Morgunblaðið - 23.07.1987, Side 29

Morgunblaðið - 23.07.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987 29 Vegagerð í Kaldaðar- neshreppi boðin út 10 milljónir 1 Selstrandarveg í ár Laugarhóli. VEGAGERÐ ríkisins hefír nú auglýst útboð vegarins um Selströnd í Kaldaðarneshreppi, svokallaðs Drangsnesvegar, en til bygging'ar hans eru áætlaðar um 10 milljónir króna á þessu ári, samkvæmt þingsályktunartillögu frá síðasta þingi. Eru þetta um 1,6 kilómetrar af Selstrandarvegi um miðja vegu milli Bassastaða og Drangsness. Samkvæmt auglýsingu vega- gerðarinnar er þama um að ræða framkvæmdir við Drangsnesveg 1987, en til hans veitti síðasta þing um 10 milljónum á áætlun um vega- gerð á Vestíjörðum. Að vísu er óskað tilboðs, vegalengd sem verður endanlega 1,5 kílómetrar, en er nú 1,6 kílómetrar. Samkvæmt upplýsingum um- dæmisskrifstofu Vegagerðarinnar á ísafirði er þama um að ræða tvo vegakafla. Annar þeirra liggur frá bænum Hellu og út á Reykjanesið. Sá kafli er eins kílómetra langur. Hinn kaflinn liggur milli Hveravíkur og Birgisvíkur á Selströnd og er hann um sex hundruð metra langur. Aftur á móti er vegalengdin milli þessara tveggja kafla, er nú á að leggja, sautján hundmð metrar. Til þess að leggja veginn þama þarf þó fyrst að framkvæma berg- skeringar, eins og það heitir á vegagerðarmáli á fímm þúsund rúmmetmm og síðan að fylla fímmtíu þúsund rúmmetra. Burðar- lagið er svo reiknað fímm þúsund og þrjú hundmð rúmmetrar. Að vísu á þessu verki ekki að ljúka í heild fyrr en 1. ágúst 1988, en þó segir á útboðsauglýsingu að Morgunblaðið/SHÞ Ferðalangar á rústum sundlaugarinnar í Hveravik. Bærinn Hveravik i baksýn. hluta þess skuli lokið fyrir 15. nóv- ember 1987. Mikill jarðhiti er í Hveravík og var þar eitt sinn sundlaug. Em enn ummerki á staðnum frá þeim tíma, en heita vatnið rennur nú beint í sjó fram. Þama er einnig Hverá og Reykjadalur, en viða er jarðhiti á þessu svæði, m.a. í landareign Hafnarhólms. Hveravík hét áður Reykjarvík og dalurinn Reykjarvíkurdalur, en einnig er til býlið Reykjavík í Bjam- arfírði í sama hreppi. Við sjó em þama Hverakleifar og klettabrún ein mikil er nefnist Hverabrún. Sundlaugin þama var byggð í kringum 1920, en býlið Hveravík er frá upphafí fjórða tugs aldarinn- ar. SHÞ Góð veiði hefur verið í Norðurá að undanfömu, sérstaklega eftir að tók að rigna öðm hvom í lands- hlutanum. Láta mun nærri að hátt í 700 laxar séu komnir á land. Veiðin hefur verið skrykkj- ótt í ánni í sumar, byijunin lofaði góðu sem algengt er, en svo komu margar magrar vikur með smá- skotum á milli. Síðustu tvær vikumar hefur hins vegar bmgðið til betri vegar, en þó hefur lengst af alls ekki skort lax svo alvarlega geti talist. Frá byijun hefur verið af þó nokkm að taka og miklu er á leið. Laxinn tók hins vegar djöf- ullega og grannt. Meðalþunginn er lágur eins og jafnan í Norðurá, en þó verður að segjast eins og er, að óvenjulega mikið hefur sést og veiðst af stórlaxi. Stærsta lax- inn veiddi Edward Ólafsson, 22,5 punda, á flugu í Stekknum, og þeir Bjami Ámason, kenndur við Brauðbæ, og Mr. Wilson veiddu hvor sinn 20 punda lax, Bjami sinn á maðk í Hræsvelg og Wilson sinn á flugu á Almenningnum. Wilson dró líka 17 punda físk nauðugan upp úr sama veiðistað. Annars bera litlir laxar uppi veið- ina að mestu nú. Sogið misgott Sum svæði í Soginu hafa gefíð vel, bæði mönnum og selum, upp á síðkastið, en önnur svæði em slöpp. Góð er t.d. Alviðra með eina 70 laxa og góðan tíma eftir. Ásgarður hefur einnig gefíð vel, um það bil 50 laxa, en Bfldsfell og Syðri-Brú