Morgunblaðið - 14.08.1987, Page 17

Morgunblaðið - 14.08.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987 17 Einn af mörgum silfurtærum lækjum í hlíðinni. þakka enda sátu elstu sagnfræðing- ar okkar við brunn fræðslunnar í Haukadal og jusu dijúgum af. Gáfur og gjörvileiki er ekki nóg til þess að slíkar ættir rísi, nái völd- um og mannaforráðum og síst á þessum umrædda tíma. Völdin byggðust á þeirri auðlegð sem jörð- in í Haukadal bjó yfir, þótt auðlegð- in væri aukin og margfölduð annars staðar. En gróðurinn í Haukadal var undirstaðan. Nú er hljótt um Haukadal um skeið. Klængur býr þar að áliðinni 13. öld og hefur byggt þar kirkju þegar sonur hans Ormur tekur við búi 1285. Þegar „Staðarmálin“ svokölluðu hefjast settist Klængur í helgan stein í Viðeyjarklaustri og Staða- Ámi Þorláksson biskup gerði kröfu samkvæmt boðskap erkibiskups um að „allir staðir og tíundir skyldu gefast í biskupsvald". Þá upphófust deilur um staðinn (1292—97) sem fóru á þann veg að réttmætir eig- endur afsöluðu sér eign sinni til biskups og þar með hverfur Hauka- dalur úr ætt þeirri sem er kennd við staðinn og myrkur miðalda sígur yfir. því jörðin fer úr eigu Haukdæla og fram til siðaskipta. Jörðin hefur þó sennilega fljótlega komist undir Skálholtsstól og líklegt að hún sé setin af ráðsmönnum þaðan eða leigð biskupum. Eftir daga Ögmundar biskups (hann sat eitt ár í Haukadal áður en hann var tekinn til fanga og fluttur af landi brott) og þegar Giss- ur Einarsson biskup hafði lagt búið í Haukadal undir Skálholt, er oft í gömlum ritum getið um búrekstur stólsins í Haukadal. Til er máldagi Haukadalskirkju frá 1575. Þar segir að Haukadalur sé leigustaður frá Skálholti. Engar upplýsingar eru um gögn og gæði jarðarinnar frá fýrri öldum nema í jarðabók Áma Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1709, en af lýsingunni kemur ýmislegt í ljós sem enga vitneskju væri hægt að fá annars staðar. Þar er þess getið að sandur sé farinn að ganga á löndin að norðan og megi gera ráð fyrir að þær skemmdir haldi áfram. Skógur hef- ur gengið til þurrðar sem er engin furða þar sem áhöfn hefur verið töluvert meiri en landið gat borið. Beit og útigangur hefur og verið notaður til hins ýtrasta. Landkostir rýmuðu mjög síðustu aldimar tvær — beitin var úr hófí fram og mikil áníðsla. Engin furða er þess vegna á því að Haukadalur hverfur úr tölu höfuðbóla. Eftir að jörðin komst undir Skál- holtsstól notaði biskupsstóllinn skóginn óspart. Brytareikningar stólsins sýna að kvaðirnar um mannslán voru oft inntar af hendi með skógarhöggi og hestlán með reiðslu af viði. Og Skálholtsstóll fer ekki að seilast til raftviðarhöggs í fjarlægum héruðum fyrr en nokkuð seint á öldum þegar raftviðir hafa verið gengnir til þurrðar í nágrenn- inu. Því var nú svo komið að eftir 1000 ára byggð var Haukadalur að fara í eyði. Landið var að blása upp — bara berar og blásnar hlíðar þar sem áður voru gróðursæl lönd. En árið 1938 hefst nýr þáttur í sögu Haukadals. Kristian Kirk sem áður er nefnd- ur var verkfræðingur að mennt og starfaði lengst af í Árósum í Dan- mörku. Hann var mikill íslandsvin- ur og vildi koma einhvetju góðu til leiðar hér landi. Vinur hans.Einar Munksgaard forlagsbóksali, sem einnig var mikill íslandsvinur, benti honum á að mikil þörf væri á að gera hér eitthvað í skógræktarmál- um til frama. Árið 1938 var frá því gengið að skógaijörð yrði keypt, girt og friðuð og gefín Skógrækt ríkisins. Haukadalur varð fyrir val- inu og þáverandi skógræktarstjóra, Hákoni Bjamasyni, var falið að sjá um framkvæmdimar. En Kristian Kirk andaðist í febrúar 1940. Eftir að Haukadalur komst í eigu Skógræktar ríkisins var fyrst hafist handa um að girða landið. Það var allt 1600 hektarar að stærð en af þeim voru strax girtir 1350 ha. Tíu til tólf manns unnu allt sumarið og langt fram á haust við að hefta sandfokið. Börð voru stungin niður, hliðar tyrfðar og hrís lagt í rofin. Og gerður var vegarslóði heim að Haukadal frá