Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
3
Álverið í Straumsvik.
Útlit er fyrir 100
milljóna króna
hagnað hjá ÍSAL
Raforkuverð til verksiniðjunnar nálgast 15 mills
ÚTLIT er fyrir að íslenska álfélagið i Straumsvik verði rekið með
nálægt 100 miiyóna króna hagnaði á þessu ári, að sögn Ragnars
Halldórssonar forstjóra. Á siðasta ári varð tæplega 700 milljóna
króna rekstrarhalli hjá verksmiðjunni.
Ragnar sagði um ástæður þess-
ara umskipta að í ársbyrjun hefði
verksmiðjan fengið um 4 milljarða
íslenskra króna í aukið rekstrarfé
frá móðurfyrirtækinu í Sviss. Þá
hefði álverð farið hækkandi, sérs-
taklega í ágúst. Verðhækkunin á
árinu næmi um 50%. Loks hefði
framleiðslan aukist og fyrirtækið
verið rekið með svo til fullum af-
köstum, þrátt fyrir erfíðleika með
rafskaut í sumar. Ragnar sagði að
reksturinn væri í jámum það sem
af er árinu en góðir mánuðir fram-
undan, þannig að útlit væri fyrir
hagstæða útkomu í árslok.
Ragnar á frekar von á því að
rekstrarskilyrði verði áfram hag-
stæð. Litlar birgðir væru til af áli
í heiminum og góð eftirspum.
Framleiðsla verksmiðju ÍSÁL í
Straumsvík væri því seld nokkum
veginn jafnóðum.
Raforkuverð til ÍSAL er tengt
heimsmarkaðsverði á áli. Lág-
marksverðið er 12,5 mills og var í
því lengst af, en nú er verðið kom-
ið vel yfir 14 mills og líkur á að
það fari yfír 15 mills þegar raf-
magnsreikningurinn fyrir septem-
ber verður gerður upp, að sögn
Ragnars.
*
Ohappahrina
í umferðinni
MIKIÐ var um óhöpp í umferð-
inni í Reykjavik um helgina og
i nokkrum tilfellum urðu slys á
mönnum.
Á föstudagskvöld um kl. 23.30
ók maður á bláu DBS-reiðhjóli á
tvær konur á Suðurgötu. Þær féllu
báðar í götuna og meiddust, en
maðurinn hjólaði á brott. Lögreglan
biður hann um að gefa sig fram.
Á laugardagskvöld var ekið á
konu í Lækjargötu. Hún brotnaði á
hægra fæti og skrámaðist á höfði.
Fyrr um daginn varð árekstur
tveggja bifreiða á mótum Skál-
holtsstígs og Laufásvegar og var
farþegi úr annarri bifreiðinn: fluttur
í slysadeild, en meiðsli hans munu
ekki mikil.
Skaftafell:
Á sunnudag skullu þijár bifreiðar
saman á mótum Höfðabakka og
Stekkjarbakka. Tveimur bifreiðum
var ekið suður Höfðabakkann og
ætlaði ökumaður þriðju bifreiðar-
innar að beygja niður Stekkjar-
bakka, en ók þá í veg fyrir hinar
tvær. Einn ökumannanna var flutt-
ur í slysadeild.
Loks slösuðust flögur ungmenni
í Breiðholti á sunnudag. Þau voru
á tveimur vélhjólum og óku út úr
húsasundi inn á Völvufell. Bifreið,
sem var ekið suður eftir Völvufelli,
lenti á hjólunum tveimur. Ung-
mennin fjögur voru öll flutt í
slysadeild, en meiðsli þeirra munu
ekki vera mikil.
Sjö sóttu um stöðu
þj óðgar ðs var ðar
SJÖ umsækjendur eru um stöðu
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli.
Ráðið verður í stöðuna frá og
með næstu áramótum, er Ragnar
Stefánsson lætur af störfum fyr-
ir aldurs sakir.
Einn umsækjenda óskaði nafn-
leyndar en aðrir sem sóttu um
stöðuna voru: Finnur Torfí Hjör-
leifsson lögfræðingur, Haraldur
Antonsson búfræðingur, Jón Hjart-
arson skólastjóri, Sigrún Helgadótt-
ir líffræðingur, Snorri Baldursson
Hffræðingur og Stefán Benedikts-
son fyrrum alþingismaður.
Stórbruni í Þorlákshöfn:
Tjónið minnst 50 milljónir
Þorláushöfn.
HLUTI saltfiskverkunarhúss
Meitilsins hf. í Þorlákshöfn
brann til kaldra kola aðfaranótt
mánudagsins. Tjónið er talið
nema a.m.k. 50 mil^jónum króna.
Það var um kl. 12.50 aðfaranótt
mánudagsins að eldsins var vart.
Þegar Sigurður Ólafsson slökkvi-
liðsstjóri kom á vettvang 5 mínútum
síðar var eldurinn aðallega í syðri
hluta hússins en á næstu 10 mínút-
um breiddist eldurinn þannig út að
eldtungumar stóðu hátt í loft upp
frá öllu húsinu. Að sögn Sigurðar
varð ekkert við eldinn í sjálfu hús-
inu ráðið og því aðaláherslan lögð
á að bjarga nærliggjandi húsum
sem og tókst. Strekkingsvindur var
af suðvestri og magnaði hann eldinn
mjög. Slökkvilið Hveragérðis og
Ölfuss kom slökkviliðinu í Þorláks-
höfn til aðstoðar.
Eldsupptök eru með öllu ókunn
enda lítið verið rannsökuð ennþá.
Að sög^i Páls Jónssonar forstjóra
Meitilsins hf. voru í húsinu allt að
100 tonn af saltfiski að mestu leyti
tilbúin til útflutnings, að auki var
talsvert af veiðarfærum geymt á
lofti og í porti á bak við húsið.
Þetta brann allt saman. Húsið er
fyyggt fyrir um 24 milljónir svo
ætla má að tjónið sé aldrei undir
50 milljónum. Páll sagði einnig að
hús þessi væru aðallega notuð tii
að geyma saltfísk sem verkaður
væri í öðru húsi skammt frá en öll
pökkun á saltfíski hefði farið þama
fram. Hann sagði að ekki væri sjá-
anlegt að þetta hefði áhrif á
reksturinn að sinni en þegar frá liði
yrði að útvega húsnæði til geymslu
saltfísks.
Hús þessi eiga sér nokkra sögu.
Það var um 1950 að þau vora tekin
í notkun hér í Þorlákshöfn. Veggir
vora uppsteyptir en ofan á þá vora
settar fímm reisulegar burstir.
Timbrið í burstimar og loftið vora
fengnar austan frá Eyrarbakka úr
Lefoliis-húsinu sem var hús dönsku
verslunarinnar og var það að
minnsta kosti 150 ára gamalt.
- JHS
Sjá litmyndir af brunanum á
bls. 5.
Vinþú
íslenskan sigur?
Ég hef nú þjálfað Valsliðið í 4 ár með mikilli ánægju.
Á þessum árum hef ég haft mikla ánægju af að fylgjast með þróun
íslenskrar knattspyrnu og kynnst mörgum góðum liðsmönnum.
Á morgun kl. 16.30 leika Valsmenn seinni leik sinn gegn a-þýska
liðinu Wismut Aue á Laugardalsvelli, þar sem margir fræknir sigrar
hafa náðst með frábærum stuðningi ykkar, ágætu íslendingar.
Ég hvet ykkur nú öll til að mæta og styðja Valsliðið, ef þið viljið
enn einn sætan íslenskan siaur.
Thenmop.ane
í fararbroddi