Morgunblaðið - 22.07.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚlí 1987
Saga KA skrifuð fyrir 60 ára afinælið:
Stofiiað af piltum sem sam-
einuðust um kaup á bolta
SÖGU Knattspyrnufélags Akur-
eyrar, KA, er verið að rita um
þessar mundir, en eins og mörg-
um er kunnugt verður félagið
60 ára í janúar á næsta ári og
er ste&it að þvi að gefa söguna
út i bók fyrir afmælishátíðina.
Jón Hjaltason, sagnfræðingur,
hefur unnið að ritun sögunnar frá
því í febrúar og hefur nú lokið við
stóran hluta hennar. Til að forvitn-
ast örlítið um upphafíð að stofnun
félagsins og hvemig gengið hefði
að rita söguna og afla heimilda,
spjallaði blaðamaður stuttlega við
Jón, sem þó mátti varla vera að
því að líta upp úr pappírum og blöð-
um í gamla íþróttahúsinu þar sem
hann hefur hreiðrað um sig.
„ Knattspymufélag Akureyrar
var stofnað í janúar 1928 af ungum
og áhugasömum piltum sem voru
um og innan við tvítugt og höfðu
sameinast um að kaupa sér fót-
bolta, og segja má að félagið hafí
verið stofnað utan um smátt og
síðan orðið stórt," sagði Jón þegar
hann var inntur eftir því hvemig
að stofnun félagsins hefði verið
staðið. „Þeir sem stóðu að stofnun-
inni voru alls 12 og í stað þess að
láta kaup á bolta verða sitt fyrsta
verk, eins og til hafði verið stofn-
að, keyptu þeir sér fundagerðar-
bók, og vildu þannig gera úr þessu
alvörufélag og treysta þann grunn
sem það var stoftiað á. í fyrstu
stjóminni áttu sæti þeir Tómas
Fjórir ætt-
liðir og sex
ömmur
MISAUÐUGIR eru mennirnir af
ömmum. Flestir þykjast nokkuð
lukkulegir með að eiga tvær
ömmur en að eiga sex ömmur
hlýtur að teljast harla gott.
A laugardaginn var Sif Stein-
grímsdóttir skírð hér á Akureyri og
við það tækifæri voru mættar allar
ömmur hennar; fjórar langömmur
og tvær ömmur. Sif litla er hins
vegar ekki jafn auðug af öfum því
hún á aðeins einn slikan á lífí.
A myndinni má því sjá fjóra ætt-
liði samankomna. Móðirin, Sigrún
Sigurðardóttir, heldur á Sif. Henni
á hægri hönd er móðuramman, Edda
Bolladóttir, og á vinstri hönd er föð-
uramman, Inga Jóna Steingríms-
dóttir. Fyrir aftan standa svo
langömmumar fjórar; Friðgerður
Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Péturs-
dóttir, Sveinbjörg Rósantsdóttir og
Hallgerður Jónasdóttir.
Steingrímsson, formaður, Jón Sig-
urgeirsson, ritari, og Helgi Schiöth,
gjaldkeri. Stofnendumir höfðu
flestir verið áður í UMFA þar sem
mun eldri menn réðu ríkjum. Þeir
höfðu verið frekar fastheldnir á
bolta félagsins, og yngri mennimir
áttu því erfítt með að fá þá lánaða
þegar þeim hentaði til leikja. Þeir
bmgðu því á þetta ráð að stofna
félag utan um boltakaupin. Þessi
óánægja hafði víst grafíð lengi um
sig og sögðu ungmennafélagsmenn
um þá þegar búið var að stofna
félagið að þama hefðu þeir klofíð
sig úr UMFA sem ekki treystu sér
til að halda bindindisákvæði ung-
mennafélagsins, sem var auðvitað
haugalygi og rætið andsvar í garð
þeirra sem að stofnun KA stóðu.
En félagið var sem sagt upphaflega
hugsað sem knattspymufélag en
það tók hins vegar strax fyrsta
sumarið þátt í ftjálsum íþróttum
og fljótlega upp úr því var tekið
til við að iðka flest allar íþrótta-
greinar, og í dag em 7 greinar
iðkaðar á vegum félagsins. Meira
að segja var lögð stund á tennis-
íþróttina, sem ekki var svo lítið
afrek í þá daga því það þurfti að
leggja út í dýrar framkvæmdir.
íþróttastarfsemi félagsins tók því
snemma að snúast um aðrar grein-
ar íþrótta en fótboltann einan.
