Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 13

Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 13
mm MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 13 íslenska sjávarútvegssýningin 1987 Tæplega 450 útlensk fyrirtæki ásamt 125 íslenskum aðilum kynna vörur sínar og þjónustu fyrir sjávarútveg um víða veröld. Með tveimur nýreistum sýningarskálum og stóru útisvæði er sýningarsvæðið alls yfir 10.000 m2 - langtum stærra en við eigum að venjast hér á landi enda um að ræða eina allra stærstu sýningu sinnar tegundar í heiminum. Allt það nýjasta í heimi sjávarútvegsins er kynnt og þúsundir erlendra gesta koma hingað til lands til þess að sjá sýninguna og fylgjast með á sínu sviði. íslenska sjávarútvegssýningin á erindi til allra landsmanna og enginn „í faginu“ má láta þennan heimsviðburð fara framhjá sér. Opið alla daga kl. 10:00-18:00 laugard. 19. sept.-miðvikudags 23. sept Gómsætir sjávarréttir alla daga! í veitingasölu Laugardalshallar býöur Veitingahöllin sýningargestum upp á glæsilega sjávarréttaveislu gegn vægu veröi. Afsláttur á innanlandsflugi Á meöan íslenska sjávarútvegssýningin stendur yfir bjóöa Flugteiöir sérstakan af- slátt á innanlandsflugi fyrir sýningargesti utan af landi. FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.