Morgunblaðið - 29.09.1987, Síða 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
219. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þorsteinn
hittir
Carrington
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráð-
herra var í höfuðstöðvum Atlants-
hafsbandalagsins i Briissel í gær og
hitti þá meðal annarra Carrington
lávarð, framkvæmdastjóra banda-
lagsins. „Við ræddum mest um
útrýmingu meðaldrægu eldflaug-
anna í Evrópu," sagði Þorsteinn að
loknum fundinum með Carrington.
„Við vorum sammála um, að sam-
komulagið um eldflaugarnar sýndi,
að stefna Atlantshafsbandalagsins
væri að skila árangri. Nú þarf að
horfa fram á við og huga að leiðum
til aukins öryggis." Forsætisráð-
herra sagði, að einnig hefði verið
rætt almennt um þátttöku íslands í
bandalaginu og fram hefði komið,
að einhliða yfirlýsingar um kjarn-
orkuvopnalaus svæði hefðu ekkert
gildi. Þá væri alls ekki á döfinni að
auka vígbúnað á Atlantshafi sam-
hliða fækkun eldflauga á meginlandi
Evrópu.
í dag fer Þorsteinn Pálsson til
höfuðstöðva Evrópuherstjórnar Atl-
antshafsbandalagsins í Mons í
Belgíu og hittir þar yfirmann henn-
ar, John Galvin, hershöfðingja.
Ráðherrann kemur til landsins á
miðvikudag.
Mesta iðnaðarhneyksli Noregs í uppsiglingu?:
Olíuhreinsunarstöðín
60% dýrari en áætlad var
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara MorgunblaðsinB.
TALIÐ er að I uppsiglingu sé mesta iðnaðarhneyksli Noregs, en um I hana. Umframkostnaðurinn er nú I tagi hefur verið til umræðu í áratug
helgina var frá því skýrt að olíuhreinsunarstöð ríkisolíufélagsins sá sami og nýr alþjóðaflugvöllur er en ekki komist af umræðustiginu
Statoil í Mongstad fyrir utan Bergen muni kosta að minnsta kosti I talinn kosta. Flugvallargerð af því | þar sem hún hefur þótt helzt til dýr.
3,8 milljörðum norskra króna meira en ráð var fyrir gert. _
Gorba-
chev
kemur
fram
Moskvu, Reuter.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, hefur ekki sézt
opinberlega frá 7. ágúst en á því
verður breyting í dag, þriðjudag,
þegar hann tekur á móti franskri
sendinefnd, að sögn sovézkra
embættismanna.
Fjarvera Gorbachevs varð
kveikja að kviksögum þess efnis að
hann væri annað hvort veikur eða
í pólitískri einangrun. Embættis-
menn sögðu í lok síðustu viku að
hann væri í fríi og við beztu heilsu.
í frönsku sendinefndinni eru meðal
annars Pierre Mauroy, fyrrum for-
sætisráðherra, og Louis Mermaz,
fyrrum formaður franska jafnaðar-
mannaflokksins. Sovézka sjónvarp-
ið staðfesti í gærkvöldi að það
myndi sýna myndir frá fundinum.
Bush lýsti
stuðningi
við Samstöðu
Varsjá, Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandarikjanna, lýsti óbeinum
stuðningi við Samstöðu, hin út-
lægu óháðu verkalýðsfélög, í
pólska sjónvarpinu í gærkvöldi.
Bush sagði enn eima eftir af tor-
tryggni og biturleika vegna setn-
ingu herlaga 1981.
„Það er ekki mitt hlutskipti að
segja ykkur fyrir verkum. En það
varð minni þjóð og mörgum öðrum
til happs að þær skyldu virða mann-
réttindi, og réttinn til að stofna
óháð og sjálfstæð samtök, sem
meðal annars stóðu vörð um rétt
verkamanna," sagði Bush.
Sjá ennfremur á bls. 24.
Árið 1984 samþykkti Stórþingið
einróma að heimila Statoil bygg-
ingu stórrar olíuhreinsunarstöðvar
í Mongstad til fullvinnslu Norður-
sjávarolíu. Kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á 6,8 milljarða norskra
króna, eða um 40 milljarða
íslenzkra. Um helgina var hins veg-
ar skýrt frá þvi að hún yrði miklu
dýrari, myndi kosta 10,6 milljarða
norskra, eða 62,5 milljarða
íslenzkra.
Stöðin verður því um 60% dýrari
en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Með þessu er sagan ekki öll sögð
því nú bendir flest til þess að stöð-
in verði rekin með miklu tapi vegna
lágs olíuverðs. Hún verður tilbúin
á næsta ári.
Á sínum tíma lagðist nefnd sér-
fræðinga gegn byggingu stöðvar-
innar en Stórþingið hirti ekki um
álit hennar. Drógu þeir kostnaðar-
áætlunina í efa og sögðu stöðina
verða óarðbæra ef kostnaður færi
30% fram úr áætlun. Nú er raun-
verulegur kostnaður kominn 60%
fram úr áætlun og talið að það hlut-
fall eigi jafnvel eftir að hækka.
Arve Johnsen, forstjóri Statoil,
varðist allra frétta um helgina þrátt
fyrir að stjómmálamenn krefðu
hann skýringa. Faldist hann á hót-
eli í Vínarborg og lét aðeins hafa
eftir sér var að hann myndi ekki
segja af sér.
Per Christain Foss, talsmaður
Hægri-flokksins í iðnaðarmálum,
krafðist í gær skýringa á hvers
vegna olíuhreinsunarstöðin væri
orðin svo miklu dýrari en gert var
ráð fyrir. Hann sagði eðlilegt að
Johnsen yrði vikið úr starfí og að
tímabært væri að selja Statoil eða
hluta þess einkaaðilum.
Willy Olsen, blaðafulltrúi Statoil,
sagði að stjómendur fyrirtækisins
hefði ekki haft yfírsýn yfír fram-
kvæmdirnar í Mongstad og ýmsir
verkþættir orðið talsvert dýrari en
ætlað var. Taldi hann að kostnaður
ætti enn eftir að aukast.
Sérfræðingar leiddu að því getum
að stjómendur Statoil hefðu vísvit-
andi látið vanreikna áætlaðan
byggingarkostnað stöðvarinnar til
þess að fá þingið til að samþykkja
Kólumbía:
137 menn grófust undir
Bogota, Reuter.
SKRIÐUFÖLL urðu að
minnsta kosti 137 manns að
bana i fátækrahverfi Medell-
in, næststærstu borg
Kólumbíu, á sunnudag. Ótt-
ast var að talan ætti eftir
að hækka.
Aurskriðan féll í kjölfar mik-
illa rigninga. Tólf metra þykkt
aurlag gleypti hverfið svo aðeins
sá í húsþök. Hætta var talin á
að fleiri skriður féllu.
Skelfíngu lostið reyndi nær-
statt fólk að grafa upp með
bemm höndum þá sem grófust
undir.
Meðal þeirra sem enn var
saknað vom 30 fermingarböm.
AP
Angistin leynir sér ekki hjá fólkinu, sem missti ættvini er aur-
skriður grófu fátækrahverfi í Medellin, næststærstu borg
Kólumbíu.