Morgunblaðið - 14.08.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
15
XJöfóar til
II fólks 1 öllum
starfsgreinum!
til hagsmuna fyrir útflutning sinn
til Bandaríkjanna. Frumvarpið gerir
ráð fyrir, að fjármálaráðherra verði
falið að semja við aðrar þjóðir um
að sett verði á stofn sjálfstætt fyrir-
tæki, sem kaupi, með afslætti, ián,
sem þriðjaheims ríki skulda. í þessu
sambandi skal bannað að nota
skattfé bandarískra borgara til
kaupa á þessum skuldum.
Banna skal erlendum fyrirtækj-
um að kaupa bandaríska banka eða
aðrar fjármálastofnanir nema þær
þjóðir, sem sækjast eftir slíkum við-
skiptum, veiti Bandaríkjamönnum
sömu kjör í sínu landi. FVumvarpið
myndi veita forsetanum vald til að
koma í veg fyrir, að erlend fyrir-
tæki kaupi bandarísk fyrirtæki, ef
hætta er talin á, að slík eignaskipti
gætu sett öiyggi þjóðarinnar í
hættu.
Menntun og þjálfun
Frumvarp öldungadeildarinnar
gerir ráð fyrir að veittar verði 980
milljónir dollara til nýrra námskeiða
fyrir verkamenn sem misst hafa
atvinnu sína vegna lokunar verk-
smiðja, eða vegna þess, að tekin
hefur verið upp ný tækni í fram-
leiðslunni, jaftivel þótt ekki verði
sú breyting rakin til aukins inn-
flutnings í sömu atvinnugrein.
Veittar verði 485 milljónir dollara
til námsstyrkja í skólum sem stuðla
að aukinni menntun á sviði stærð-
fræði, vísinda og kennslu á erlend-
um tungumálum.
Ýmislegt fleira
í pokahorninu
Gerðar verði ráðstafanir til að
lögsækja og hegna hveijum sem
gerir tilraun til að múta opinberum
starfsmanni erlendis í þeim til-
gangi, að bandarískt fyrirtæki
hagnist viðskiptalega á slíku fram-
ferði.
Viðskiptafulltrúa ríkisins verði
falið að rannsaka hvort erlendar
þjóðir virði ekki bandarísk einka-
leyfi og gera ráðstafanir til að þau
verði í heiðri höfð.
Krafist verði af atvinnuveitend-
um, sem hafa fleiri en 50 verka-
menn í sinni þjónustu, að þeir
tilkynni yfirvöldum, með 60 daga
fyrirvara, ef þeir hafa í hyggju að
hætta framleiðslu og segja fólki upp
vinnu.
Afnema skal svokallaðan skyndi-
gróðaskatt á innlendri olíu, sem
tefir notið hagnaðar, sem er meiri
n af algengu gangverði.
Miðbæjarskólinn úr norðri frá Lækjartorgi. Ráðhús á þeim stað myndi blasa við frá öllu Lækjargötusvæðinu. UAsmyndir/ómarÞ.Ragnarsson
Ný lausn ráðhúsvandans?
eftirÓmarÞ.
Ragnarsson
„Engin vil ég homkerling vera,“
sagði Hailgerður. Það á komandi
ráðhús Reykjavíkur heldur ekki að
vera, heldur að standa á besta fáan-
lega staðnum i miðbænum. Við
Tjömina, en án þess að skerða
hana. Ef við föllumst á þetta, hver
er þá besti staðurinn? Norðvestur-
hom Tjamarinnar, þar sem á að
hola því núna? Nei, fjandakomið
ekki. Besti staðurinn í miðbænum
er frekar hinum megin við Tjömina
(ekki úti í henni). Þar sem Mið-
bæjarskólinn stendur núna.
Eins og þið getið séð á myndun-
um, sem fylgja þessari grein, blasir
þessi staður við af öllu Tjamar-
svæðinu, meira að segja suður fyrir
Hljómskálagarð, þaðan sem NV-
hom Tjamarinnar sést ekki. Hann
blasir einnig við frá Lækjargötu,
Lækjartorgi, Kalkofnsvegi, neðri
hluta Arnarhóls og Bankastrætis
og frá Stjórnarráðshúsinu.
Þótt Miðbæjarskólinn sé merki-
legt hús, sem ekki má rífa, á ráðhús
betur skilið að vera á þessum frá-
bæra stað, sem sést svo víða að,
vegna þess að lóðin stendur fremst
á víðu homi eða beygju, á mótum
Fríkirkjuvegar og Lækjargötu, en
ekki inni í krók eins og í NV-homi
Tjamarinnar. Miðbæjarskólann má
hins vegar flytja, t.d. vestast í Vest-
urbæinn, þar sem enn em nokkrar
auðar lóðir og hann yrði í félags-
skap eldri húsa. Auð lóð við
Ánanaust gæti hentað honum, einn-
ig autt svæði á Bráðræðisholti, þar
sem nokkur gömul timburhús þrá
félagsskap við fleiri sína líka.
