Morgunblaðið - 14.08.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.08.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987 39 Guðmundur Sigurðs- son - Minning Fæddur 3. ágríst 1896 Dáinn 6. ágúst 1987 í dag er tii moldar borinn afi minn, Guðmundur Sigurðsson. Ég mun minnast afa míns sem stór- brotins manns. Það var gott að koma í kaffi á Baldursgötuna. Þar var alltaf tekið á móti manni með hlýju og glaðværð. Ég mun seint gleyma þeim ánægjustundum þegar við sátum saman og töluðum um sveitina, sem var hans líf og yndi. Það voru mörg góð ráð sem ég sótti í sjóð afa um hestamennsku og ijúpnaveiði. Það var hreykinn unglingur sem ,kom til afa síns og sagði honum frá folakaupum. Við ræddum það löngum stundum hvernig best væri að fóðra folann og síðar temja hann. Árangurinn lét ekki á sér standa, folinn varð góður og gegn. Ég vil þakka afa alla þá hvatn- ingu og uppörvun sem hann veitti mér í leik og starfi. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég góðan vin og afa. Minning- in um hann lifír. Hvíl í friði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem Guðmundur H. Baldursson Guðmundur Sigurðsson, fyrrum bóndi, hreppstjóri og oddviti frá Hlíð í Grafningi lést á Vífílsstöðum 6. ágúst sl. og verður kvaddur hinstu kveðju í dag í Kotstrandar- kirkju í Ölfusi. Guðmundur, afí okkar, fæddist á Gn'mslæk í Ölfusi, sonur hjónanna Sigurðar Bjarnasonar og Pálínu Guðmundsdóttur, sem síðar bjuggu á Riftúni í Ölfusi. Sigurður og Pálína eignuðust 13 börn. Fimm þeirra dóu í æsku, en af þeim sem náðu fullorðinsárum eru Helga, Sig- urpáll, Svanborg og Vilborg látin. Eftirlifandi systkini Guðmundar eru Sigríður, Sigrún og Þorleifur. Einn- ig var Fjóla Halldórsdóttir, dóttir Svanborgar, alin upp af þeim hjón- um. Fyrir giftingu vann Guðmundur við bú foreldra sinna og stundaði sjóróðra á vetuma. Einnig var hann ijúpnaskytta góð. Hann kvæntist ömmu, Helgu Jónsdóttur, f. 9. ágúst 1897, þann 31. desember 1926 og náðu þau því að eiga gullbrúðkaups- afmæli 1976. Saman eignuðustþau fjögur börn, Bjöm, kvæntan Berg- þóm Snæbjörnsdóttur, Sigrúnu, gifta Halldóri Ásmundssyni, Vigdísi, gifta Baldri Guðmundssyni o g Inga, kvæntan Ingibjörgu Skarphéðinsdóttur. Helga átti tvær dætur frá fyrra hjónabandi, þær Fanneyju Benediktsdóttur, d. 1962, er gift var Halldóri Halldórssyni og Benediktu Benediktsdóttur, d. 1971, er gift var Ellerti Halldórs- syni. Guðmundur og Helga hófu bú- skap sinn í Reykjavík, þar sem þau bjuggu í tvö ár, síðan í Þorlákshöfn í sex ár, og á Hlíðarenda í Ölfusi í þijú ár. Þá fluttu þau í Hlíð í Grafningi þar sem þau voru búsett í um 25 ár eða þar til þau brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur 1963, þá á efri áram, en þar var heimili þeirra á Baldursgötu 13. í Reykjavík starfaði hann í Völundi fram undir áttrætt. Lengst af starfsævi sinni var hann bóndi og alla ævi í hugsun. Hann vildi veg íslenska landbúnað- arins sem mestan, sauðkindin var heilög og að gá til veðurs að morgni var fastur liður, einnig eftir að á mölina var komið. Þjóðmál vora honum hugleikin, pólitíkin var á hreinu og hann fylgdist vel með í þeim efnum alla tíð. Afi var þrek- maður til sálar og líkama. Handtak hans var ákveðið og þétt og lýsti vel persónuleikanum. Hann var stefnufastur og hringlandi honum fyarri. Hann naut ætíð trausts þar sem hann var og gegndi margvís- legum trúnaðarstörfum. Guðmundur var í hreppsnefnd Grafningshrepps 1946-63, oddviti frá 1949 og hreppstjóri frá 1958. Samtímis var hann sýslunefndar- maður og í ýmsum nefndum og ráðum fyrir sína sveit og sýslu. Einnig var hann umboðsmaður fýr- ir Branabótafélag íslands o.fl. Alltaf var gott að koma til afa og ömmu á Baldursgötuna, þar skorti aldrei umræðuefni og oft glatt á hjalla. Ekki vora þau alltaf sammála en samtaka þegar á reyndi. Þar var hlýju að finna fýrir okkur barnabömin, sem erum 27 að tölu og barnabamabörnin, sem