Morgunblaðið - 17.09.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
63
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Frábær árangur Valsmanna
Þeir náðu markalausu jafntelfi í Austur-Þýskalandi og eygja möguleika á að komast í aðra umferð
„ÞAÐ er ekki spurning. Við
œtlum okkur í aðra umferð
Evrópukeppni féiagsliða,11
sagði Grímur Sœmundsen
formann meistaraflokksráðs
Vals í samtali við Morgunblað-
ið í gœr eftir að Valsmenn náðu
þeim frábœra árangri að gera
markalaust jafntefli við Wismut
Aue í Austur-Þýskalandi. Veru-
lega góð úrslit og nú virðast
Valsmenn eiga góða möguleika
á að komast í aðra umferð því
heimavöllurinn vegur alltaf
þungt í keppnum sem þessari.
Að sögn Gríms léku Valsstrák-
amir frábærlega vel. Þeir
héldu knettinum mjög vel og gáfu
hinum austur-þýsku engin færi á
sér. „Wismut-liðið er gott lið. Þeir
leika mjög kerfisbundið og strákun-
um var sagt fyrir leikinn að dekka
vel svæðin og það gekk ljómandi
þannig að þeir komust ekkert gegn
okkur," sagði Grímur.
Þjóðvetjar fengu nokkur þokkaleg
færi og einu sinni þurfti Guðmund-
ur Baldursson að taka á honum
stóra sínum. Hann varði langskot,
hélt boltanum ekki og þeir náðu að
skalla frá markteig á meðan Guð-
mundur lá á vellinum. Hann var sem
elding á fætur og náði að veija.
„Markvarsla Guðmundar þarna var
með því betra sem maður sér,“
sagði Grímur.
Valsliðið fékk ekki nein opin mark-
tækifæri en tvívegis sköpuðu þeir
sér það sem kalla má hálffæri.
Valur Valsson komst í gegn en
skaut framhjá og í síðari hálfleik
geystist Þorgrímur fyrirliði Þráins-
son upp kantinn en missti boltann
aðeins of langt frá sér þannig að
ekkert varð úr.
Það var Sovéskur dómari sem
dæmdi leikinn. „Ég er búinn að
leika 13 Evrópuleiki og horft á
annað eins af slíkum leikjum en ég
hef aldrei séð nokkru þessu líkt.
Dómarinn gerði bókstaflega allt til
að færa þeim sigurinn á silfurfati,
nema að dæma víti, hann lagði
ekki í það. Það voru fimm bókaðir
hjá okkur en þeir fengu ekkert
spjald," sagði Grímur.
Þeir sem fengu spjöld voru Ingvar
Guðmundsson, Jón Grétar Jónsson,
Njáll Eiðsson, Guðni Bergsson og
Magni Blöndal Pétursson.
Valsliðið lék eins og áður sagði frá-
bærlega og sýndu enn einu sinni
að leikmenn í fyrstu deildinni hér
heima geta vel staðið sig í leikjum
gegn atvinnumönnum erlendis. Þeir
gáfu sig alla í leikinn og uppskáru
eins og sáð var.
Valsmenn áfram?
íslandsmeistarar Vals gerðu markalaust jafntefli gegn austur-þýska liðinu Wismut Aue í fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppni félagsliða. Hér á Valur Valsson í höggi við Ulf Einsiedel í leiknum sem fram fór á Karl Marx-leikvanginum í
gærkvöldi. Valsmenn eigja því möguleika á að komast í 2. umferð keppninnar þar sem þeir eiga heimaleikinn eftir.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Leikmenn Sparta Prag voru að öllu jöfnu höfðinu hærri en leikmenn Fram.
Þeir höfðu þannig töluverða yfirburði í loftinu. Hér á Amljótur Davíðsson,
yngsti leikmaður Fram, örvæntingarfulla tilraun til að skalla knöttinn en mátti
sín lítils gegn vamarmanninum Frantisek Straka.
Fram nétt hreinu
í 80 mínútur
- en Tékkarnir skoruðu tvö mörk í lokin
FRAMARAR hóldu hreinu í 80
mínútur gegn tékknesku meist-
urunum Sparta Prag í fyrri leik
liðanna í Evrópukeppni meist-
araliða á Laugardalsvelli í
gærkvöldi. Tókkarnir skoruðu
síðan tvö mörk með fimm
mínútna millibili í lokin. Úrslitin
verða að teljast sanngjörn og
má búast við að róðurinn verði
erfiður fyrir Fram í seinni leikn-
um ytra.
