Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 15
, MORGUNBLAÐIÐ,. ÞRIÐJUDAGURi 29^ SEPTEMBER ^1987
^ri5
heimamanna, aðstöðu í landi
og fleira, að túnfiskveiðar og
humarveiðar verði aðalveiði-
skapur Cabo Verde-búa á
næstu árum, en lítið verði veitt
af botnlægum fisktegundum
við óbreyttar aðstæður.
c. Veiðiskapur sá, sem nú er
fyrst og fremst stundaður
við Cabo Verde á stærri fiski-
skipum, er þess eðlis að bera
ekki uppi mikla fjárfestingu
eða rekstrarkostnað í sjávarút-
vegi, hvorki á_ rannsókna- né
rekstrarsviði. Ástæðurnar eru
einkum að fiskistofnamir eru
smáir, veiðiaðferðir hægvirkar,
mest krókveiðar, smánótaveið-
ar og veiðar með humargildr-
um. Veiðin er mjög árstíða-
bundin, þannig að oft er ekki
um samfelldan rekstur að ræða
á ársgrundvelli fyrir stærri
fiskiskip. Veiðar á botnlægum
fisktegundum með handfærum
og stórvirkum veiðarfæmm
gæti hugsanlega bætt úr þessu
ástandi."
Það má vel vera að einhveijir
hafí líka orðið fyrir vonbrigðum
með þennan áfanga þróunarsam-
vinnu Islands og Cabo Verde. Sumir
hafa eflaust gert sér vonir um að
hlutverki okkar í þróun sjávarút-
vegs Grænhöfðaeyja væri þar með
lokið. en sagan sýnir að þróun tek-
ur tíma og það er augljóst að
þróunarsögu sjávarútvegs á Cabo
Verde er ekki lokið. Sannreyna
þarf betur þá fiskveiðimöguleika
sem fyrir hendi eru á botnlægum
físktegundum við Cabo Verde. Og
síðast en ekki síst er lokaáfanginn
eftir; að yfirfæra nauðsynlega
þekkingu og færni til að Cabo
Verde-íbúar geti sjálflr veitt, unnið
og flutt út áðurnefndar botnflskteg-
undir með eigin mannafla og
tækjum.
Ef menn viðurkenna þessar stað:
reyndir, og það hefur stjórn ÞSSÍ
gert, ásamt því að taka mið af sam-
starfssamningi Islands og Cabo
Verde, þá er deginum ljósara að
íslendingar hljóta að veita aðstoð
til að þróa sjávarútveg Cabo Verde
lengra áleiðis. Því var ákveðið að
undirbúa nýtt verkefni, nýjan
áfanga, með því m.a. að senda
„Feng" suður aftur.
Síðara „Fengstíma-
bilið“ að hefjast
Það verkefni sem nú hefur verið
ákveðið að ýta úr vör er framhald
fyrri samstarfsverkefna og þriðja
skrefið sem tekið er í því markmiði
af efla fískveiðar á Cabo Verde.
Verkefnið byggir á niðurstöðum úr
fyrri verkefnum, en eins og áður
er getið eru til á landgrunni Cabo
Verde ýmsar botnfisktegundir, sem
nú eru lítið sem ekkert veiddar, en
möguleikar eru á að veiða, vinna
og selja á erlendum mörkuðum.
Veiðimöguleikar • til lengri tíma
verða reyndir, m.a. hvort þessar
tegundir eru veiðanlegar allan árs-
ins hring eða ekki. Það á einnig
að reyna á vinnsluna í landi, hvort
hún ræður við að taka á móti veru-
legu magni af fiski og vinna á
fullnægjandi hátt til útflutnings.
Þá verður látið reyna á erlenda
markaði fyrir þessar afurðir, þ.e.
sölumöguleika þeirra. Verkefnið
mun ennfremur varpa ljósi á hag-
kvæmni þess að hagnýta fyrmefnda
fískistofna. Aflað verður mikil-
vægra og fjölþættra upplýsinga um
alla þætti þessa verkefnis sem síðar
meir geta orðið grundvöllur að ák-
vörðunum um nýtingu þessara
fískistofna í framtíðinni.
