Morgunblaðið - 29.08.1987, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 29.08.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1987 5 Gallerí Svart á hvítu: Sýningu Sveins Björns- sonar lýkur á morgun ftLÁLVERKASÝNINGU Sveins Björnssonar í Gallerí Svart á hvítu lýkur á sunnudag, en sýn- ingin var opnuð 15. ágúst. Sýningar Sveins eru orðnar fjöl- margar, bæði hér heima og erlendis. í sýningarskrá ritar Halldór Bjöm Runólfsson listfræðingur formála og segir þar meðal annars að við hveija sýningu hafi Sveinn eflst að áræði og öryggi án þess að hvika nokkru sinni frá voldugu og næsta tröllslegu handbragði sínu. Hann segir að það sem segja megi að einkenni list Sveins umfram annað sé skýlaus höfnun á öllu sem heitið getur punt og pjatt. Á sýningunni eru nýjar myndir, allar frá árunum 1986-1987. Sveinn Bjömsson sagði í samtali við Morgunblaðið að myndimar væm allar málaðar í Krísuvík þar sem hann eyðir flestum stundum. Þar væm viðfangsefnin óþijótandi og sér entist ömgglega ekki ævin til að mála öll þau áhrif sem hann yrði fyrir þar. „Ég skoða mikið náttúmna en nú orðið mála ég ekki lengur það sem ég sé og fyrir aug- un ber, heldur það sem ég sé ekki. Viðfangsefnin em hugsýnir og draumar," sagði Sveinn. Sveinn Bjömsson hóf feril sinn á sjónum en hætti sjómennsku skömmu eftir að hann lauk prófi frá stýrimannaskólanum til að geta helgað sig málaralistinni. Hann hefur allt frá 1953 málað og haldið sýningar ásamt brauðstritinu, en lengst af var hann rannsóknarlög- regluþjónn í Hafnarfirði. Hann sagðist vera mjög ánægður með viðtökur og þá góðu dóma sem sýn- ingin hefði fengið, en sér virtist sem nú myndi endurtaka sig sama sagan og í fyrra þegar hann sýndi í Den Frie í Kaupmannahöfn, þá hefði hann fengið mjög góða dóma í öllum helstu blöðum en lítið hefði hins vegar selst. VGRÖLD8 N '87 < <ö 5 \/CDhl niM’Q-7 w v.i %v/v.K^n v w# innan veggja LAUGARDALSHÖLL STÓRSÝNING ÍFYRSTA SINN Á ÍSLANDI Leysigeislinn er kominn til íslands. Á stórsýningunni VERÖLDIN ‘87verða magnaðar leysigeisla- sýningar oft á hverjum degi. Æsilegt samspil tónlistar og leysigeisla í öllum litum sem skotið er upp í loftið. Svona sýning er í raun ólýsanleg með orðum. Komið á VERÖLDINA ‘87, sjáið stórkostlegustu sýningu ársins. FYRIRALLA FJOLSKYLDUNA. Opið: Virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.