Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Ólafur Laufdal reisir
Hótel Island
HÓTEL ísland verður nafnið á nýja hótelinu, sem
Ólafur Laufdal er að reisa við Armúla 9 í
Reykjavík, en ráðgert er að hóelið verði fullbúið
næsta vor. Stærsti skemmtistaður landsins, sem
verður í þessu nýja hóteli, mun hins vegar opna
mun fyrr, eða skömmu fyrir næstu áramót, ef
áætlanir standast. Hótelbyggingin verður 9 hæðir,
með kjallara, alls um 35 þúsund rúmmetrar að
stærð og 10 þúsund fermetrar að gólffleti, þar af
verður skemmtistaðurinn um einn þriðji hluti
gólfflatar. Áætlað er að skemmtistaðurinn geti
rúmað hátt í 1.200 matargesti í einu, en alls mun
staðurinn taka um 2.500 til 2.700 manns. í hótelinu
verða að auki þrír aðrir veitingasalir og samtals
verða barirnir 16 talsins. Þegar þessi bygging er
komin i gagnið mun Ólafur Laufdal reka fjögur
veitingahús í Reykjavík: Broadway, Hollywood,
Borgina og nýja staðinn,hann verður með tvö
hótel í Reykjavík: Hótel ísland og Hótel Borg, en
að auki rekur hann stærsta skemmtistað utan
Reykjavíkur, Sjallann á Akureyri og eitt hótel
þar, Hótel Akureyri. Er þá ótalin nýstofnuð Ferða-
skrifstofa Reykjavíkur og bílaleiga henni tengd,
sem Ólafur hóf rekstur á síðastliðið vor. Það er
því óhætt að segja að skammt sé stórra högga á
milli hjá Ólafi og lék Morgunblaðinu forvitni á að
kanna nánar fyrirætlanir þessa stórtæka athafna-
manns og grennslast um leið fyrir um hina nýju
byggingu, sem nú er að rísa við Ármúlann, og þá
starfsemi sem þar verður rekin.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ólafur Laufdal á efstu svölum nýja skemmtistaðarins. Neðst má sjá
hluta af dansgólfinu.
Morgunblaðið/RAX
Loftmynd af byggingarframkvæmdum við Hótel ísland. Enn eiga eftir að rísa þar fimm hæðir.
„Þetta nýja hótel er lokaáfanginn
í þeirri þjónustukeðju, sem ég hef
verið að byggja upp að undan-
fomu,“ sagði Olafur er hann var
spurður um tildrög þess að hann
fór út í að reisa hótelbyggingu og
skemmtistað af þessari stærð. „Með
þessu get ég boðið allt í einum
pakka. Ferðaskrifstofan skipulegg-
ur ferðir, gistingu og skemmtun
ásamt bílaleigubfl hér innanlands
og munu yfir tuttugu umboðsmenn
víðsvegar um land starfa að mark-
aðsmálum. Með þessum hætti er
hægt að ná verðinu niður og því
ódýrara fyrir fólk að kaupa slíkan
pakka, en að ætla sér að skipu-
leggja slíka ferð upp á eigin spítur.
Við munum einnig skipuleggja ferð-
ir til útlanda og erum nú að vinna
í að koma okkur upp markaðssam-
böndum við ferðaskrifstofur erlend-
is. Þannig fáum við fólk í gegnum
þá, og þeir fólk í gegnum okkur.
Þetta er sem sagt alhliða þjónusta
inn og út úr landinu, og einnig utan
af landi til Reykjvíkur og svo aftur
héðan til Akureyrar."
Býður upp á ótrúlega
möguleika
En hvers vegna nýtt hótel og
nýjan skemmtistað? Nú rekurðu
fyrir stærsta skemmtistað í borg-
inni auk tveggja smærri, þú ert
með Hótel Borg og fyrir norðan
Sjallann og Hótel Akureyri. Ertu
ekki kominn í hörku samkeppni við
sjálfan þig?
