Morgunblaðið - 29.09.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
þrælsterkar
kantaðar
þakrennur.
Áratuga reynsla.
Útsölustaðir:
Húsasmiðjan.
Heildsölubirgðir
blAfell
Hverfisgötu 105, sími 621640.
UOSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
OSRAM
bílperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Eigum fyrirliggjandi
Ijósastillingatæki
Áskriftarsímirui er 83033
Dísel-
stillingar
Látiðokkuryfirfara
olíuverk og spissa í
fullkomnum tækjum.
BOSCH
Viógerða- og
warahiuta þjónusta
B R Æ Ð U R N I R
DlORMSSONHF
Lágmúla 9, s/mi 38820.
EKnFNAPA
Það er dýr hver
rúmmetri í lager-
húsnæði.
Nýtið hann því vel.
Þungavðrukerfl
HF.OFNASMIBJAN
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI7. S.: 21220
Lagericerfi
tyrir
vörubreHi
ogfleira
i 11 ■ i ll^rrT
Með þessu stórkostlega
fyrirkomulagi næst hámarksnýting
á lagersvæði. Mjög hentugt kerfi
og sveigjanlegt við mismunandi
aðstæður. Greiður aögangur fyrir
lyftaraogvöruvagna.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga.
UM80ÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍMI 672444
Norrænn samanburður
á kjörum háskólamanna
eftír Birgi Bjöm
Sigmjónsson
Fyrir nokkru lauk fundi Norræna
háskólamannaráðsins, NAR, en það
er samstarfsvettvangur heildar-
samtaka háskólamanna á Norður-
löndum. Bandalag háskólamanna
er aðili að þessu samstarfí. Aðalefni
fundar NAR í ár var Norrænn
kjarasamanburður og var skýrsla
hagfræðinga samtakanna lögð til
grundvallar umræðunni á fundin-
um.
Það er afar erfitt að bera saman
kjör launamanna í mismunandi
löndum. Tölfræðileg hefð ristir víða
grunnt og gagnasöfnun er á mis-
munandi vegi stödd í þessum
efnum. Kjaramál almennt eru líka
mismikið áhugamál þeirra sem
stjóma hagskýrslugerð í hverju
landi og er íslensk skýrslugerð aft-
arlega á merinni. Þar kann bæði
að ráða ringulreiðin í launakerfum
íslenskra launamanna og svo hitt
að við höfum minni fjármuni til
rannsókna á þessu sviði. Mér sýnist
miðað við reynslu grannþjóðanna
að það sé hyggilegt að leggja meiri
ijármuni í rannsóknir á kjaramálum
til að skapa betra jafnvægi og meiri
skilning manna á milli um lögmál
launamyndunar og tekjuskiptingu á
íslandi.
Margt gerir norrænan kjarasam-
anburð torveldan. Launakerfin em
ólík að grunngerð. Skilgreiningar á
hugtökum, sem á yfirborðinu virð-
ast eins, eru oft gagnólíkar. Skatt-
kerfi og millifærslukerfi em einnig
ólík. Jaðarskattar em t.a.m. lang-
hæstir í _ Svíþjóð og langlægstir á
íslandi. Á hinn bóginn em frádrátt-
armöguleikar launamanna tiltölu-
lega litlir á íslandi en umtalsverðir
hjá Svíum, þ.e. skattstofninn er
skilgreindur mismunandi. Því má
bæta við að tekjuskattskerfið sem
hluti tekjuöflunarkerfís ríkisins
gegnir tiltölulega litlu hlutverki á
Islandi á norræna vísu. Millifærslur
til almennra launamanna em einnig
tiltölulega litlar á íslandi m.v. til
dæmis Svíþjóð. Nettólaun, þ.e. laun
eftir tekjuskatta ríkis og sveitarfé-
laga, háskólamanna á Norðurlönd-
um em mismunandi en þau ber
einnig að skoða í þessu ljósi. Og
innihald opinberrar þjónustu er
mismikið og mismunandi að gerð.
Verðlag er einnig mismunandi í
þessum löndum og þykir almennt
hærra á íslandi en öðmm Norður-
löndum. Gengisskráning fer einnig
eftir mismunandi ákvörðunarráð-
um. Að þessu öllu skoðuðu má sjá
að einfaldur samanburður á (nettó)
launum á sama gengi kann að leyna
miklu um kaupmátt þess sem borið
er saman.
Þessi rannsókn var þversniðsat-
hugun á kjömm háskólamanna í
júlí til september 1985. Með þver-
sniðsathugun er tekin sú áhætta
að rannsóknarárið hafí verið sér-
stætt sem rýri kjarasamanburð.
Engin þung rök hníga í þá áttina.
Birgir Björn Siguijónsson
„í þessum samanburði
er arðsemi háskóla-
menntunar á íslandi
langlökust í norrænum
samanburði og að því
er virðist afar óhag-
kvæm miðað við að
hefja þessi störf eftir
almenna skólagöngu."
Greidd laun norskra og
danskra hagfræðinga á almenn-
um markaði eru mjög há á
norrænan mælikvarða. Hið sama
má segja um greidd laun dan-
skra, finnskra og norskra Iög-
fræðinga, og finnskra og
norskra verkfræðinga. Laun
íslenskra háskólamanna standa
upp úr sem mjög lág, sérstaklega
greidd laun háskólamenntaðra
rikisstarfsmanna.