Stefán Þórarinsson, verkefnis-
stjóri, hefur unnið framkvæmda-
áætlun hins nýja áfanga. Hann
segir m.a. um framkvæmdina:
„Þrátt fyrir að þetta nýja botn-
fískveiðiverkefni sé mun afmark-
aðra við ákveðin verk en fyrri
fískveiðiverkefni, hefur verið reynt
að gera áætlanir sveigjanlegar í
samræmi við eðli fiskveiða, enda
er aldrei á vísan að róa, þegar físk-
veiðar eru annars vegar.
Verkefriinu er deilt niður í nokkra
verkþætti, sem saman mynda heild-
stætt verkefni, byggt á fyrri
reynslu. Helstu verkþættirnir eru:
— Veiðar með botnvörpu
— Veiðar með dragnót
— Veiðar me handfærum
— Fiskvinnsla, frysting
— Fiskirannsóknir
— Markaðsstarfsemi, sölustarf-
semi og rannsóknir
— Nýting aukaafla, athuganir
og tilraunir
— Y fírfærsla þekkingar og færni
til Cabo Verde-búa.“
Uppboð á eigum Siöstjöniunnar hf.
Tveir vörubílar á
nauðungaruppboði
Keflavfk.
TVEIR vörubílar, eign hrað-
frystihúss Sjöstjörnunnar hf.,
voru seldir á nauðungaruppboði
í Keflavík á föstudaginn. Sjö-
stjarnan ásamt öðrum eignum
var slegin Útvegsbankanum hf.
á 85 milljónir á þriðjudaginn, en
vörubílarnir fóru á 750 þúsund
krónur báðir.
Útvegsbankinn eignaðist annan
bílinn sem var gamail Benz, hann
fór á 150 þúsund krónur. Hin bif-
reiðin var nýlegri og var slegin
einstaklingi í Keflavík eftir nokkra
samkeppni frá Útvegsbankanum á
600 þúsund krónur.
Vinnslu í frystihúsi Sjöstjörnunn-
ar var hætt þegar í stað eftir
nauðungaruppboðið. Starfsfólkið
fékk laun sín greidd, en ekki hefur
verið ákveðið hvert áframhald verð-
ur. Togaramir Dagstjarnan og
Keilir sem lagt hafa upp hjá Sjö-
stjörnunni munu selja afla sinn hjá
Fiskmarkaði Hafnarfjarðar.
- BB
450 reið- og slát-
urhross flutt út
FÉLAG hrossabænda og búvöru-
deild SÍS standa fyrir útflutningi
reið- og sláturhrossa með hrossa-
flutningaskipi fyrir miðjan
október. Gert er ráð fyrir að með
skipinu fari 450 hross, 100—150
reiðhestar og 300—350 slátur-
hross.
Þessir aðilar hafa staðið fyrir
hrossaútflutningi með þessum hætti
í nokkur ár og gengið vel. Hefur
útflutningur sláturhrossanna komið
í veg fyrir birgðasöfnun á hrossa-
kjöti á innanlandsmarkaði. Stéttar-
samband bænda og Framleiðsluráð
landbúnaðarins hafa sent frá sér
sérstaka tilkynningu þar sem bænd-
ur eru hvattir til að selja fullorðin
hross til útflutnings með þessu
skipi.
Kostnaðaráætlanir
Engin leið er að fara hér ofan í
framkvæmdaáætlanir fyrir verkið
eða einstaka verkþætti í smáatrið-
um. Óhætt er þó að fullyrða, að
áætlanir hafa aldrei verið jafn
vandaðar fyrir einstakar fram-
kvæmdir á vegum ÞSSÍ. Þar er
auðvitað byggt á reynslu af fyrri
áföngum þessarar þróunarsam-
vinnu íslands og Grænhöfðaeyja.
Samband hefur verið mjög náið
við heimamenn og farið mjög
itarlega yfir allar áætlanir með
þeim.