Framarar léku ágætlega í upp-
hafi leiksins, spiluðu þá skyn-
samlega og létu boltann ganga en
reyndu full lítið að byggja upp sókn-
ir. Tékkarnir komu
Valur meira inn í leikinn
Jónatansson undir lok fyrri hálf-
skrífar leiks og skall þá oft
hurð nærri hælum
við mark Fram. Friðrik, markvörð-
ur, greip þá oft vel inní. Eina færi
Framara í fyrri hálfleik kom á 5.
mínútu er Ragnar Margeirsson átti
hörkuskot eftir homspymu, sem
markvörður Sparta varði glæsilega
í hom.
Framarar yfirspilaðir
Seinni hálfleikur var algjörlega eign
Tékka ef frá er talið dauðafæri
Guðmundar Steinssonar er hann
skallaði rétt framhjá eftir góðan
undirbúning Ormarrs Örlygssonar
og Ragnars Margeirssonar um
miðjan hálfleikinn. Tékkar yfirspil-
uðu Framara á stundum. Létu
boltann ganga vel á milli sín og
voru mjög hreifanlegir. Framarar
áttu ekkert svar við þessu og reyndu
Fram-Sparta P.
0 : 2
Evrópukeppni meistaraliða, 1. umferð,
Laugardalsvöllur miðvikudaginn 16.
september 1987.
Mörk Sparta Prag: Jomas Skuhravy
(80.), Jan Musil (85.)
Gult spjald: Pétur Ormslev (52.),
Frantisek Straka (89.).
Dómari: Tore Hoilung, Noregi.
Línuverðir: Erling Haugen og Harald
Hansen, Noregi.
Áhorfendur: 875.
Lið Fram: Friðrik Friðriksson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Kristján Jónsson,
Pétur Ormslev, (Arljótur Davíðsson
vm. 59. mín.), Viðar Þorkelsson, Krist-
inn R. Jónsson, Pétur Arþórsson,
Guðmundur Steinsson, Ragnar Mar-
geirsson, Jón Sveinsson og Ormarr
Örlygsson.
Lið Sparta Prag:Streskal, Straka,
Hasek, Vrabec, Bilek, Bieiek, Cho-
vanec, Jaroiim, Nemecek, Skuhravy,
Griga, (Musil vm. 83. mín.).
að veijast og það tókst þar til út-
haldið þraut er 10 mínútur voru til
leiksloka.
Tvöódýr mörk
Framarar fengu á sig tvö mörk á
5 mínútum og komu þau bæði eftir
mistök í vöminni. Fyrst skoraði
Tomas Skuhravy (nr. 10) með skoti
af stuttu færi eftir að Þorsteini
hafði mistekist að hreinsa frá. Að-
dragandinn að seinna markinu var
mjög svipaður. Þorsteinn hreinsaði
frá í vítateignum en ekki vildi betur
til en að knötturinn fór í Jón Sveins-
son og datt fyrir fætur Jan Musil
sem þakkaði fyrir sig með því að
skora með hörkuskoti í bláhomið
frá vítateig.
Framarar áttu við ofurefli að etja
í þessum leik. Þeir áttu aðeins
möguleika í byijun, en síðan réðu
Tékkamir ferðinni. Að mínu mati
vom Frarnarar of varkárir í sóknar-
leik sínum og reyndu að hanga of
mikið á boltanum og léku oftast til
baka. Ef lið ætlar sér að komast í
aðra umferð hlýtur það að reyna
að ná hagstaeðum úrslitum og
sækja meira. Vamarleikur Fram
hefur ekki verið þeirra sterkasta
hlið í sumar. Viðar, Ormarr og
Ragnar Margeirsson vom sterkustu
leikmenn liðsins. Friðrik stóð sig
einnig vel í markinu og verður ekki
sakaður um mörkin.
Sparta Prag er mjög gott lið. í því
em stórir og stæðilegir leikmenn
sem em mjög hreifanlegir og láta
boltann ganga. Maður hafði það á
tilfinningunni að þeir tækju ekki á
öllu sínu í þessum leik. Bestu leik-
menn liðsins vom fyrirliðinn Josef
Chovanec (nr. 8) sem stjómaði leik
liðsins eins og herforingi. Fram-
heijinn Tomas Skuhravy var einnig
mjög sterkur og skapaði ávallt
mikla hættu.
Nórski dómarinn Tore Hollung
sýndi eitthveija bestu dómgæslu
sem sést hefur á Laugardalsvelli í
langan tíma, ólíkt landa sínum
Presberg sem dæmdi leik ÍA og
Kalmar FF í fyrra kvöld.