Morgunblaðið - 29.09.1987, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
Islensk þróunarsamvinna:
Fiskveiðiverkefnin
á Grænhöfðaeyjum
eftirBjörn
Dagbjartsson
Það mun hafa verið síðla árs
1977, að forseta íslands barst bréf
frá sendiherra Cabo Verde (Græn-
höfðaeyja) í Lissabon, þar sem
óskað var eftir þróunaraðstoð til
að byggja upp sjávarútveg þar í
landi. Sendiherrann kom svo í heim-
sókn til íslands árið eftir og eftir
ítarlegar viðræður og athuganir fór
íslensk sendinefnd kunnáttumanna
til Cabo Verde á árinu 1979 til að
leggja á ráðin og undirbúa samn-
inga milli ríkjanna um tæknisam-
vinnu við uppbyggingu sjávarút-
vegs á Cabo Verde. í framhaldi af
því var svo fyrsti samstarfssamn-
ingurinn milli ríkjanna undirritaður
í júní 1980.
Nýr samningur til fímm ára gekk
í gildi í desember 1981. Hann var
svo endumýjaður á sl. ári og gildir
til 1990. Þessir samningar, sem eru
gerðir milli ríkisstjóma landanna,
em rammasamningar sem ekki
fjalla í einstökum atriðum um það
sem gera skal. Um markmiðin seg-
ir í samningnum frá 1981:
„Meginmarkmið framkvæmda
samkvæmt samningi þessum
skulu vera að leiða í ljós hveijir
fiskveiðimöguleikar eru við
strendur Cabo Verde, einnig inn-
an landhelgi og stuðla að sem
árangursríkastri og hagkvæm-
astri nýtingu þeirra möguleika í
þágu íbúa Cabo Verde.
Til að ná þessum markmiðum
skulu aðilar árlega koma sér
saman um framkvæmdaáætlun
þar sem kveðið er nánar á um
markmið og leiðir svo og um
framiög til áætlunarinnar um
tæknisamvinnu í fiskveiðum.“
Nótnaskipið „Víkurberg GK“,
síðar skírt „Bjartur“, var keypt
snemma árs 1980, á það ráðnir
yfirmenn og hélt það suður á bóg-
inn í maí. Var talið nauðsynlegt að
hafa yfir fiskiskipi að ráða til að
ná markmiðum samstarfssamn-
ingsins. Eflaust var það rétt mat,
en síðar sáu menn að gamalt nóta-
veiðiskip var ekki hið ákjósanleg-
asta tæki til að framkvæma þau
verkefni sem í ljós kom að vinna
þurfti.
„ Bj artstímabiliö“
Tímabilið sem „Bjartur" var
gerður út frá Grænhöfðaeyjum, þ.e.
frá miðju ári 1980 til ársloka 1981,
hefur af sumum verið kallað þessu
nafni.
Engan skyldi undra þó að áhöfn-
in eða þeir „landnemar" sem fyrstir
komu til þróunarsamvinnu frá ís-
landi til Cabo Verde ættu við ýmsa
byijunarörðugleika að etja. Fyrir
utan ýmiskonar harðræði í að-
búnaði og langar boðleiðir, hvert
sem leita þurfti, virðist einkum
tvennt hafa valdið leiðangursmönn-
um mestum vonbrigðum og erfíð-
leikum, samkvæmt skýrslum
verkefnisstjórans: Meira var um
bilanir i skipinu en eðlilegt mátti
telja, viðgerðamöguleikar voru
ofmetnir, skortur á varahlutum
mikill og samgöngur hægfara og
leiðir langar. Því var Bjartur
meira frá veiðum og tilraunum
en æskilegt var.
Hin vonbrigðin voru þau, að
brynstyrtla (hrossamakríll), sem
einhverra hluta vegna var talinn
aðalfisktegundin þarna, fannst
ekki svo heitið gæti. Bjartur var
aftur á móti einkum útbúinn til að
veiða slíkan fisk í nót en lítt heppi-
legur til togveiða. Skipstjórnar-
menn urðu varir við nokkuð af
botnlægum tegundum og töldu
nauðsynlegt að reyna botnvörpu-
veiðar betur.
