Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
Skipanesið frá Grundarfirði fann Víði SH um 9 sjómíiur norð-
vestur af Búlandshöfða.
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
Varðskipið Týr komið að þeim stað sem Víðir fannst. Varðskips-
maður fór um borð og sigldi bátnum til Grundarfjarðar.
Tólf tima leit báta, landhelgisgæslu og björgxuiarsveita í Breiðafirði:
Milljónakostnaður við leit
að ölvuðum mönnum á báti
FLUGVÉL og varðskip Land-
helgisgæslunnar, fjöldi skipa.
og báta og flokkar björgunar-
sveita leituðu í samfellt tólf
tíma að ellefu tonna bát frá
Grundarfirði, Víði SH 301
síðastliðið laugardagskvöld og
aðfararnótt sunnudags. Bátur-
inn fannst siðan á sunnudags-
morgun, 9 sjómilur norðvestur
af Búlandshöfða og kom i ljós
að skipverjar voru ölvaðir.
Það var um kl 21.00 á laugar-
dagskvöld að fyrirspum barst frá
hafnarvigtinni í Grundarfirði til
tilkynningaskyldunnar um Víði
SH 301, 11 tonna bát frá Grund-
arfirði. Báturinn hafði farið út um
morguninn og þótti mönnum hann
dveljast full lengi við að draga
eina trossu fyrir utan Búlands-
höfða. Kölluð var út bakvakt hjá
Slysavamafélaginu og var As-
grímur Bjömsson í stjómstöð
þann tíma, sem bátsins var sakn-
að. Hann hafði samband við
Loftskeytastöðina í Gufunesi og
bað starfsmenn hennar að kalla
upp bátinn. Engin svör bámst og
var þá kallað í alla báta á svæð-
inu. Upplýsingarbámst frá bátum
um að Víðir hefði sést um klukk-
an 16 þá um daginn vera að draga
inn trossu og sjómenn á trillu
höfðu séð bátinn nokkm síðar á
reki og engan mann á dekki.
í samráði við aðila við Breiða-
fjörð, bað Slysavamafélagið báta
á heimleið að svipast um eftir
Víði og var Gmndfirðingur SH í
Leitin að Víði SH-
Leitin hófst um kl. 22:00
á laugardagskvöldi
Víðir SH-301
fannst um kl. 9:30
á sunnudags-
morgni eftir tæp-
lega 12 tíma leit
Að leitinni stóðu:
29 bátar
Varöskipið Týr
TF-SYN, flugvél
flugmálastjórnar
t Leitarflokkar frá Patreks
firði og Barðaströnd
Lögregla og hafnarverðir leituðu
í höfnum frá Reykjavíktil Flateyjar
forystu fyrir leitinni, þar til varð-
skipið Týr kom á vettvang.
Fokkervél Landhelgisgæslunnar
TF-Syn var og send út til leitar.
Björgunarsveitir frá Patreksfírði,
Barðaströnd og Rauðasandi
gengu fjörur og lögreglumenn og
hafnsögumenn svipuðust um eftir
honum í höfnum á svæðinu.
Leitað var á nokkuð stóm svæði
í Breiðafirðinum, sem afmarkað
var með aðstoð tölvu Landhelgis-
gæslunnar. Með því mata tölvuna
á upplýsingum frá Veðurstofunni
um vinda og annað mátti sjá
hversu langt bátinn gat hugsan-
lega rekið.
Tólf bátar frá Gmndarfirði,
Rifí og Bijánslæk leituðu um nótt-
ina ása.nt varðskipinu Tý og um
morguninn bættust við fleiri bát-
ar, aðallega frá Stykkishólmi.
Vom 29 bátar við leit þegar mest
var. Þegar birti hóf TF-Syn aftur
leit og gerðar vom ráðstafanir til
þess að fá aðstoð þyrlu varnarliðs-
ins. Um klukkan níu barst tilkynn-
ing frá Gmndafjarðarbátnum
Skipanesi, um bát á leið út úr firð-
inum, sem líktist Víði. Skipanes
fór upp að bátnum og kom þá í
ljós, að um hið týnda skip var að
ræða. Kom varðskip fljótt á vett-
vang. Tveir menn vom um borð
og bám þeir við vélarbilun og bil-
un í talstöð. Einn varðskipsmaður
fór um borð og fylgdi skipinu til
hafnar í Gmndarfirði.
Þegar til Gmndarfjarðar var
komið, tók lögreglan á móti skip-
verjum og færðu þá til yfirheyrslu.
Viðurkenndu þeir þá að hafa ver-
ið ölvaðir. Eðvarð Árnason, yfir-
lögregluþjónn á Gmndarfirði
sagði að litið væri á þetta mál
mjög alvarlegum augum. Án efa
væri um að ræða kostnað sem
skipti milljónum, enda hefðu
margir bátar hætt við veiðar
vegna leitarinnar og sumir skilið
eftir trossur og einnig bæri að
hafa í huga hættuna, því skömmu
eftir að skipið fannst, hefði bros-
tið á með aftakaveðri. „Það sem
mér finnst alvarlegast í þessu
máli, er hið fullkomna virðingar-
og tillitsleysi, sem samborgumn-
um er sýnt með þessu athæfi,“
sagði Eðvarð. Hann gat þess, að
þetta væri þriðja tilvikið af þessu
tagi, sem kæmi upp á stuttum
tíma í umdæminu.