Kostnaðaráætlanir, næstum
um hvert smáatriði, fylgja fram-
kvæmdaáætluninni. Áætlanir um
tilkostnað eru byggðar á reynslu
og rauntölum fyrri ára og hljóta
því að vera eins nærri lagi og
mögulegt er. En óvissan er heil-
mikil um tekjurnar. Meiningin
er að selja frystar afurðir í Evr-
ópu og gengið hefur verið úr
skugga um að þessar fisktegund-
ir eru til sölu heilfrystar víða í
Evrópu. En við höfum ekki fasta
samninga í höndunum ennþá og
þó að áætlanir um söluverð séu
í lægri kantinum, þá er óneitan-
lega töluverð óvissa ríkjandi um
sölutekjur og afurðamagn líka,
vegna þess að veiðarnar hafa
aldrei verið stundaðar samfellt í
heilt ár á þennan hátt.
í heild er áætlað að kostnaður
við verkefnið verði tæpar 70
milljónir króna samtals öll árin
frá nóvember 1987 fram á mitt
ár 1989, þar í er reiknaður tilkostn-
aður Cabo Verde-búa,_ um 24
milljónir, sem verður lagður fram
af þeim. Tekjurnar eru áætlaðar
40—60 milljónir, en lagt er til að
þeim verði skipt jafnt, þannig að
nettó tilkostnaður ÞSSÍ verður
líklega ekki minni en 20—25 millj-
ónir, þó að öll dæmi gangi upp.
Inni í þessum tilkostnaðartölum eru
auðvitað nokkur eignakaup, sem
þó er óvíst hvemig nýtast að af-
loknu þessu verkefni.
Þá er innifalinn ýmiss undirbún-
ingskostnaður sem erfítt er að meta
til fjár. Þar má nefna, að á undir-
búning starfsmanna hefur verið
lögð mikil áhersla nú, með sérstöku
námskeiði í tungumálinu, fræðslu
um líf og starf á Cabo Verde og
störf í þróunarlandi yfírleitt. Er
ekki nokkur vafi á því, að starfs-
menn verða með.þessu hæfari og
betur undirbúnir fyrir seinni verk-
efni. Loks verður sú þekking og
færni sem skilin verður eftir með
heimamönnum ekki metin til fjár
og það er ávinningur út af fyrir
sig, hvernig sem rekstrardæmið
birtist í tölum.
Höfundur er forstöðumaður Þró-
unarstofnunar íslands.
20% útborgun
12 mánaða
greiðslukjör.
þar sem
góðu kaupin
gerast.
2 Kópavogi
44444
Dæmi um verð pr. einingu:
197 cm háir skápar með sléttum hurðum
breidd 40cm-frákr. 7.600.-
breidd 80cm-frákr. 11.750.-
breidd 100 cm - frá kr. 12.950.-
197 cm háir skápar með fræstum hurðum
(sjá mynd)
breidd 40 cm -frákr. 10.200.-
breidd 80cm-frákr. 16.950.-
breidd 100 cm - frá kr. 18.450,-
Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á
vönduðum og sterkum fataskápum sem eru
afrakstur áralangrar þróunar og reynslu
starfsmanna fyrirtækisins. Þeir byggjast á
einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að
ráða stærð, innréttingum og útliti, innan
ákveðinna marka.
Hægt er að fá skápana í beyki, eik eða hvítu,
með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu
skáparnir fáanlegir með fræstum hurðum
(sjá mynd). Einingaskáparnir frá Viðju eru
auðveldir í uppsetningu og hafa nánast óend-
anlega uppröðunar- og innréttingamöguleika.
Þeir einkennast af góðri nútímalegri hönnun
og sígildu útliti sem stenst tímans tönn.
Stærðir:
hæð: 197 cm eða 247 cm
breidd: 40 cm - 50 cm - 60 cm o.s.frv.
dýpt: 60 cm.
IMLEGIR FATASKÁPAR Á
SÉRSTAKLEGA GÓÐU VERÐI
Viðja býður nú nýja gerð af fataskápum sem settir eru
saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjálfra