Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Gary Bow-
man nær
samstillingu
við anda Jó-
hannesar
postula á
Shasta-fjalli í
Kaliforníu
þann 16.
ágúst sl.
Undur og stórmerki und-
ir Jökli - og annarsstaðar
Það hefur vonandi ekki farið
fram hjá neinum að það voru
merk tímamót í sögu mannkyns
þann 16. ágúst síðastliðinn, en það
var m.a. haldið upp á þau undir
Jökli á mótinu Snæfellsás ’87. Þann
dag hóf mannkynið glænýtt 5.125
ára tímaskeið - að því að fróðir
menn hafa reiknað út eftir tímatali
hinna fomu Maja-indíána - sem
mun einkennast af allt öðrum öflum
og áhrifavöldum en síðasta 5.125
ára skeið; þar sem gekk reyndar á
ýmsu.
Þessi tímatalsfræði hafa vakið
þó nokkra athygli hér á iandi, sem
og annars staðar, og því þykir Fólki
í fréttum rétt að kasta nokkru ljósi
á höfund þessarrar kenningar. Sá
heitir Jose Arguelles, en hann er
48 ára gamall listamaður og sagn-
fræðingur, búsettur í borginni
Boulder í Colorado-fylki í Banda-
ríkjunum. Hann lýsir kenningum
sínum í bók sem heitir „The Mayan
Factor", og hefur selst í tugþúsund-
um eintaka. Þar sýnir Arguelles
m.a. fram á að nauðsyn þess að
VESTURGÖTU 6
SIMI 177 59
HELGARMATSEÐILL
KVÖLDVERÐUR
18.—20. seDtember
Forrcttur
Hvítlauksristaður bcitukóngur og
hörpuskcl mcð scllcrýsósu og smjör-
deigssnittu.
Aðalréttur 1
Heilsteikt nautafille með ristuðu
humarkjöti, fersku grænmeti og
rauðvínssósu eða ofnsteikt hafsúla
mcð fcnnckclsósu, blómkáli og rifs-
bcrjasultu.
Eftirréttur
Fcrskt ávaxtasalat mcð Grand
Marnier líkjör og þeyttum rjóma.
Kr. 1.940,-
Glæsilegur sérrcttaseði 11!
leiðrétta hreyfitíðni jarðar, sem er
7,8 Hertz, með því að 144.000
menn samstilli hugi sína árið 2012,
þegar svokölluð „vetrarbrautaöld"
mun ganga í garð. Alla þessa speki
les Arguelles úr tímatalsvísindum
Maja, nema það sem hann hefur
eftir verunni Treadwell frá sólkerf-
inu Actara, sem stundum hringir
heim til hans.
Auðvitað eru til efasemdarmenn
sem bera brigður á þessa speki,
eins og t.d. mannfræðingurinn og
Maja-sérfræðingurinn Michael Coe,
sem er prófessor við Yale-háskóla,
en hann lýsir kenningum Arguelles-
ar sem „botnlausri þvælu“. Arguel-
les er nokk sama um slíka gagnrýni,
enda veit hann að allar byltingar-
kenndar vísindakenningar hafa
fengið mikinn mótbyr til að byija
með; og svo segir fjöldi áhangenda
hans, og það fé sem honum hefur
græðst af útgáfustarfsemi sinni,
sína sögu.
Hápunkturinn á ferli Arguellesar
hingað til var svo auðvitað þegar
þúsundir manna komu saman á
tímamótadaginn 16. ágúst sl. til að
ná „andlegri samstillingu" um alla
jörð, eins og kenningar hans mæla
með. Það var víðar haldið upp á
þessi merku tímamót en undir
Jökli, því menn komu saman á
mörgum helstu orkumiðstöðum
jarðar þennan dag; svo sem Stone-
henge, pýramídunum í Egyptalandi,
Inka-borginni Machu Picchu í Perú,
og Woodstock í New York, þar sem
vagga hinnar fornu hippa-menning-
ar stóð.
Sumir höfðu búist við undrum
og stórmerkjum á tímamótadaginn,
svo sem jarðskjálftum, fljúgandi
furðuhlutum, og endurkomu indíá-
naguðsins Quetzalcoatl. Ekkert
varð úr slíku, enda hefur Arguelles
sjálfur sagt að tlmamótin boði fyrst
og fremst breytingar á andlega
sviðinu, og að menn finni það eink-
um á slíkum fyrirbærum eins og
að eiga allt í einu miklu auðveldara
með að ná sambandi við líf á öðrum
hnöttum, og að sjá inn í framtíðina.
Nokkuð bar á slíku, einkum í
Bandaríkjunum, og t.d. flykktist
COSPER
C/fli
Cjepcr
Við höfum ekki lengur efni á því að þú reynir að fegra
María Teresa (t.v.) ásamt sonun-
um þremur.
Hinrik prins og stórhertoginn
Jóhann ræðast við. Prinsinn er
meiddur á fæti, og þess vegna
er hann í öðrum sokknum.
Jose Arguel-
les, höfundur
samstillingar-
kenningar-
innar, reynir
að stilla hljóð-
færi sitt í
samhljómun
við vetrar-
brautirnar.
múgur og margmenni til að sjá
engil sem birtist á óútskýranlegan
hátt á sjónvarpsskerminum hjá
Diane Boettcher í Mount Shasta
City í Kalifomíu, sem er rétt hjá
Shasta-fjalli, einni af orkumiðstöðv-
um jarðar, þar sem „samstillingar-
fólk“ kom saman.
Það er auðvitað ekki nema eðli-
legt að örgustu efahyggjumenn taki
tfmatalsspeki og samstillingarkenn-
ingu Arguellesar með nokkurri
varúð; en tíminn á eftir að leiða
sannleikann í ljós, og þann 16.
ágúst eftir 5.125 ár geta menn litið
um öxl og séð hvort að hin andlega
samstilling undir Jökli og víðar
núna síðasta mánuð hafi orðið til
þess að mannkyninu hafi famast
betur en á næsta 5.125 ára skeiði
þar á undan.