Mál skipveijanna á Víði hefur
nú verið sent ríkissaksóknara til
meðferðar.
Samkomulag í deilu starfsfólks í húsgagnaiðnaði:
Lægstu lauii hækka um 9,23%
og eftirvinna lögð niður
SAMKOMULAG náðist í deilu
Félags starfsfólks í húsgagna-
iðnaði og Vinnuveitendasam-
bands Islands aðfaranótt
sunnudags og lauk þar með
tveggja vikna verkfalli félags-
ins. Bæði félög starfsfólks og
framleiðenda hafa samþykkt
samningana á félagsfundum.
Samkomulagið felst í fast-
launasamningi sem gildir fram til
áramóta en síðan kjarasamningi
sem gildir til ársloka 1988. Sam-
kvæmt fastlaunasamningnum
hækka byijunarlaun iðnaðar-
manna úr 36.861 krónu á mánuði
(232,67 á tímann með fæðis og
fatagjaldi) í 44.051 krónu
(254,51) eða 9,23%. Hæsti taxti
í samningunum er 55.584 krónur
fyrir flokksstjóra eftir 5 ára starf.
Einnig var aflagður eftirvinnu-
taxti en einn yfirvinnutaxti gildir
fyrir alla yfirtíð. í kjarasamning-
um er síðan gert ráð fyrir samtals
7% launahækkun á árinu 1988
auk annara prósentuhækkana
sem sem semjast kunni um í
samningum VSÍ við Trésmiðafé-
lag Reykjavíkur.
Kristbjöm Ámason formaður
FSH sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera sáttur við samninginn
þótt ekki hefði náðst fram taxta-
kerfi fyrir alla flokka innan
félagsins. í kröfum FSH var einn-
ig gert ráð fyrir töxtum fyrir
faglærða húsverði, auglýsinga og
leiksviðsmenn og faglærða sölu-
menn með húsgögn og innrétting-
ar, þar sem krafíst var hæst
85.738 króna á mánuði eða 494
króna á tímann. Kristbjöm sagði
að þær kröfur sem farið var af
stað með hefðu að vísu verið
hærri í tölustöfum en niðurstaðan
varð en þegar farið var að ræða
málið hefði félagið getað fallist á
þau sjónarmið að það ætti ekki
að reyna að búa til taxta fyrir þá
sem væm hæstir og á móti hefðu
viðsemjendur verið tilbúnir til að
hækka þá sem vom lægstir.
Guðjón Pálsson formaður Fé-
lags húsgagna og innréttinga-
framleiðenda sagði í samtali við
Morgunblaðið að aldrei hefði kom-
ið til greina að semja um þessa
efstu flokka þar sem félagið hefði
ekki umboð til að semja fyrir
leiktjaldasmiði eða sölumenn.
Guðjón sagðist telja þennan samn-
ing þýða um 10% launahækkun
gegnumsneitt auk þess sem breyt-
ing á eftirvinnugreiðslum þýddi
um 5% launahækkun fyrir alla.
Guðjón sagðist síðan telja að
FSH hefði með þessu verkfalli
misnotað verkfallsvald sitt vem-
lega því verkfallinu hefði verið
beitt til þess að fá fram fastlauna-
samninga sem eiga að endur-
spegla greidd laun í greininni.
Farið hefði verið eftir launakönn-
un Kjararannsóknamefndar um
greidd laun húsgagnasmiða og
VSÍ hefði strax boðið að tveir
neðstu flokkamir sem þar komu
í ljós yrðu skomir af. Á þetta
hefðu smiðir ekki viljað fallast en
haldið stíft fram óraunhæfum
kröfum. Á endanum hefði síðan
verið samið um taxta á mjög svip-
uðum nótum og fólst í upphaflegu
tilboði VSÍ og því hefði verkfallið
verið með öllu óþarft.
Kristbjöm sagði um þetta að
svo hefði virst að vinnuveitendur
hefðu aldrei viljað gera fastlauna-
samninginn. FSH hefði lagt fram
tillögu að fastlaunasamningi 11.
júní sl. en fyrsta svar vinnuveit-
enda hefði verið 9. september þar
sem boðið var upp á kjarasamning
með 3% grunnkaupshækkun fyrir
alla. Samningarviðræður hefðu
síðan hvorki gengið né rekið og
því hefði verkfallið verið nausyn-
legt.
Eiisabeth Söderström
Elisabeth Söd-
erström í Nor-
ræna húsinu
ELISABETH Söderström söngkona
talar um líf sitt og list i Norræna
húsinu miðvikudagskvöldið 30.
september kl. 20.30.
Elisabeth Söderström er nú stödd
hér á landi til þess að syngja með
Sinfóníuhljómsveit íslands á fyrstu
tónleikum vetrarins á fimmtudaginn.
Hún mun þó ekki syngja í Norræna
húsinu, heldur ætlar hún að spjalla
um líf sitt sem söngkona.
Elisabeth Söderström fæddist í
Stokkhólmi 1929 og ætlaði sér í fyrstu
að verða leikkona, en sneri sér að
söngnámi. Áður en hún lauk námi
hafði hún sungið hlutverk í Konung-
lega leikhúsinu, sem réð hana til starfa
árið 1950. Árið 1959 söng hún í Metro-
politanóperunni og síðan hefur
frægðarferill hennar verið óslitinn.