Árið 1929 tóku þeir þátt í sínu
fyrsta íslandsmeistaramóti í knatt-
spymu, en fram að því hafði einugis
eitt lið utan Reykjavíkur sent lið
til keppni, en það vom Vestmann-
eyingar. Eins og nærri má geta var
þetta heilmikið mál, og ekki bætti
úr skák að við komuna til baka var
KA-liðið kallað KA núll, því þeir
höfðu tapað öllum sínum leikjum,
Knattspymulið KA árið 1938.
gegn Val og Víkingi og ekki skorað
eitt einasta mark. Þetta var þó
ekki svona slæmt því þeir höfðu
Jón Hjaltason í vinnuherbergi sínu. Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórason
leikið annan leik við Valsmenn og
lyktaði honum með jafntefli en
síðan dæmdur ógildur vegna roks.
Var hann því látinn fara fram aft-
ur með þeim afleiðingum að hann
tapaðist. Eftir þetta tóku þeir þátt
í Islandsmóti í tvígang, 1932 og
1941, og vegnaði þeim þá betur.
Eftir þetta liðu fjölmörg ár þangað
til knattspymulið frá KA var sent
til að taka þátt í slíku móti því
allt fram til ársins 1975 tóku Akur-
eyringar þátt í íslandsmóti undir
merkjum IBA,“ sagði Jón.
„Öflun heimilda fyrir þetta verk-
efni hefur gengið misvel," sagði Jón
þegar hann var spurður að því
hvemig verkinu hefði miðað áfram.
„KA hefur átt mikið af blöðum og
tímaritum um íþróttir sem hægt
hefur verið að ganga að og hafa
hjálpað mikið. Þá hefur fyirum
formaður félagsins, Halldór Helga-
son, átt ýmislegt um sögu félagsins
í sínum fómm og Kári Ámason
hefur leyft mér aðgang að úr-
klippusafni sínu um knattspymu-
iðkunina hjá félaginu og það hefur
sparað mér gífurlega vinnu því fyr-
ir vikið hef ég ekki þurft að fara
í gegnum öll dagblöð til að leita
heimilda um þennan þátt. Þá hefur
einnig hjálpað mikið að geta leitað
til margra manna sem kunnugir
em sögu félagsins og hafa þeir
tekið mér mjög vel, og verið boðn-
ir og búnir til að hjálpa mér.
Hinu er aftur á móti ekki hægt
að neita að varðandi heimildaöflun
hefur ýmsu verið áfátt. Að minnsta
kosti tvær fundagerðarbækur em
týndar, en þær vom allar týndar
þegar ég hóf starfíð í febrúar. Síðan
þá hafa tvær komið í leitimar. Stóri
höfuðverkur þess sem kemur til
með að skrifa sögu næstu 60 ára
verður sá að líklega verða engar
fundagerðarbækur til því mér sýn-
ist að hætt sé að halda þær. Þetta
hefur komið að örlitlu leyti við
mig, en sem betur fer ekki mjög
mikið. Ég er farinn að sjá fyrir
endann á þessu verki; búinn að
skrifa alla stóm kaflana sem fjalla
um iðkun viðamestu íþróttagrein-
anna, knattspymu, fijálsar íþróttir
og skíði, en eftir er að skrifa sérk-
afla um handknattleikinn, og aðra
kafla um íþróttir sem ekki em leng-
ur stundaðar á vegum félagsins eða
hafa lítið verið stundaðar. Þegar
þeim skrifum lýkur verður mínu
hlutverki að mestu lokið. Ég reikna
með að bókin verði um 200 bls.
að stærð og prýdd fjölda mynda,
en þær geta haft gífurlegt heimil-
dagildi, og KA hefur verið heppið
að því leyti að eiga nokkurs konar
hirðljósmyndara, Eðvarð Sigur-
geirsson, en hann hefur átt stóran
þátt í að varðveita söguna í mynd-
um,“ sagði Jón Hjaltason að lokum.
Brekkugötu 7b,
sími 27755
gð BIKARKEPPNIKSÍ £}
8 liða úrslit
Stórleikur á Akureyrarvelli
ÞOR ----------- IBK
miðvikudaginn 22. júlí kl. 20.00
Nú mæta allir á völlinn.
HERRADEILD
Akureyri
Símij
1cM%,96-27446,
íþróttavörur, Akureyri
ISbúðin
Kaupvangsstræti 3