hafa bmgðist, eink- um síðamefndi staðurinn. Um 20 hafa veiðst í Bfldsfelli, en síðast er fréttist höfðu aðeins 4 laxar veiðst í Syðri-Brú. Heyrst hefur að eitthvert rask hafí orðið á Landaklöppinni í Syðri-Brú sfðastliðinn vetur er miklu vatni var hleypt skyndilega úr raf- magnsveitunni. Ku stórgrýti hafa farið um klöppina og spillt göml- um legustöðum laxins. Hið svokallaða „innra teppi" er að sögn ekki svipur hjá sjón, en það var aðalveiðistaðurinn síðustu sumur. Stærsti lax sumarsins úr Soginu var 30,2 pund, einnig sá stærsti fyrir landið til þessa. Stóra enn líflítil Stóra-Laxá er enn afar léleg, innan við tuttugu fískar hafa veiðst á 3 stangir á tveimur neðstu svæðunum, örfáir fískar á mið- svæðinu, en eitthvað um 30 laxar á efsta svæðinu, öðm hvom meg- in við 50 laxar hafa því veiðst. á 10 stangir síðan 20. júní. Ekki beysin veiði það. Um daginn vom menn á svæði 3 og var dagsveiðin einn bleikja sem greip stóran Tóbí í Heljarþrym. Var spónninn næst- um stærri en bleikjan. Vegna þessa em mörg andrík tilbrigði í gestabókunum þar sem menn láta f'aman álit sitt á málunum í ljós. veiðihúsinu hjá Hlíð er ýmislegt að fínna, svo sem ummæli um að Stóra-Laxá sé „biluð", einnig að „eina lífsmarkið á svæðinu hafí verið maður að vinna á gröfu skammt frá ánni“! Gengxir vel í Laxá í Leir Eftir slaka byijun er farið að ganga piýðilega í Laxá í Leirár- sveit og þar hafa nú veiðst hátt í 500 laxar og mikill lax er bæði að ganga og kominn fyrir nokkm. Lax er löngu kominn upp í vötnin í Svínadal og hefur eitthvað af honum veiðst þar. Sérstaklega hefur veiðin verið góð síðustu Silungsveiði hefur viða verið góð í sumar, á Amarvatnsheiði á köflum, í Laxá á urriðasvæð- unum og einnig í Veiðivötnum, þar sem stórir fískar veiðast innan um. Þennan 4 punda ur- riða veiddi Gunnar Hrafiisson á Amarvatnsheiði fyrir skömmu og notaði fluguna Ald- er nr.14. tvær vikumar. Stærstu laxamir til þessa vógu 18 pund, en menn telja sig hafa séð þá stærri. Er það sama sagan og í fyrra, en þá veiddust þeir aldrei þótt menn hafi gert sér vonir um það. Lögreglan: Lýst eftir ökumanni Slysarannsóknardeild lögregl- unnar í Reykjavík leitar enn ökumanns bifreiðarinnar, sem ók á vegafaranda á Fríkirkjuvegi aðfararnótt sunnudagsiiis siðasta. Talið er að bifreiðin sé af gerð- inni Fiat Uno eða Fiat Panda, hvítur að lit og mun rúða bflsins hafí brotn- að við slysið. Ökumaður er stúlka að því er haldið er. Áð sögn slysadeildar er það mjög mikilvægt að ökumaðurinn gefí sig fram til skýrslugjafar. Hinn slasaði f er iðnaðarmaður, sem verður frá vinnu um nokkum tíma. Hann fær hins vegar ekki bætur nema skýrsla sé gerð um slysið. Miklaholtshreppur: Heyskapur mis- langt kominn Borg í Mikl&holtshreppi. MEÐ KOMU hundadaga breytti hér um veðurfar og hafa síðan verið suðlægar og vestlægar átt- ir með nokkurri úrkomu flesta daga. Vissulega var þörf á að fá rigningu, jörðin var orðin mjög þurr og grasvöxtur, þar sem grunnt er á möl, var í knappara lagi. Heyskapur er hér á mörgum stig- um. Þeir sem bytjuðu snemma em að mestu búnir með fyrri slátt en aðrir sem byijuðu seinna em verr settir og sums staðar er engin tugga komin í hlöðu. Útlit er fyrir góða seinni slægju þar sem snemma var slegið og sumsstaðar borið á á milli slátta. Páll Lánskjaravísi- talan hækk- ar um 1,28% Lánskjaravísitalan fyrir ágúst- mánuð er 1743, samkvæmt tilkynningu frá Seðlabanka ís- lands. Vísitalan hefiir þvi hækkað um 1,28% frá júlimánuði og samsvarar sú hækkun 16,5% hækkun á ársgrundvelli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.