar hafi
ekki getað sótt um landsmótið 1990
öðmvísi en að ganga bak orða sinna
og hann bætir við: „í ársbyijun ’86
gerist það að ráðinn er fram-
kvæmdastjóri til LH og er sá maður
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Vindheimamela. Eftir þetta fara að
heyrast víða sömu rök og nýráðinn
framkvæmdastjóri hélt á lofti varð-
andi landsmótsstaði á þá leið að of
dýrt sé að byggja upp marga staði
og ennfremur að reka þá. Einnig
var því haldið fram að fleiri áhorf-
endur myndu mæta á Vindheima-
mela en Melgerðismela.
í samtali sem ég átti við Svein
Guðmundsson á Sauðárkróki í fyrra
Jónas Vigfusson
lýsti hann þeirri skoðun sinni að
honum þætti eðlilegt að aðeins tveir
landsmótsstaðir yrðu byggðir upp,
einn á Suðurlandi og annar á Norð-
urlandi, og skyldi ársþing LH velja
þessa staði. Var ég því ekki hissa
þegar tillaga um þetta kom fram á
síðasta ársþingi. Hinsvegar kom
það mér á óvart að hún skyldi bor-
in upp af stjóm LH. Það er skemmst
frá því að segja að þessi tillaga
hlaut mikla umfjöllun þingsins og
var felld sem þýddi að stjómin
þurfti að taka ákvörðun um Iands-
mótsstað eins og verið hafði.
Nú voru góð ráð dýr fyrir Skag-
fírðinga ef áfram átti að reyna að
fá mótið í Skagafjörð. Þá var reynd
næsta leið sem var þessi skoðana-
könnun og í framhaldi af henni
afgreiddi stjómin málin með ein-
faldri atkvæðagreiðslu án þess að
nokkurt tillit væri tekið til viljayfir-
lýsingarinnar né að reynt væri að
ná einhveiju samkomulagi í þessu
máli. Við Eyfirðingar teljum þetta
alvarlegt mál þar sem við höfum
alltaf reiknað með að fá að halda
mótið og hagað allri uppbyggingu
staðarins í samræmi við það.
Ég minni á að það var ekki síst
fyrir samstöðu Skagfírðinga og
Eyfirðinga að hætt var við upp-
byggingu Skógarhóla sem lands-
mótsstaðar sem þótti óréttlát og
óhagkvæm stefna. Var það breyting
til góðs í uppbyggingu mótsstaða
að hestamannafélög kepptu sín á
milli um að fá að halda stórmótin.
Virkaði þetta eins og vítamín-
sprauta á_ alla uppbyggingu víða
um land. Ég segi fyrir mig að ef á
að fara að taka upp fyrri stefnu sem
meðal annars Skagfírðingar börð-
ust á móti og ef stjóm LH ætlar
að taka upp þau ómerkilegu vinnu-
brögð að hunsa fundarsamþykktir
sé ég ekki að eftirsóknarvert sé að
vera í þessum samtökum."
— Ertu með þessu að segja að
Eyfirðingar íhugi úrsögn úr LH?
„Í skoðanakönnuninni sem ég
nefndi hér var spurt hvort félögin
myndu taka þátt í mótshaldinu,
sama hvar mótið yrði haldið. Þessu
svaraði Funi, sem ég er félagi f,
neitandi, vegna þess sem á undan
er gengið. Það læðist að manni sá
grunur að samþykktin á Varma-
hlíðarfundinum hafí eingöngu verið
gerð til að tiyggja vinnufrið á lands-
mótinu á Vindheimamelum ’82 og
aldrei verið ætlunin hjá sumum
aðilum sem stóðu að samþykktinni
að fara eftir henni. Má þar til dæm-
is benda á að einn þeirra sem
skrifaði undir yfírlýsinguna, þáver-
andi og núverandi stjómarmaður
LH, Egill Bjamason, Sauðárkróki,
mælti með Vindheimamelum þegar
stjómin fjallaði um val á landsmóts-
stað 1990 nú nýverið.