náðu að kynnast langafa og langömmu. Þegar amma lést 1983 var eins og lífskraftur afa minnkaði til muna enda aldurhniginn og var hann að mestu á sjúkrahúsum eftir það. Hann gladdist við hveija heimsókn og þáði að halda í hendur þeirra, sem honum þótti vænt um. Hann hélt níræðisafmæli sitt hátíðlegt fyrir ári síðan og naut þess þá mjög að eiga stund með ættingjum svo og vinum úr sinni fyrri heimasveit. Þökkum við fyrir hönd aðstand- enda starfsfólki í Hátúni og Vífils- stöðum góða aðhlynningu. Sjálfar viljum við þakka afa okkar margar ánægjulegar og fróðleiksríkar sam- verastundir. Blessuð sé minning hans. Helga G. Halldórsdóttir, Erna Bryndís Halldórsdóttir. Happdrætti Hjartaverndar Á NÆSTU dögum hefst sala happdrættismiða Hjartaverndar en samtökin efna árlega til happ- drættis til þess að drýgja telqu- stofn Rannsóknarstöðvar Hjartavemdar. Í fréttatilkynningu frá samtök- unum segir að rannsóknarstöðin hafi nú starfað í 20 ár en hún var stofnuð og hefur verið starfrækt í því augnamiði að freista þess að fínna áhættuþætti hjarta- og æða- sjúkdóma svo að koma mætti við vömum og fyrirbyggjandi aðgerð- um. í tilefni 20 ára afmælis rannsókn- arstöðvarinnar efnir Hjartavemd til læknaráðstefnu og fræðslumóts dagana 2. og 3. október næstkom- andi. Þar munu um 20 sérfræðing- ar, erlendir og innlendir, flytja fyrirlestra um „Faraldsfræði hjarta- og æðasjúkdóma og varnir gegn þeirn". Vinningar í happdrættinu eru að þessu sinni 20 talsins að verðmæti 5.160.000.- króna. Hæsti vinning- urinn er ein milljón til húsnæðis- kaupa. Tveir aðrir vinningar era til húsnæðiskaupa en auk þeirra era tveir bílar og fyórir ferðavinningar á vinningaskránni. Verð hvers miða er 200 krónur og dregið verðúr úr vinningum þann 16. október næstkomandi. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTIJR Þjóðnýting verður minnkuð og ýtt undir einkaframtak og sózt eftir erlendri fjárfestingu Víetnam: Æ fleiri fylkja sér um stefnu Linhs flokksleiðtoga SKIPAN tveggja gamalreyndra baráttumanna úr Víetnamstríðinu i störf forseta og forsætisráðherra nýlega, boðar ekki að hægt hafi verið á þeim umbótum, sem Nguyen Van Linh, nýr flokksleið- togi hefur verið talsmaður fyrir. „Vindar breytinga leika um Víetnam og hver sá sem stendur í vegi fyrir þeim mun fjúka í burtu,“ er haft eftir ónefndum þingmanni, þegar hann var inntur eftir því á dögunum, hvaða áhrif þessi skipan myndi hafa á breyt- ingar, sem hrundið var af stað eftir flokksþingið í desember. Iritinu Far Eastern Economic Review segir, að menn orði það svo, að frá gamla kerfinu til hins nýja, sem verði smátt og smátt innleitt séu ekki skref, heldur risa- stökk. „Einhver verður að fara með hlutverk þeirra Chemenkos og Andropovs," sagði annar þing- maður. Þar af leiðandi má álykta, að þeir hafi beinlínis verið valdir til að brúa tímabil, sem verði að líða, unz einhvers konar Gorbasjev komi fram á sjónarsviðið. í fyrra mánuði var ákveðið að Pham Hung, heilsuveill og hálfátt- ræður, fyrrverandi skæraliðafor- ingi yrði forsætisráðherra. Hung er sex áram yngri en fyrirrennari hans. Hung er nýrnaveikur og mun vera hjartaveill. Hann hefur dvalið sér til lækninga í Sovétríkj- unum lengst af síðusta árið. Vo Chi Cong, 74 ára tók við forsetaembætti af Traong Chinh. Cong hafði lengi verið í stjórninni í Norður Víetnam og var þekktur í stríðinu. Áður en flokksþingið kom saman, höfðu nokkrir spáð, að utanríkisráðherrann, Nguyen Co Thach eða áætlunarmálaráð- herrann Vo Van Kiet myndu fá þessi störf. Þeir era aðeins rúm- lega sextugir að aldri. Þeir styðja heilshugar efnahagsstefnu Linh flokksleiðtoga, en era varla nógu reyndir á víetnamska vísu enn. En þeir gætu vissulega komið til greina, þegar rétt stund er runnin upp. Svo er sennilegt að þeir Thach og Kiet verði áhrifamiklir á næst- unni, þegar haft er í huga, að forsætisráðherrann er óvinnufær vegna veikinda. En með því