Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 38
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 En það er miklu til kostað, heil heimsstyijöld til þess að afla Banda- ríkjunum snillinga. - Hvað varðar forlagatrúna, er ekki boðskapur bóka þinna sá að maðurinn beri enga ábyrgð. Þennan skilning má hæglega leggja í sumt af því sem þú skrifar? Það eru örlög flestra að taka fulla ábyrgð á gerðum sínum. Fá svo engu ráðið um framvinduna. Renna bara áfram líkt og á lestarspori. Þessar manneskjur eru ekki ábyrgð- arlausar. Hinsvegar er vafasamt að eigna sér heiðurinn af því að vera réttlát manneskja, blíð manneskja eða hvað sem er. Þú ert bara það sem þú ert. Og verður að vera. - Er það þetta sem þú átt við þegar þú ræðir um efnaskipti í heil- anum sem ráði hvötum og gerðum mannanna. Að við fáum ekki við þessi öfl ráðið? Við ráðum engu um hvað gerist í heilabúinu. Þú hefur sjálfur séð geðveika menn ekki satt? Sonur minn Mark, sem nú er virt- ur bamalæknir, fór alveg yfir um í tvö ár. Þegar ég sá bólstrað her- bergi í fyrsta sinn var sonur minn í því og fyrsta spennitreyjan sem ég sá klæddi hann. Ég þóttist þekkja hann ágætlega. Skyndilega breytt- ist geðugur ungur maður í bijálæð- ing. Eitthvað hafði farið úrskeiðis. Mark skrifaði góða bók um þenn- an sjúkdóm sinn. Hún heitir „Hraðlest til Eden“ [The Eden ex- press]. Hann náði sér fyllilega, útskrifaðist úr læknadeild Harvard háskóla og gerðist bamalæknir. Núna þarf hann bara að fylgjast með efnum í blóði sínu og þvagi. Þannig getur hann séð fyrir yfirvof- andi kast. Og getur bægt því frá með lyfjum. Mark er eitt stórt tilraunaglas. Ég myndi aldrei kalla hann til ábyrgðar fyrir því sem henti hann á þessu tímabili. Það skrítna er að hann man allt. Hveija mínútu. Ég stóð í þeirri trú að geðveikur maður sem fengi bata gæti ekki rifjað upp atburði úr veik- indum sínum. Oðru nær, þetta stendur honum lifandi fyrir hugs- skotssjónum. Til allrar hamingju fæddist Mark í lok þessarar hræðilegu aldar. Nú gera menn sér grein fyrir því að geðveiki á sér efnafræðilegar orsak- ir. Raunar held ég að flestir Evrópubúar hafi alltaf gert sér grein fyrir því að það eru efnaferli sem ráða í heilanum. Síðan kom Freud öllum í opna skjöldu með kenningum um að eitthvað annað en efnaferli gætu legið til grundvallar í sálarlíf- inu. „ Viðþurfum engrui kanmifugi“ - Þetta hljómar undarlega úr munni höfundar Sláturhúss fimm . . . Mótsagnir eru mótsagnir. Ég var mjög ánægður að synir mínir skyldu ekki innrita sig í herinn. Það hefði hryggt mig mjög ef þeir hefðu gert það. Það skiptir máli við hvem maður talar. Ef ég væri að tala við mjög einfaldan mann, heitan friðarsinna, gæti ég hæglega lýst mig fullkom- inn andstæðing stríðsreksturs sem hefði andstyggð á manndrápum. Þá er spurt: „Segjum sem svo að bijálæðingur með reidda exi ráð- ist inn á heimili þitt og hóti að drepa litlu dóttur þína. Hvað myndirðu gera ?