Samanburður á launum
á almennum markaði
og hjá ríki
Laun háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna eru almennt lægri en
starfsbræðra þeirra á almennum
markaði í sama landi eins og tafla
2 ber með sér, en í henni eru borin
saman nettólaun, þ.e. greidd laun
eftir tekjuskatt einstaklings af þeim
launum.
meðfylgjandi stöplariti má skoða
þennan mun betur fyrir mismun-
andi hópa og starfstíma.
Ahrif starfsaldurs á
launamun ríkisstarfs-
manna og annarra
Munur á greiddum launum er
almennt mikill en hann fer yfirleitt
minnkandi þegar litið er yfír lengra
starfsaldurstímabil hjá öllum há-
skólamannahópum. Virðist sem
starfsaldurshækkanir ríkisstarfs-
manna séu hlutfallslega svipaðar
eða jafnvel meiri en þeirra sem
starfa á almennum markaði. Þetta
á þó ekki við um ísland. Hér eykst
munurinn með vaxandi starfs-
reynslu.
Borgar sig að vera há-
skólamaður á Islandi?
Háskólamenntaðir ríkisstarfs-
menn á íslandi fá lakari laun en
aðrir háskólamenn á Norðurlöndum
eins og áður hefur komið fram.
Kjör starfsbræðra þeirra á almenn-
um markaði virðast einnig léleg á
samnorrænan mælikvarða. Laun
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna eru tiltölulega best í Finn-
landi og Noregi. Háskólamenn í
einkageira fá tiltölulega bestu laun-
in í Finnlandi og Noregi en lökust
launin á íslandi og í Danmörku.
Laun einstakra háskólamanna-
hópa í hveiju landi má bera saman
við norrænt meðaltal, sem við skul-
um hugsa oklcur sem norrænt
markaðsverð viðkomandi faghóps.
Laun háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna eru 20-25% lægri en (óveg-
in) meðallaun viðkomandi
menntahópa á Norðurlöndum. Laun
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna eru tiltölulega best í Finn-
landi og Noregi. í Töflu 3 er reynt
að skoða á hvem hátt launamunur
eftir löndum gerist milli einstakra
háskólamannahópa, en talfan sýnir
meðaltal launa í einka- og ríkis-
geira í hveiju landi sem % umfram
norræn markaðslaun (meðallaun
norrænna starfsbræðra).
Arðsemi háskólamenntunar má
Tafla 2: Munur á nettólaunum háskólamenntaðra launþega í einka-
geira og hjá riki á Norðurlöndum.
Ovegin meðaltöi; 38 ára starfstími. Nettólaun 1985.
Hagfræðingar
Lögfræðingar
Verkfræðingar
Tafla 3: Meðallaun háskólamanna í hveiju landi í % umfram meðal-
laun norrænna háskólamanna í sama menntahóp.
Danmörk Finniand ísland Noregur Sviþjóð
% % % % %
33 31 50 72 22
23 35 (ófá.) 23 33
5 28 61 20 15
Meðaltal
einkam. og ríki
Aðjúnktar
Hagfræðingar
Lögfræðingar*)
Verkfræðingar
Greidd laun háskóla-
manna fyrir fullt starf
Skoðum nokkrar af niðurstöðum
skýrslunnar (sbr. tafla 1). Ef við
tökum óvegið meðaltal greiddra
fastra launa háskólamanns (í
sænskum krónum) í hverri faggrein
}rfír 38 ára starfstíma birtist okkur
býsna skýr mynd.
Tafla 1: Greidd laun háskólamanna í hveiju landi í sænskum krónum.
Meðaltöl 38 ára starfstíma. Greidd laun 1985.
Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóð
% % % % %
2 17 -19 11 -11
0 5 -13 38 -17
0 14 -32 14 -12
-5 17 -10 16 -10
í heildina virðist ráða verulegur
launamunur milli háskólamanna á
almennum markaði og hjá ríki. Á
Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóð
Sek Sek Sek Sek Sek
Aðjúnktar Hagfræðingar 175 482 159 210 86 803 149 157 126 077
einkageiri 299 092 215 349 142 534 368 703 186 375
ríkisgeiri 194 353 142 308 90 978 191 091 134 189
Lögfræðingar *)
einkageiri 297 859 286 152 (ófánl.) 264 749 223 714
ríkisgeiri 208 802 173 402 90 977 187 456 151 217
Verkfræðingar
einkageiri 227 002 250 670 153 555 250 951 203 915
ríkisgeiri 208 369 174 657 88 902 HIIIISlli 173 iim 534 151 615
einnig skoða í samhengi við kjör
þeirra sem ekki fara í langskóla-
nám, t.d. launþega í iðnaði (þæði
faglærðra og ófaglærðra). Ýmis
önnur viðmið koma til greina.
Þessi samanburður sýnir t.d., að
nettólaun fyrstu starfsár háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna á
íslandi eru varla nema rétt um það
bil ámóta og þeirra sem ekki hafa
gengið í háskóla en nettólaun há-
skólamanna á almennum markaði
eru nokkru hærri. Þegar líður á
starfstímann kemur fram nokkur
tekjumunur en hann er mun minni
en gerist yfírleitt í öðrum löndum.
Þegar laun háskólamanna eru
borin saman við laun þeirra sem
iiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiil