Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 Garðar Cortes hlýtur góð- ar viðtök- ur erlendis GARÐAR Cortes tenórsöngv- ari er nú staddur á Englandi þar sem hann er að æfa hlut- verk í óperu við Opera North í Leeds. Garðar kom í fyrsta skipti fram á Englandi 14. september sl. þegar hann söng hlutverk Florestar i óperunni Fidelio eftir Beethoven á setn- ingu Windsortónlistarhátíð- arinnar og hlaut hann mjög góðar viðtökur áhorfenda. Windsor-tónlistarhátíðin er haldin í Windsor- kastala, eign bresku konungsflölskyldunnar, og er hún árlegur viðburður. Öll- um óperustjórum á Bretlandi er boðið á opnunina, en blaðamönn- um og gagnrýnendum er meinað- ur aðgangur og því kemur ekki fram nein opinber gagnrýni. Morgunblaðið hafði samband við Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur óperusöngkonu en hún hefur tal- að við fólk sem var á tónleikunum og sagði það að Garðari hefði verið mjög vel tekið. Honum hefði tekist vel upp og sungið af mikilli tilfinningu. Olöf taldi það vera stórkostlegt tækifæri fyrir Garðar að hafa getað kynnt sig á þennan hátt. Honum hefðu borist tilboð, m.a. frá Stokk- hólmi. Garðar er sem fyrr segir á æfíngum við Opera North í Leeds. Þar á hann að syngja Macduff í óperunni Macbeth eftir Verdi, sem frumsýnd verður 14. október. Framundan hiá Garðari er að syngja í átta sýningum á Mac- beth eftir Verdi. í lok október verður hann á stórtónleikum í Barbican Center í London en í nóvember koma hann og Sigríður Ella Magnúsdóttir til Islands og syngja á nokkrum sýningum Aidu í íslensku óperunni. Garðar mun síðan fara aftur utan þar sem hann er bókaður í Othello í Árósum til jóla. Færeysk loðnuskip á Siglufirði: Ráðuneytið hafnar beiðni SR um undanþágu til að bræða af lann Sjávarútvegsráðuneytið hefur hafnað þeirri málaleitan Sildar- verksmiðju ríkisins á Siglufirði, að undanþága verði gefin til löndunar úr þremur færeyskum loðnuskipum, sem nú liggja í höfn á Siglufirði. Að sögn Arna Kolbeinssonar, ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, er síst talin ástæða til að veita und- anþágu í þessu tilviki, þar sem loðnuveiðar Færeyinga séu af sameiginlegum stofni, sem ekki hefur náðst samkomulag um. Tvö færeysku loðnuskipanna komu inn til Siglufjarðar í gær vegna bilunar og nótaskemmda, en hið þriðja kom fyrr í vikunni með bilaða nót. Samtals eru þau með hátt í 3.000 tonn af loðnu og að sögn talsmanna Síldarverksmiðja ríkisins var verksmiðjan á Siglufirði reiðubúin að he§a bræðslu á farmi skipanna. Engar ákvarðanir lágu fyrir um verð fyrir farminn enda þurfti fyrst að leita til sjávarútvegs- ráðuneytisins varðandi undanþágu á lögum frá 1922, sem banna land- anir erlendra fiskiskipa í íslenskum höfnum. Því var hafnað af hálfu ráðuneytisins eins og áður segir. Ámi Kolbeinsson sagði að stefna ráðuneytisins væri að veita ekki undanþágur frá þessum lögum, þegar um væri að ræða veiði á stofnum sem væru sameiginlegir með Islandi og öðrum þjóðum, sem ekki hefur náðst samkomulag um. „Færeyingar eru að veiða loðnu samkvæmt samningum við Græn- lendinga," sagði Ámi. „Við höfum ekki náð samkomulagi við Græn- lendinga um hvemig skipta skuli loðnukvótanum og þar af leiðandi sjáum við ekki ástæðu til að veita undanþágu frá lögunum í þessu til- viki. Með því væri ráðuneytið að auðvelda erlendum aðilum að veiða fiskistofna sem eru sameiginlegir með íslandi og öðrum og ekki hefur náðst samkomulag um. Allt sem veitt er af grænlenska hlutanum er dregið frá, áður en þessu er skipt á milli okkar og