„Það er von að þú spyrjir. Auðvit-
að er þessi markaður ekki ótak-
markaður, ég geri mér alveg grein
fyrir því. En sannleikurinn er sá
að ég tel vera þörf fyrir skemmti-
stað af þessari stærð. Það er enginn
staður á landinu í dag sem getur
tekið jafn stóra hópa í mat og boð-
ið um leið upp á sýningu í hæsta
gæðaflokki. Auk þess verður þama
hægj; að setja upp stórar samkom-
ur, flokksþing stjómmálaflokka,
ráðstefnur og annað slíkt.Ég lagði
dæmið niður fyrir mér og komst
að raun um, að nýr skemmtistaður
einn og sér myndi ekki ganga upp.
Hins vegar myndi hótel og
skemmtistaður saman geta styrkt
hvort annað og ég held að með
þessu fyrirkomulagi sé eini mögu-
leikinn að láta dæmið ganga upp.
Hvað varðar samkeppnina við
sjálfan mig þá er ég ekki svo hrædd-
ur við það. Ég mun auðvitað reyna
að haga starfseminni á þessum
stöðum með þeim hætti að hún rek-
ist ekki á og að þeir höfði til ólíkra
hópa. Það er því vel hugsanlegt að
einhver breyting verði á rekstri
Broadway eftir áramót. Þessi nýi
staður býður hins vegar upp á miklu
meiri möguleika, alveg ótrúlega
möguleika. Aðalsalurinn er byggður
upp á nokkrum þrepum með svöl-
um, sem hægt er að loka af eftir
því hversu margir eru í húsinu. Það
er því enginn hætta á að menn fái
víðáttubijálæði þótt staðurinn verði
ekki alltaf alveg smekkfullur. Þegar
það gerist hins vegar er hægt að
opna inni í annan minni sal sem
tekur um 250 manns í sæti, en
veggimir milli þessara sala eru
færanlegir með rafeindabúnaði
'þannig að hæjgt er að opna á milli
eftir þörfum. I minni salnum verður
einnig dansgólf þannig að hægt
verður að leigja hann út fyrir minni
einkasamkvæmi, fundi eða ráð-
stefnur.
í sjálfur hótelinu verða tveir veit-
ingasalir, sem einnig verða opnir
fyrir aðra en hótelgesti. Annar
þeirra verður á efstu hæð hótelsins
með útsýni yfir sundin og borgina.
í hótelinu verða 120 herbergi mis-
munandi stór, þar af 6 svítur á efstu
hæðinni. Þá verðum við með alla
almenna þjónustu við hótelgesti svo
sem hárgreiðslustofu, líkamsrækt,
nudd, saunu og þess háttar. Ferða-
skrifstofa verður til húsa í hótelinu
og þaðan verða skipulagðar skoðun-
arferðir um borgina og út á land.
Hótelið verður í hæsta gæðaflokki
og ég held að með þessari þjón-
ustukeðju eigi dæmið að geta
gengið upp,“ sagði Ólafur.
Talandi um þjónustukeðjuna, það
vantar eiginlega ekkert nema flug-
félag til að flytja gestina á milli.
Má búast við því að næsta skrefið
verði að stofna flugfélag?
Ólafur neitar því eindregið en
bætir síðan við: „Að visu á ég hlut
í Amarflugi, en það kemur þessu
máli ekki við. Nei, eins og ég sagði
er þetta lokaáfanginn í þessari þjón-
ustukeðju og ég læt þetta duga, -
í bili að minnsta kosti.
Hef verið heppinn með
samstarfsfólk
Ólafur hefur nú um 500 manns
í vinnu, margir þeirra í hlutastörf-
um að vísu, og með Hótel íslandi
reiknar hann með að 150 til 200
manns bætist við. Að lfkindum er
hann því orðinn einn af stærstu
atvinnurekendum landsins í einka-
rekstri. Upphafið að umsvifum hans
má rekja til þess er hann opnaði
skemmtistaðinn Hollywood fyrir
tæpum tíu árum. Það er því von
að sú spuming vakni hvemig hann
hafi farið að þessu?
„Þessari spumingu er eiginlega
Útlitsteikning af austurhlið Hótel íslands. Á efstu hæðinni, til vinstri, verður veitingastaður. Fyrir miðju, með bogadregnu gluggunum,
verður annar veitingastaður og fyrir ofan hann yfirbyggður gangur með gleri á milli hótelálmanna.