Kostirnir fleiri
en ókostirnir
Kostimir við þá hugmynd sem
hér er varpað fram em helst þess-
ir, miðað við það að reisa ráðhúsið
í NV-homi Tjamarinar:
1. Tjömin er ekki skert með
þessari nýju lausn, heldur mætti
jafnvel stækka hana í þessa átt,
Miðbæjarskólinn úr suðri frá Tjamarbrúnni. Áberandi og skerðir útsýni norður eftir Lækjargötu.
„Þótt Miðbæjarskólinn
sé merkilegt hús, sem
ekki má rífa, á ráðhús
betur skilið að vera á
þessum frábæra stað.“
láta hana liggja undir brú á
Fríkirkjuveginum og jafnvel ná inn
undir sjálft ráðhúsið.
2. Miðbæjarskólinn skerðir nú
útsýni í báðar áttir milli Lækjar-
götusvæðisins og Tjamarsvæðisins.
Lóð skólans er það stór að ráðhúsið
gæti staðið aftar en skólinn gerir
nú og opnað útsýnið og tengt þessi
tvö miðbæjarsvæði.
3. Vegna nálægðar við Fríkirkj-
una gæti ráðhúsið teygt tum eða
tuma (öndvegissúlur) jafn hátt og
kirkjutuminn og gefið arkitektum
meira svigrúm upp á við í sköpun
hússins en í norðvesturhomi Tjam-
arinnar.
4. Ráðhúsið myndi sjást mun
víðar að til allra átta og gæti orð-
ið jafn tilkomumikið og gott tákn
borgarinnar og ráðhús annarra höf-
uðborga, þar sem þau em ekki höfð
í felum.
5. Norðan við ráðhúsið er nú
skrúðgarður og opnun til miðbæjar-
ins, sem yrði stórprýði fyrir
Lækjargötusvæðið, ekki síður en
tengsl ráðhússins við Tjömina. Að-
koma að húsinu yrði glæsileg úr
tveimur áttum í stað einnar, eins
og er í NV-homi Tjamarinnar.
6. Ráðhúsið stæði á góðum
grunni með möguleika á gerð bíla-
geymslu undir Laufásveg.
7. Ráðhúsið stæði eftir sem áður
við Tjömina og byði upp á skemmti-
lega útfærslu Tjamar og húss.
Ókostir þessarar hugmyndar
gætu verið þessir:
1. Hanna þyrfti húsið upp á nýtt.
Það kostar fé.
2. Kostnaður er fólginn í flutn-
ingi Miðbæjarskólans, og einhver
eftirsjá að honum á þessum stað.
3. Óttast má að ráðhús félli verr
inn í umhverfið en Miðbæjarskólinn.
4. Hugmyndin er of róttæk og
byltingarkennd.
Um þessa ókosti er það helst að
segja, að það er nú búið að hanna
ráðhús svo oft, að varla ætti slíkt
að standa í vegi.
Vel skal vanda það sem
lengi á að standa!
Ef menn ætla sér að reisa ráðhús
á besta stað miðbæjarins á annað
borð, hlýtur að vera hægt að hanna
það svo að það falli vel inn í um-
hverfið, ekki síður en í núverandi
skammarkrók, þar sem á að hola
því. Lítið þið bara á myndimar sem
fylgja þessari grein og setjið þið
ykkar óskaráðhús í stað Miðbæjar-
skólans!
Róttækt og byltingarkennt? Það
er matsatriði. Eiffel-tuminn var
byltingarkennd hugmynd, en hér
er aðeins um að ræða þá hugmynd
að hafa forgangsröð á staðsetningu
tveggja húsa, þannig að hvort um
sig sé á stað sem því hæfir.
Hús á góðum stað — úr
skammarkrók í öndvegi
Þegar neftid eru merkilegustu
húsin í gamla miðbænum era
Stjómarráðshúsið, Alþingishúsið,
Dómkirkjan og Menntaskólinn
venjulega nefnd. Bráðum bætist
ráðhús við. Miðbæjarskólinn er aft-
arlega á lista, þótt merkilegt sé.
Farið þið niður í miðbæ og sjáið
hvað hann er frekur á rými og lok-
ar fyrir útsýni til og frá Tjöminni.
Hann stendur á besta staðnum við
Tjömina og jafnvel á besta staðnum
í öllum miðbænum.
Hér er aðeins verið að viðra
þá hugmynd, að ráðhús eigi svo
frábæran stað betur skilið og að
til þess að svo megi verða, þurfi
ekki að farga Miðbæjarskólanum,
heldur megi fínna honum verðug-
ann stað í vesturhluta borgarinnar
og flytja hann þangað.
Reiðhjólaútsalan er
byrjuo í Hjólasporti
Allt fyrsta flokks reiðhjól. 30% afsláttur. Tryggið ykkur gæðahjól á frábæru verði.
Sendum í póstkröfu um allt land. Hjólasport,
Gnoðarvogi 44, sfmi 34580.