Þessi niðurstaða, sem varð til
þess að „Fengur" var smíðaður,
ásamt almennt aukinni þekkingu á
aðstæðum á Cabo Verde til sjós og
lands, má hiklaust telja til hins já-
kvæða sem út úr „Bjartstímabilinu"
kom. Þjálfun heimamanna og
fræðsla þeim til handa svo og ýms-
ar skráðar niðurstöður og athuganir
á sjávarháttum eru li'ka tvímæla-
laust af hinu góða. Menn urðu fýrir
vonbrigðum kannski fyrst og fremst
af því að væntingamar voru af
miklar og þekking á aðstæðum og
lítil. „Róm var ekki byggð á einum
degi“ segir spakmælið og það á
vissulega við um þróunarsamvinnu.
Björn Dagbjartsson
„Ef menn viður-
kenna þessar stað-
reyndir, og það hefur
stjórn ÞSSÍ gert, ásamt
því að taka mið af sam-
starfssamningi Islands
og Cabo Verde, þá er
deginum ljósara að Is-
lendingar hljóta að
veita aðstoð til að þróa
sjávarútveg Cabo
Verde lengra áleiðis.
Því var ákveðið að und-
irbúa nýtt verkefni,
nýjan áfanga, með því
m.a. að senda „Feng“
suður aftur.“
Fyrra „Fengstímabilið“
Eins og áður sagði, leiddu niður-
stöðurnar 1981 til þess að ákveðið
var að hanna og smíða fjölveiðiskip-
ið „Feng“ fyrir ÞSSI. Var það
tilbúið vorið 1984. Skipið kom til
Cabo Verde um mitt ár 1984 og
var þar við tilraunaveiðar, fiskileit
og hafrannsóknir í tvö ár. Þrátt
fyrir vissar áherslubreytingar frá
1981 var markmiðið það sama:
Að efla sjávarútveg og fiskút-
flutning frá Grænhöfðaeyjum. I
þessum áfanga beindist aðalathygl-
in að veiðum og rannsóknum á
botnfiskum. Gerðar voru rækilegar
athuganir á botnfiskum, bæði fiski-
fræðilegar og með tilliti til veiði-
möguleika.
Niðurstöðum er lýst ítarlega í
skýrslu um verkefnið eftir Stefán
Þórarinsson, verkefnisstjóra ÞSSI,
sem lokið var snemma á þessu ári
og hefur verið kynnt fjölmiðlum.
Helstu niðurstöður Stefáns að lokn-
um þessum áfanga eru eftirfarandi:
„a. Fiskifræðilegar rannsóknir
við Gabo Verde hafa leitt í
ljós, að á landgrunninu við
eyjarnar er umtalsvert magn
af botnlægum fisktegundum,
sem eru nánast ekkert nýtt-
ar.
b. Veiðar, vinnsla og útflutning-
ur þessara botnlægu fiskteg-
unda, sem framkvæmdar
voru í tilraunaskyni í stuttan
tíma með handfærum og
botnvörpu, benda til þess að
hagkvæmt geti verið að nýta
þessa fiskistofna.
c. Tilraunaveiðar og fiskileit
sem framkvæmdar voru á
R/S Feng við Cabo Verde
benda til þess að ekki sé
mikils að vænta af rækju-
veiðum, smokkfiskveiðum
eða veiðum á öðrum uppsjáv-
arfiskum, annarra en þeirra
sem nú eru nýttir, við
óbreyttar aðstæður.
d. Margt bendir til þess á Cabo
Verde, s.s. viðhorfum stjóm-
valda eins og þau birtast m.a.
í áætlunum um uppbyggingu
efnahagslífsins, skipakosti
Þvottheldni oq
í hámarki
í fjórum qljastiqum
• Kopal innimalningin fæst nu i fjorum gljastigum.
© Mu velur þu þann gljaa sem hentar þér best og
malningin er tilbuin beint ur dosinni.
• Mu heyrir þaö fortíðinni til aö þurfa aö blanda
malninguna meö heröi og öðrum gljáefnum.
VELDU KOPAL í FJORUM GLJASTIGUM: