Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
NámskeiÖ istjörnu-
speki
Nú fer að líða að því að hið
eiginlega námskeið í stjömu-
speki hefjist og að kennd
verði nútímastjömuspeki, lið
fyrir lið. Er ætlunin sú að
fjalla á næstu laugardögum
um stjömumerkin, um plánet-
umar, um hveija afstöðu fyrir
sig, um hvert hús fyrir sig
o.s.frv, þar til hveijum ein-
stökum þætti hafa verið gerð
nokkur skil. Einnig verður
reynt að fjalla um það hvem-
ig lesa á úr stjömukortum,
eða tengja alla hina ólíku
þætti saman í eina heilsteypta
mynd.
Frjáls vilji
Áður en lengra er haldið er
þó rétt að geta þess að hér
verður fjallað um sálfræði-
lega stjömuspeki. Tekið er
tillit til þess að við höfum
ftjálsan vilja, ef við kjósum
að beita honum, að erfða-
þættir ráða miklu um atgervi
manna, að uppeldi skiptir
máli sem og önnur ytri skil-
yrði. Stjömuspeki fæst ekki
við spádóma og á því ekkert
skylt við stjömuspá.
Ytri skilyrði
Með því síðast nefnda, áður
en ég drap á spádóma, er t.d.
átt við að aðstæður í þjóð-
félaginu hveiju sinni geta
verið hagstæðar eða óhag-
stæðar ákveðnum persónu-
gerðum. Sem dæmi má nefna
að ólíkt auðveldara er að vera
sjálfstæð kona í dag en fyrr
á ámm. Erfitt var að vera
drífandi athafnamaður á
haftaárunum svokölluðu. Ef
út í þá sálma er farið má
segja að sjaldan eða aldrei
hafi verið eins gott að þroska
einstaklingsgerð sína og upp-
lag og nú. Ef við skoðum
sögu Islands ættum við að
geta verið sammála um að á
engum tíma hafa þegnum
þjóðarinnar boðist eins mörg
tækifæri og í dag. Fyrir það
ættum við að vera þakklát.
En það er víst önnur saga.
Upplag
Það sem nútímastjömuspeki
reynir fyrsc og fremst að skil-
greina er upplag manna.
Hvaða persónugerð kem ég
með inn í þetta líf? Hveijir
em hæfileikar og hveijir em
veikleikar mínir? Tilgangur-
inn er fyrst og fremst sá að
auka sjálfsþekkingu okkar í
þeim tilgangi að færa líf okk-
ar til betri vegar.
Syndir feÖranna
Hin ytri skilyrði, syndir feðr-
anna, uppeldi og tíska tíðar-
andans em oft þess valdandi
að við töpum sjónum á okkar
innra sjálfí. Þó margt sé gott
í þjóðfélagi okkar vill ein-
staklingurinn oft gleymast.
Vinna og steypukapphlaup
glepur, foreldrar hafa ekki
tíma til að hlúa að bömum
sínum og fáar em þær stofn-
anir og einstaklingar sem
kenna okkur að umgangast
hvort annað og virða tilfinn-
ingar okkar. Það sést t.d.
best á því hversu mikill vand-
ræðagangur vill oft verða í
kringum tilhuga- og reyndar
hjónalíf okkar. Við þekkjum
ekki eigin hvatir, hvað þá að
við skiljum maka okkar.
Minnisveig
Það sem ég á við er að upp-
lag okkar og einstaklingsgerð
týnist oft sjónum okkar og
grefst undir ytra fargi upp-
eldis og umhverfisáhrifa. Það
má segja að ein besta gjöf
stjömuspekinnar til manna
sé sú að gefa okkur sýn á
þetta upplag sem gleymist
iðulega í dagsins önn. Hún
reynir að minna okkur á það
hver við emm. Með spádóma
hefur hún hins vegar lítt að
gera.
GRETTIR
TAAilliill ICMMI
1 UIVIIVI1 Uu JclMIMI
-4-
SMAFOLK
UIHERERE
YOU G0IN6,
CHARLIE
BROUIN?
THE TEACHER
WANT5 ME TO
5EETHE NUR5E
Hvert ertu að fara, Kalli
Bjarna? Kennarinn vill að
ég láti hjúkkuna athuga í
mér augun ...
5HE 5AW ME UllNKlNG AT
THE LITTLE REP HAIREP 6IRL.
5HE THINK5 50METHIN6'5
WR0N6 UUTH MV E'CE...
Hún sá að ég var að blikka
þessa litlu rauðhærðu og
hún heldur að það sé eitt-
hvað að mér í auganu ...
Hvað á ég að segja hjúkk-
unni?
I NEVER KNEW LOVE
COULP BE 50
MUCH TKOUBLE..
Ég hefði aldrei haldið að
ástin væri svona erfið ...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Eini leikurinn á EM sem ís-
land beið alvarlegt afhroð í var
gegn Þjóðveijum í 5. umferð.
Leikurinn tapaðist 7—23, og
58-110 í IMPum. 12 IMPar
töpuðust í þessu viðkvæma spili:
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ ÁKD1062
VK
♦ D752
♦ 73
Vestur Austur
♦ - .. ♦ 854
VÁG953 VÁD86
♦ 7 ♦ K9643
♦ ÁKDG1095 +84
Suður
♦ G973
♦ D742
♦ Á108
♦ 62
Aðalsteinn Jörgensen og Ás-
geir Ásbjömsson vom með spil
AV í opna salnum gegn Marsal
og Mattsson:
Vestur Norður Austur Suður
Aðalst. Marsal Ásgeir Mattsson
— — — Pass
1 lauf 1 spaði Pass 2spaðar
3 spaðar 4 spaðar Pass Pass
5 lauf Pass 5 tíglar Pass
5 hjörtu Pass Pass Pass
Laufopnun Aðalsteins lofar
16 punktum og síðan sýndi hann
sterka tvílita hönd með því að
melda lit mótheijanna. Ásgeir
kýs að spila hinn litinn og fer
því úr fimm laufum.
En munurinn á litunum er
mikill og Aðalsteinn réði ekki
við styttinginn í 4-1-trompleg-
unni. Út kom spaði, sem Aðal-
steinn trompaði og spilaði smáu
trompi að heiman. Áætlunin var
síðan að nota innkomu blinds á
laufáttu til að svína fyrir hjarta-
hámann suðurs. Þessi spila-
mennska gengur upp ef norður
á háspil annað í hjarta. En í
þessari legu hmndi spilið og fór
i fjóra niður; 200 í NS.
Þjóðveijamir Schroeder og
Von Gynz í lokaða salnum kom-
ust í fímm lauf gegn Jóni
Baldurssyni og Sigurði Sverris-
syni. Sigurður spilaði út spaða-
ás, sem Von Gynz trompaði með
níunni. Hann þreifaði fyrir sér
með því að spila tígli á kónginn.
Jón drap á ásinn og spilaði aftur
spaða. Von Gynz tók nú einu
sinni tromp og spilaði svo smáu
hjarta heimanfrá. Seinna gat
hann notað innkomu blinds á
laufáttu til að svíða hjarta-
drottninguna af Jóni. Slétt
staðið og 400 til AV.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í brezku deildakeppninni sl.
keppnistímabil kom þessi staða
upp í skák þeirra Ivell og Pein,
sem hafði svart og átti leik.
27. — Rxg4I, 28. hxg4 - Dh4+,
29. Kg2 - Dxg4+, 30. Kfl -
Dh3+ (30. — Hg8, 31. He3 var
lakara) 31. Ke2 - Df3+, 32. Kfl
— e3, 33. Dc2 — e2+ og hvítur
gafst upp, því hann er óveijandi
mát. Skákin í heild var valin sú
bezta á keppnistímabilinu. Það var
Magnús Magnússon, sjónvarps-
maður hjá BBC, sem afhenti
verðlaunin.