að velja Hung, að minnsta kosti að nafninu til, tryggir flokkurinn ákveðið pólitískt jafnvægi innan stjómkerfísins, meðan unnið er að þeim breytingum, sem Linh miðar ótrauður að. Þó svo að Víetnamar velji helzt aldurhnigna menn í forystusveit og þetta sé því í sjálfu sér eðlileg ráðstöfun, eru ekki allir á eitt sáttir. Einn þingmaður sagði í viðtali við Far Eastem Economic Review að hann hefði viljað, að breytingum yrði hraðað. Víetnam hefði setið á botninum frá því Linh, flokksleiðtogi nýtur vax- andi virðingar stríðinu lauk, efnahagslífíð væri ekki bara staðnað, heldur í sömu ijúkandi rústum og það var fyrir tíu áram og hagur þjóðarinnar hörmulegur. Cong forseti hefur einnig látið í ljós eindreginn stuðning við hana, en hann er ekki sagður njóta almenningshylli. Hann þykir almennt heldur lítill bógur. En hann setur sig væntanlega ekki á móti umbótunum og hvetur heldur til þeirra. Þeir sem hafa reynt að fylgjast með málefnum Víetnams, firá því í desember þykir einsætt að krafa Linhs flokksleiðtóga um „endurbyggingu" hafí fengið hljómgrann um gervallt landið. Innan flokksins er stuðningurinn augljós, og mönnum þykir orðið löngu tímabært að vekja upp þann kraft sem í þjóðinni býr og virkja hann, alþýðu mannatil hagsbóta. Blaðamenn sem hafa undan- fama mánuði verið í Víetnam segja, að Linh njóti ákaflega mik- ils trausts, hvort sem er í hópi tryggra flokksmanna eða hins óbreytrta alþýðumanns. Hann þykir sýna hispursleysi og hrein- skilni og hann bregst við skjótt, ef fyrir hann era lögð mál til af- greiðslu. Sjálfur segir hann hikstalaust að skriffinnska sé eit- ur í sínum beinum. Þá hefur það mælzt vel fyrir, að hann hefur ferðazt mikið um landið. Hann notar ekki einkaflugvélar, eins og fyrirrennaramir hafa gert. Hann fer með áætlunarvélum Air Víet- nam og með honum era aðeins tveir eða þrír ráðgjafar í staðinn fyrir hirð upp á nokkra tugi ná- inna starfsmanna og jafnvel fyölskyldna líka, eins og var al- siða. Linh hefur veitt ákúrar ýmsum héraðsstjóram, ef honum finnst þeir berast of mikið á. í Hai Hung, fyrir austan Hanoi, segja menn hressir frá því, að bæjarstjórinn þar ferðist nú um á hjóli, en forveri hans hafí ók um í stórum Volgubíl. Það vakti óskipta athygli á dögunum, þegar grein birtist í málgagni flokksinsATian Dan þar sem greinarhöfundur, sem skrif- aði undir stöfunum N.V.L. réðst óvægilega á forystu landsins og sakaði hana um dugleysi, mis- beitingu valds og almennt, að hún stæði í vegi fyrir framförum í landinu. Flestir Víetnama þykjast sannfærðir um, að Linh hafi skrif- að þessa grein, sem bar yfirskrift- ina „Það sem verður að gera hér og það strax." Stjómarerindreka í Hanoi greinir á um, hvort Linh hafí skrif- að þetta. Og þá greinir sömuleiðis á um, hvort hún sýni styrkleika eða veikleika hans sem foringja. Flestir hallast að hinu fyrmefnda og segja, að óþolinmæði Linhs hafi verið hvati greinarinnar. Við- brögð manna innanlands sýni einnig, að menn fylki sér æ þéttar að baki honum. Hreinsanir innan flokksins hó- fust fljótlega eftir þingið og hafa haldið áfram. Hver sá sem er granaður um svindl, svik eða eitt- hvað þaðan af verra á nú yfír höfði sér að vera rekinn úr flokkn- um með skömm. Talað er um, að hér gæti verið um að ræða allt að tvær milljónir manna. Nú þeg- ar hafa ýmsir héraðsstjórar og embættismenn verið látnir víkja úr störfum sínum. Blaðamenn sem koma til Víet- nams nú, segja óhemju mikla geijun þar á öllum sviðum. Blaða- mönnum hefur verið gert tiltölu- lega auðvelt að koma til landsins og nú stefnir stjómin að því að fá ferðamenn til landsins. Að visu tekur enn einn eða tvo mánuði fyrir ferðamenn að fá áritun og það verður stefnt að því, að þeir ferðist um í litlum hópum og und- ir sérlegri Ieiðsögn. En það er þó byijun, sem lofar góðu, miðað við hvemig málum var komið í Víet- nam fyrir undraskömmu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.