Varðandi úrsögn úr LH þá er
mikið um það rætt þessa dagana
hér í Eyjafirði og ef þú vilt fá mína
skoðun á því máli þá er ég talsmað-
ur þess að félögin hér hætti í LH
en íþróttamennskan verði efld,
gengið verði í ÍSÍ og hin félögin sem
eftir verða í LH hafi þá sína henti-
semi um starfsaðferðir. Ég hef litið
þannig á málin að eitt meginhlut-
verk LH sé að efla hestamennskuna
í öllu landinu en ekki á útvöldum
stöðum. Ef það er stefnan að
styrkja einstaka staði þá tel ég að
samtökin þjóni ekki tilgangi
sínum," sagði Jónas að lokum.
Að endingu birtist hér samþykkt-
in á Varmahlíðarfundinum “Að
gefnu tilefni vegna afstöðu fulltrúa
eyfírsku félaganna Funa og Léttis
til þátttöku í landsmóti hesta-
mannafélaganna á Vindheimamel-
um árið 1982, samþykkir
fundurinn, sem viljayfirlýsingu, en
ekki ákvarðanatöku, þar sem til
þess skorti fundinn umboð, að eðli-
legt sé að næsta fjórðungsmót á
Norðurlandi verði haldið á Melgerð-
ismelum í Eyjafírði og að næsta
landsmót hestamanna er kemur í
hlut Norðlendinga eftir árið 1982
verði einnig á Melgerðismelum,
verði þá sömu aðstæður um móts-
staði í Norlendingafjórðungi og nú
eru“. I fundargerðinni segir enn-
fremur “Alyktun þessi var örlítið
rædd en síðan samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum". Einnig segir
“Frjálsar umræður urðu nokkrar
er hér var komið og lýstu nokkrir
fundarmanna fögnuði sínum yfir
góðum niðurstöðum fundarins um
einhuga samstarf norðlenskra
hestamanna í framtíðinni"
Samkór Selfoss ásamt stjórnanda sínum.
Selfoss:
Samkórinn með tónleika
í tilefiii Kanadaferðar
Selfossi.
SAMKÓR Selfoss heldur tón-
leika á Hótel Selfossi fimmtu:
daginn 23. júlí klukkan 21. Á
tónleikunum mun kórinn kynna
efhi sem hann mun flytja í ferð
sinni til Kanada.
Með þessum tónleikum vill kór-
inn sýna þakklætisvott fyrir
stuðning sem veittur hefur verið
kómum. Kórfélagar hafa aflað
fjár til Kanadaferðarinnar með
ýmsum hætti, rófnasölu, sölu á
broddi, plötum , fatnaði, kökum,
auglýsingum og fleiru. Þessar
söluherferðir hafa gengið mjög
vel sérstaklega broddsalan. Síðast
seldust upp í Austurstræti óg-
rynni af broddi á 5 mínútum.
Ferð kórsins til Kanada hefst
27. júlf. Þar mun kórinn syngja á
100 ára afmæli Gimlisveitar, en
lengst verður farið til Vancouver
að syngja.
Kórfélagar vonast til að sem
flestir sjái sér fært að koma á
tónleika á Hótel Selfossi til að
hlýða á sönginn og gefa kómum
gott ferðanesti.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Einar Falur
Nýja verslunarhúsnæðið og gamli skúrinn lengst til vinstri.
Seljakaup í
nýtt húsnæði
VERSLUNIN Seljakaup í Breið-
holti hefur opnað í nýju húsnæði,
sem er flórum sinna stærra en
það húsnæði sem búðin hafði
áður en það var í 50 fermetra
skúr sem stendur við hliðina á
nýju búðinni.
Guðmundur Bjamason einn af
eigendum Seljakaupa sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að stærð nýju
verslunarinnar gerði þeim kleift að
bjóða viðskiptavinum upp & betri
og fjölbreyttari þjónustu. Á næst-
unni verður sett upp bakarí og
snyrtistofa í versluninni auk þeirrar
þjónustu sem þar er nú.
Á meðan að verslunin var í skúm-
um gekk hún undir nafninu Litla
hryllingsbúðin og nú hefur sjoppan
í nýju versluninni verið skýrð Litla
hryllingssjoppan.
Eigendur og star&fólk Seljakaupa. Frá vinstri Helga Eiríksdóttir,
Sigríður Gylfadóttir, Sigurður Garðarsson, Kristjana Jónatansdóttir
og Guðmundur Bjamason.