Geysi. Síðan var strax farið að vinna að því að koma rækt í skóginn. Kirkja var á staðnum en í mik- illi niðumíðslu. Hákon Bjamason segist í greininni áðurnefndu aldrei hafa séð hrörlegra guðshús en hún hafði verið byggð árin 1842—43. Þessi kirkja var nú rifin, steyptur undir hana grunnur og hún byggð að nýju í sömu mynd með örlitlum breytingum og endumýjuð að inn- an. (Fyrsta kirkja í Haukadal var byggð árið 1030). Við eigum Kristian Kirk mikið að þakka. Ef ekki hefði komið til þessi höfðinglega gjöf hans, bendir allt til að allur gróður á þessu svæði hefði gereyðst og ekkert staðið eft- ir nema tilgátur um lífvænlegt umhverfi á fyrri öldum. Og væri okkur Íslendingum til lítils sóma. Næstu ár var hafíst handa um plöntun í landið innan girðingarinn- ar á vegum Skógræktar ríkisins. Fyrsta gróðursetning var árið 1943. Þá vom gróðursettar 1500 norskar skógarfurur (sú stærsta þeirra er nú 5,2 m á hæð og 14,3 sm í þver- mál, segir í bæklingi sem Skógrækt ríkisins lét prenta árið 1980 í til- efni heimsóknar norrænna skóg- ræktarmanna hingað). Þess má geta að skógarfuran eyðilagðist að mestu af lús og er nú hætt við að planta henni frekar. Alls hafði árið 1980 verið plantað um 600.000 plöntum og síðan hefur stöðugt verið bætt við. Rauðgreni og sitkagreni sýndu mestan vöxt í fyrstu og contorta- fura lofaði góðu. Af öðrum tegund- um sem þama hefur verið plantað má nefna t.d. birki, lerki og ösp. Og allt hefur náð góðum þroska. Gróðursetningin hefur að lang- mestu leyti farið fram í hlíðum Sandfells þar sem jarðvegur er góð- ur og rakinn hæfílegur vegna fjölda smálækja sem renna þar um. Vöxt- ur tijánna hefur verið ótrúlega mikill þessi ár sem liðin eru síðan gróðursetningin hófst. Það sjá allir sem leggja vilja leið sína þama um. í Haukadal var auk þess gerð tilraun með sáningu birkis á plægt og herfað slétt svæði og hefur það gefíst vel. Þá var og gróðursett contorta-fura, birki og lerki á plægt mýrlendi og fleira mætti telja. Hæsta tréð á svæðinu árið 1980 segir í fyrmefndum bæklingi, er sitkagreni, gróðursett 1949 og er þá 9,10 metrar að hæð og hefur sjálfsagt bætt við sig síðan. Best fer á því að ljúka þessum pistli um hið foma höfuðból og lærdómssetur okkar íslendinga til foma í Haukadal í Biskupstungum með niðurlagsorðum Hákonar Bjamasonar í títtnefndri grein í Ársriti Skógræktarfélags Islands frá árinu 1940: „ ... Gjöf Kristians Kirk verður til þess að Haukadalur rís úr niður- lægingu, einhveiju sögufrægasta höfuðbólinu er forðað frá tortím- ingu, stórfellt sandfok er stöðvað, landeyðing hættir og upp kemur iðgræn jörð og fagrir lundir. Feg- urri minnisvarða munu fáir geta reist sér ..." Nú em rúmlega 46 ár síðan þessi orð voru skrifuð. Trén í Haukadal hafa haldið áfram að teygja sig til himins ár frá ári og allur gróður hefur tekið þar miklum framförum. Hann mun gleðja augað og sálina og verða vitnisburður þess á kom- andi öldum að íslendingum var ekki alveg sama um afdrif jarðarinnar í Haukadal. En óvíst er hver þau hefðu orðið hefði ekki komið til hjálpandi hönd þessa danska velgerðarmanns. —H.V. Elsti máldagi kirkjunnar í Haukadal er frá 1269 og sá næsti frá 1331. Á þeim tíma hefur kirkj- unni bæst mikið fé. Bókum hefur að ví_su fækkað en allt annað auk- ist. Árið 1362 brann kirkjan og í næsta máldaga frá 1397 eru „instrument og omament" kirkj- unnar fátækleg en svipuð og í hinum fyrri. Um hveri og laugar í landi Haukadals er fátt sagt í fomum heimildum. Fyrst er þeirra getið í annálum 1294 þegar eldur er í Heklu og jarðskjálftar á Suðurlandi og upp komu stórir hverir. Árið 1630 er hveranna aftur get- ið. Þarna er stærsta hverasvæði á landinu og hefur áður verið miklu stærra en nú er, hefur náð alveg upp að túnfætinum í Haukadal. Þangað eru tveir kílómetrar frá núverandi hverasvæði, en þess sjást merki af jarðlögum með hvera- hrúðri. Lítið er vitað um Haukadal frá Úr skógvaxinni hlið Sandfells. .VM'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.