“. Og ég segi: „Ekki neitt“. En raunverulega svarið, það sem ég veit innst inni er að líkaminn myndi kasta sér fyrir exina eða eitt- hvað því um líkt. New York er hættuleg borg. En hún er ekki hættulegasta borg í Ameríku. Því fer íjarri. Það sem er hættulegt er að þar gengur fólk um götumar sem er dauðhrætt. Þegar það telur sér ógnað er það reiðu- búið að drepa í sjálfsvöm. Rennum áfram á lestarspori — En Vietnam stríðið var ekki sjálfsvöm bandarísku þjóðarinnar. Hvað myndi reka þig til að taka þátt í slíku stríði. Er það vegna þess að þú telur þig hluta af stórfjöl- skyldu? Ég reyni að ímynda mér að ég sé hluti af slíkri fjölskyldu. Ég hef afskaplega gaman af því að hanga með náungum sem voru í Vietnam. Þetta var ógnvænleg reynsla. Hver hermaður þurfti að beijast í ár, sem er hræðilega lang- ur tími fyrir fótgönguliða. Þessir menn hafa tekið út mikinn þroska. Af þeim má læra ansi margt. Margir þeirra unnu hræðileg myrkraverk. Það má líkja þeim við vin minn Heinrich Böll. Hann barð- ist í fremstu víglínu gegn Rússum í síðarí heimstyijöld. Kannski er það ástæðan fyrir því hversu vís og næmur hann var. Við stóðum í þeirri trú að her- mennimir í Vietnam væru bara haugur af hálfvitum. En úr þeirra hópi hafa komið nokkrir frábærir rithöfundar sem allir leggja mjög hart að sér í skrifum sínum. Margir þeirra eru mjög stoltir af því að hafa barist í stríðinu. Tala um að drepa komma, Rambo og svoleiðis vitleysu. - Þannig að Vietnam-stríðið varð bandarískri menningu að gagni í þessum skilningi? Sá ábati fékkst með hörmulegum hætti. Hið sama má segja um helför gyðinga. Margir af mestu snilling- um þessarar aldar komu vestur um haf af hennar sökum, snillingar sem við hefðum aldrei getað alið sjálf. VÖKVADÆLUR EINFALDAR, TVÖFALDAR OC ÞREFALDAR SKÓFLUDÆLUR. □ Olíumagn frá 19-318 l/mtn. hvert hólf. □ Þrýstlngur allt aö 240 bar □ öxul-flans staðall sá saml og á öörum skófiudæium. □ Hljóölátar, endlngargóöar. □ Elnnlg fjölbreytt úrval af stlmplldælum, mótorum og ventlum. □ Hagstættverö □ Varahlutaþjónusta □ Hönnum og byggjum upp vökvakerfl. VÉLAVERKSTÆÐI SIC. SVEINBJÖRNSSON HF. Skelöarásl, caröabæ sfmar 52850 - 52661 VEIDARFÆRI l REKSTRARVORURt FISKÚTFtUTNINGURt ÞJÓNUSTUMIDSTÖD SJÁVARÚTVEGSINS Asiaco hf. hefur þjónaö sjávarútveginum í meira en aldarfjórðung og er nú eitt stærsta fyrirtæki á sínu sviöi hérlendis. Nú sem fyrr kappkostum viö aö veita út- gerðarfyrirtækjum sem fullkomnasta þjón- ustu. Viö bjóöum m.a. eftirfarandi vörur: Frá útgerðarvörudeild og eigin víra- og neta- verkstæði: Veiöarfæri af öllum gerðum, heil og uppsett og tilbúin til notkunar eða hluti til þeirra, t.d. fiski-, rækju- og humartroll, snur- voðir, loðnu- og síldarnætur, þorska-, ufsa-, ýsu- og grásleppunet, línu og króka; toghlera og bobbinga, keðjur, lásaog flot, tóg og alla víra;fiskikassa og ker. Það er sama hvort þú rekur lítinn bát eða stór- an togara, hvort þú ert á línu eða netum, nót eða trolli, þú færð allt sem til þarf á einum stað. Frá rekstrarvörudeild: Smurolíur, olíusíur, þétti- ogpakkningaefni, hreinsiefni fyrir iðnað og stofnanirogTORKhreinlætisvörurnar. Hvort sem smyrja þarf eða hreinsa, á sjó eða í landi, þá eigum við réttu vörurnar og hagkvæma lausn. Þú færð hjá okkur veiðarfærin og rekstrar- vörurnarog við seljum fyrir þig aflann. Vertu ætíðvelkominn í ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ SJÁVARÚTVEGSINS. <^> asiaco hr Vesturgötu 2, Pósthólf 826, 121 Reykjavík, Sími: 91-26733
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.