Norðmanna, þann- ig að hvert tonn sem Færeyingar veiða þýðir 850 kílóa minni veiði Morgunblaðið/Matthías Annað færeysku skipanna á Siglufirði i gær. hjá íslenskum skipum. Það er því síst ástæða í þessu tilviki að veita undanþágu frá lögunum. Hins veg- ar heimilum við að sjálfsögðu bátunum að koma í land og skera úr nótunum," sagði Árni Kolbeins- son, ráðuneytisstjóri. Mjólkur- fræðingadeilan: Samið eftir 42 stundafimd Mjólkurfræðingar skrif- uðu í gærmorgun undir fastlaunasamninga, sem gilda út þetta ár, eftir 42 stunda langa samningalotu. Vinna var með eðlilegum hætti í mjólkurstöðvunum í gær. Fundur mjólkurfræðinga og viðsemjenda þeirra hófst klukkan 17 á miðvikudag og stóð linnulaust þangað til klukkan 11 í gærmorgun að samningar voru undirritaðir. Eftir það aflýstu mjólkurfræð- ingar aðgerðum sínum, en þeir höfðu neitað að vinna yfirvinnu og að vaktir væru færðar til. Horfði í óefni með mjólkur- vinnslu af þeim sökum. Atkvæði verða greidd um samningana á í dag og á morg- un. Ekki var hægt að afla upplýsinga um innihald samn- inganna í gær. Kanaríklúbburinn lagður niður: Samvinnuferðir o g Utsýn með samstarf um Kanaríeyjaferðir FERÐASKRIFSTOFURNAR Út- sýn og Samvinnuferðir/Landsýn munu á vetri komanda standa sameiginlega að leiguflugi til Kanaríeyja. Lýkur þar með fimmtán ára sögu Kanaríklúbbs- ins, sem á undanförnum árum hefur verið stærsti aðlinn í sölu ferða til Kanaríeyja. Ferðaskrif- stofurnar gengu frá samstarfs- samningi sínum í þessari viku og er sala í ferðimar þegar hafin. Kanaríklúbburinn hóf starfsemi sína fyrir um fímmtán árum og hefur undanfarið verið rekinn í sam- vinnu Flugleiða, Úrvals, Samvinnu- ferða/Landsýnar og Utsýnar, en umsjón með rekstrinum var í hönd- um Flugleiða, sem auk þess flaug allt leiguflug fyrir klúbbinn. Illa mun hafa tekist til með rekstur klúbbsins síðastliðinn vetur og varð tap á honum. Ferðaskrifstofurnar hafa lagt áherslu á breytt fyrir- komulag Kanaríeyjaferða í ljósi slæmrar reynslu á síðastliðnum vetri. í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu skrifstofanna segir síðan að Samvinnuferðir og Útsýn hafí talið Kanaríeyjaklúbbinn vera kominn í sjálfheldu og þær sjái sig tilneydda til að skera á þann hnút sem myn- daðist, þar sem ekki náðist sam- komulag um breytt skipulag. Þeir Helgi Jóhannsson og Helgi Magnús- son, forstjórar ferðaskrifstofanna tveggja telja að slíkur rekstur sem þessi sé betur kominn í höndum ferðsskrfstofanna en Flugleiða. „Hjá báðum fyrirtækjunum er starfsfólk, sem hefur áratuga reynslu í skipulagningu leigufluga. Helsti galdurinn við að þessar ferð- ir skiii arði, þrátt fyrir hagstæð verð, er mjög góð nýting á gisti- Morgunblaðið/Þorkell Helgi Jóhannsson forstjóri Samvinnuferða/Landsýn og Helgi Magn- ússon forstjóri Útsýnar. Hanastél í sovéska sendiráðinu: Létu boð berast um áhuga á leiðtogafundi hér á landi í framhaldi af því kom ályktun frá þingflokki Borgaraflokksins SENDIMENN í sovéska sendi- ráðinu á íslandi létu það berast út í hanastéli, sem haldið var þar fyrir síðustu helgi, að Sovétmenn vildu gjarnan að fyrirhugaður leiðtogafundur Gorbachevs og Reagans yrði hér á íslandi í haust. í kjölfar þessa barst ríkis- stjórninni ályktun frá þingflokki Borgaraflokksins með óskum um að ríkisstjómin komi því á fram- færi við æðstu ráðamenn í Bandaríkjunum og Sovétríkjun- um að undirritun væntanlegra friðarsamninga fari fram á ís- landi. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að fyrir síðustu helgi hefði verið haldið hanastél í sovéska sendiráðinu og þar hefði því verið skotið að ýmsum aðilum að Sovét- stjómin vildi gjaman halda þennan leiðtogafund á íslandi. Sumir gest- anna voru beðnir um að koma þessum skilaboðum áleiðis til íslenskra stjómvalda en með fylgdi að Sovétstjómin vildi hvorki taka þetta sjálf upp við Bandaríkjamenn né íslensk stjómvöld. „Mér fínnst heldur óviðkunnan- legt af hálfu Sovétmanna að láta þessi skilaboð koma fram með þess- um hætti," sagði Þorsteinn. „Álykt- un Borgaraflokksins var lögð fram í ríkisstjóminni í gær en við sáum enga ástæðu til að blanda okkur inr> í samninga stórveldanna um fund- arstað þótt við hefðum að sjálfsögðu tekið þeim opnum örmum hefðu þeir leitað til okkar.“ Þorsteinn sagðist síðan telja bráðabirgðasamkomulag Sovét- manna og Bandaríkjamanna um afvopnun og fyrirhugaðan leið- togafund mjög merkilegan áfanga sem markaði tímamót í samskiptum stórveldanna. „Ég er ekki í vafa um að þetta eykur mjög bjartsýni manna um að það verði hægt að stíga önnur og stærri skref til að ná því markmiði að útrýma kjam- orkuvopnum og draga úr vígbúnaði. Það er auðvitað sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur íslendinga að þessi niðurstaða fæst í beinu framhaldi af leiðtogafundinum á síðasta ári og í raun og veru sýnist mér að miðað við þær umræður sem þá áttu sér stað hefði þetta sam- komulag getað orðið að veruleika hér í Reykjavík, ef Sovétmenn hefðu þá ekki komið með þennan fleyg sem var geimvamaráætlunin. En eigi að síður eru samningamir nú ignaðarefni og sýna að vesturveld- ;n hafa haldið rétt og skynsamlega á þessum málum. Sú stefna hefur í raun og veru tryggt þennan árang- ur núna og fækkun kjamorkuvopna er ekki lengur aðeins hugsjón held- ur raunhæfur möguleiki," sagði Þorsteinn Pálsson. rými. Starfsfólk okkar er þraut- reynt í þessari skipulagningu." Vöktu þeir athygli á að Flugleiðir sæju áfram um leiguflugið, þannig að þeir væru ekki að missa spón úr aski sínum. Sala í ferðimar væri opin öllum ferðaskrifstofum og söluskrifstofum flugfélaganna. Þegar hefur verið samið við Flug- leiðir um að annast flugið til Kanaríeyja, þó reyndar eigi eftir að ganga formlega frá samningn- um. Fyrsta flugið verður þann 6. nóvember og síðan með reglulegu miliibili fram í apríl. Samvinnuferðir/Landsýn og Út- sýn eru tvær stærstu ferðaskrifstof- ur iandsins og hafa háð harða samkeppni. Vekur það því nokkra athygli að þau skuli hefja slíkt sam- starf. Þeir nafnamir vom spurðir hvað kæmi til. „Vissulega höfum við verið í mikilli samkeppni, en sú samkeppni hefur ávallt verið heiðar- leg. Samkeppni er nauðsynleg, en það verður líka að reka fyrirtækin af skynsemi, því það eru takmörk fyrir öllu. Kanaríeyjaferðimar em dæmigerðar að þessu leyti. Hér er um lítinn rúmlega þúsund manna markað að ræða og tveir aðilar geta ekki haldið uppi arðbæm flugi þangað á hagstæðu verði. Þess vegna völdum við samstarf sem heldur verði ferðanna niðri. Fmm- kvæði okkar hefur nú þegar skilað þeim árangri, að nánast engin hækkun verður á fargjöldum í vetur frá fyrra ári.“ Aðspurðir um hvort reikna mætti með frekara sam- starfí fyrirtækjanna á næstunni sögðu forstjóramir, að ekkert væri ákveðið í þeim efnum. Við emm fyrst og fremst í harðri samkeppni og ekkert lát verður á henni. En þetta dæmi um samstarf Útsýnar og Samvinnuferða sýnir að á þess- um markaði gerast óvænt atvik og það hratt." í dag i.pgrtnB wmwmMmur Vil UNBLADSIN í -, 1 /; IGVÍ *yf-. - Jj í'. i S f • :y *«. mm TT? 4-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.