Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
(
Erindi fjármálarádherra á ráðstefnu Lífs o g lands:
Greitt í sérstakan
landgræðslusj óð gegn
skattaívilnunum
LANDSSAMTÖKIN Líf og land héldu síðastliðinn sunnudag
ráðstefnu um gróðureyðingu og landgræðslu. Á annað
hundrað manns sóttu ráðstefnuna og er hún sú fjölmenn-
asta sem haldinn hefur verið um þetta málefni í áraraðir,
að sögn Herdísar Þorvaldsdóttur formanns samtakanna.
Fjölmörg erindi voru flutt á ráðstefnunni, meðal annars
eitt frá Jóni Baldvin Hannibalssyni, fjármálaráðherra. SIó
hann fram þeirri hugmynd að settur yrði á stofn sérstakur
landgræðslusjóður sem fyrirtæki og einstaklingar gætu
greitt í gegn skattaívilnunum.
Segir í erindi fjármálaráðherra
að tímabært sé að huga að nýjum
leiðum til styrktar landgræðslu-
starfí, svo unnt sé að halda áfram
uppi vömum gegn gróður- og
jarðvegseyðingu. Ein hugmynd
væri sú að stofna sérstakan land-
græðslusjóð sem tæki við framlög-
um frá fyrirtækjum og einstakl-
ingum gegn því að fé sem þannig
væri varið yrði frádráttarbært til
skatts.
Þó að frádráttarliðir allir væru
„eitur í beinum" fjármálaráðherra
sem sæti yfír tómum ríkiskassa,
kallaði hættuástandið í gróður-
og jarðvegseyðingu á óvenjuleg
viðbrögð og rétt væri að kanna
allar leiðir í því sambandi.
Taldi íjármálaráðherra þó að
Frá ráðstefnu Lífs og lands á sunnudag um landgræðslu og gróðureyðingu. í ræðustól er Björn Björns-
son, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sem flutti erindi Jóns Baldvins Hannibalssonar.fjármálaráðherra.
aukin fjárframlög til landgræðslu
skiluðu takmörkuðum árangri ef
ekki yrði beitt fyrirbyggjandi að-
gerðum til að stöðva þá „átveislu“
sem fram færi á afréttum lands-
ins. Ekkert yrði gert af viti í
landgræðslumálum nema um leið
væri tekið föstum tökum á „of-
framleiðslustefnu í landbúnaði".
VEÐUR
/ / /
í DAG kl. 12.00:
/ /
/ / /
/ Heímild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 29.09.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Á vestanverðu Grænlandshafi er 969
millibara lægð sem þokast norövestur og grynnist, en vaxandi 980
millibara lægð um 600 km suðsuðuaustur af Hvarfi hreyfist norður
og verður á Grænlandshafi í nótt og á morgun.
SPÁ: í dag verður suðvestlæg átt á landinu, hvassviðri eða storm-
ur og skúrir vestantil en hægari og léttskýjað með köflum austantil.
Hiti 9—14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR: Suðvestanátt með skúrum á Suður- og Vestur-
landi en bjart veður fyrir norðan og austan. Hlýtt einkum Norðan-
lands.
FIMMTUDAGUR: Breytileg átt og skúrir víða um land, síst þó á
Austurlandi. Heldur kólnandi veður.
TÁKN: A Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind-
A stefnu og fjaðrirnar
{ \ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
{£ Léttskýjað / / / r r r r Rigning
/ / / * / *
skýjað r * r * Slydda / * /
Alskýjað * * * * * * * Snjókoma * * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hKI veíur Akureyri 11 IðtUkýjað Reykjavlk 9 Þokumóða
Bergen 10 skýjað
Helsinki 10 skýjað
Jan Mayen 4 súld
Kaupmannah. 14 skýjað
Narssarasuaq 5 skýjað
Nuuk 3 aúld
Osló 12 léttskýjað
Stokkhólmur 8 súld á 8Íðs. kls.
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 13 skýjað
Aþena 28 léttskýjað
Barcelona 22 rigning og súld
Berlfn 12 skúrásíðst.
klst.
Chlcago 16 mlstur
Feneyjar 18 skýjað
Frankfurt 11 skýjað
Qlasgow 11 skýjað
Hamborg 12 skúréslð. klst.
Las Palmas 27 hélfskýjað
London 12 skýjað
LosAngeles 17 þokumóða
Lúxemborg 7 skýjað
Madríd 24 léttskýjað
Malaga vantar
Mallorca 28 skýjað
Montreal 11 léttskýjað
New York vantar
Parfs 12 skýjað
Róm 27 skýjað
Vfn 11 léttskýjað
Washlngton 18 Þokumóða
Winnipeg 12 þrumuveður
___ *
Forseti Islands
í opinbem heim-
sókn til Italíu
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, hefur þegið boð
Francesco Cossiga, forseta ít-
alíu, um að koma í opinbera
heimsókn til Ítalíu dagana 5.-9.
október nk.
Flogið verður beint til Rómar
með flugvél Flugleiða að morgni
5. október og lent á Leonardo da
Vinci flugvelli kl. 15.15. Ítalíufor-
seti mun taka á móti forseta íslands
í Quirinale-höll, en þar mun forseti
búa meðan á dvölinni í Róm stend-
ur. Síðdegis mun forseti hitta
ráðherra og háttsetta embættis-
menn, og síðan verður móttaka fyrir
erlenda sendiherra búsetta í Róm.
Um kvöldið heldur Ítalíuforseti
kvöldverðarboð til heiðurs forseta
íslands.
A öðrum degi heimsóknarinnar
mun forseti íslands leggja blóm-
sveig á leiði óþekkta hermannsins
að viðstöddum vamarmálaráðherra
Ítalíu. Því næst mun forseti hitta
Nicola Signorello, borgarstjóra
Rómaborgar að máli í ráðhúsi borg-
arinnar. Forsætisráðherra Ítalíu,
Giovanni Goria, heldur síðan hádeg-
isverðarboð til heiðurs forseta
íslands. Síðdegis heimsækir forseti
iðnfyrirtæki. Um kvöldið heldur
forseti íslands kvöldverðarboð til
heiðurs forseta Ítalíu.
Að morgni miðvikudags 7. októ-
ber verður flogið til Sikileyjar, en
þar verður dvalið í tvo daga. í Pal-
ermo taka háttsettir embættismenn
á móti forseta. Skoðaðar verða
Úr umferðinni í Reykjavík 27. september 1987
Árekstrar urðu samtals 8. Ökumaður var fluttur á slysadeild eftir
þriggja bíla árekstur kl. 17.10 á mótum Höfðabakka og Stekkjar-
bakka. í þremur tilfellum lék grunur um ölvun við akstur.
31 ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur þennan sunnudag
og þar af 3 sviptir ökuréttindum sínum strax vegna brots síns. Hrað-
ast var ekið með 140 km/klst. hraða vestur Ártúnsbrekku og sá
ökumaður grunaður um að vera ölvaður við aksturinn kl. 06.32.
Annar ökumaður mældist aka 114 km/klst. hraða um Ártúnsbrekku,
það var kl. 07.10 og þriðji kl. 18.46 vestur Ártúnsbrekku á 118
km/klst. hraða.
Um kl. 04 á sunnudagsmorgni var ölvaður ökumaður stöðvaður
eftir hraðan akstur um Njálsgötu. Hann viðurkenndi 70 km/klst.
hraða en hámarkshraði um Njálsgötu er leyfður 30 km/klst.
Um Reykjanesbraut var kært fyrir 112 km/klst. hraða og 96 km/
klst. um Miklubraut.
Tveir ökumenn fundust réttindalausir í sunnudagsumferðinni.
Frétt frá Lögreglunni í Reykjavík.
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands.
merkar fornminjar á eyjunni, farið
um landbúnaðarhéruð og eldfjallið
Etna skoðað úr lofti.
Föstudaginn 9. október verður
flogið til Rómar og síðan áfram til
Keflavíkur með flugvél Flugleiða.
í fylgd með forseta íslands verð-
ur Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra og Edda Guð-
mundsdóttir, Hörður Helgason
sendiherra og Sarah Ross Helga-
son, Hannes Hafstein ráðuneytis-
stjóri og Ragnheiður Hafstein og
Komelíus Sigmundsson forsetarit-
ari og Inga Hersteinsdóttir.