Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
25
Túnis:
Bókstafstrúarmenn
dæmdir til dauða
Beírút, Túnis.
DÓMSTÓLL í Túnis kvað á í Tunis skulu gjalda fyrir með höfði
sunnudag upp dauðadóm yfir sjö sínu," sagði í yfírlýsingu frá sam-
múslímskum bókstafstrúar- tökunum.
mönnum sem sakaðir voru um Sendiherra Túnis í Frakklandi,
að reyna að steypa sljórninni af Mustafa Zaanouni, sagði í gær að
stóli með hjálp írana. Hópur stjóm sín myndi ekki láta hótanir
stuðningsmanna Irana í Líbanon hindra sig í að gera skyldu sína.
sem hefur vestræna gísla í haldi,
hótaði í gær að myrða túniska
embættismenn ef dauðadómnum
yrði fullnægt.
Tveir þeirra sem dæmdir vom til
hengingar em nú í fangelsi en fimm
ganga lausir. Leiðtogi bókstafstrú-
armannanna Rachid Ghannouchi
var dæmdur til ævilangrar þrælk-
unar en því hafði verið spáð að
hann yrði gerður að píslarvotti ef
hann yrði hengdur. Þrír hinna
dæmdu vom sakaðir um aðild að
sprengjutilræði á hóteli í síðasta
mánuði. Þá særðust 12 ferðamenn.
Saksóknari hafði krafist dauða-
dóms yfir 90 mönnum sem ákærðir
vom fýrir ýmiss konar ofbeldisverk.
Ghannouchi hóf upp íslamskan
sálmasöng þegar dómurinn var upp
kveðinn en við réttarhöldin hafði
hann fullyrt að hreyfing sín beitti
ekki valdi heldur leitaði lýðræðis-
legra umbóta. Hann hefur ennfrem-
ur neitað öllum tengslum við íran.
Samtökin Heilagt stríð í Líbanon
sem hafa meðal annars bandaríska
blaðamanninn Terry Anderson í
haldi sögðust í gær myndu standa
við hótanir um að hefna þeirra sem
teknir yrðu af lífi. „Það verður dýr-
keypt að taka bræður okkar af lífi
og meðlimir kúgunarstjómarinnar
Grönlandsfly:
S-61-N far-
þegaþyrl-
umaraftur
í notkun
Nuuk Grœnlandi. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunbladsins.
GRÆNLENSKA flugfélagið
Grönlandsfly hóf að nýju áætl-
unarflug með S-61-N farþega-
þyrlum sínum á fimmtudag.
Flug þeirra hefur legið niðri
frá því að flutningaþyrlu sömu
tegundar hlekktist á með farm
hangandi neðan í sér.
Orsök óhappsins var sú, að
annar af tveimur hreyflum þyrl-
unnar missti afl. Seinna kom í ljós,
að kúplingsarmur í gírkassa hafði
slitnað óeðlilega fljótt. Sams kon-
ar veila hefur komið fram í vélum
fleiri þyrluflugfélaga upp á
síðkastið, þar á meðal hjá hol-
lenska flugfélaginu KLM, sem
lagt hefur öllum þyrlum sínum af
þessari gerð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Grönlandsfly hafa Sikorsky-verk-
smiðjumar í Bandaríkjunum
þegar hafið rannsókn á fyrmefnd-
um vélarhlutum.
Grönlandsfly hefur nú ijölgað
skoðunum langt umfram það, sem
mælt er fyrir um. Hyggst félagið
þannig tryggja, að skipt verði um
vélarhlutana, áður en nokkrar
vísbendingar koma fram um slit.
Samkvæmt upplýsingum félags-
ins á það ekki að hafa neina hættu
í för með sér, þó að þyrlur af
þessari gerð missi afl á öðmm
hreyflinum. Þær eiga að geta lent
án erfíðleika á einum hreyfli.
Óhappið varð einungis vegna
farmsins, sem hékk neðan í þyrl-
unni í lítilli hæð og við erfíðar
aðstæður.
KORNAX hveitið er svar við breyttum kröfum í
íslenskri matargerð. Þetta nýja íslenska gæða-
hveiti er ávallt ferskt og mýmalað. Það er unnið
úr úrvals hráefnum í hinni fullkomnu hveitimyllu
KORNAX hf. við Sundahöfn.
Nú getur þú glatt fjölskylduna með brauði og
kökum úr fersku gæðahveiti. Og jafnframt sparað
heimilispeningana því að KORNAX hveitið er á
mjög góðu verði!
Reyndu einnig KORNAX rúgmjöl í baksturinn
og við sláturgerðina. Það gefur ferskan keim.
KORNAX - nafn sem bragðlaukarnir leggja á minnið
KORNAX
KORNGARÐI 11 124 REYKJAVÍK SÍMI 688750
Tyrkland:
• •
Orugg forusta flokks Ozals
Ankara, Reuter.
Föðurlandsflokkurínn, flokk-
ur Turguts Ozal forsætisráð-
herra Tyrklands, hefur mikið
forskot á keppinauta sína, að þvi
er fram kemur í skoðanakönnun
sem birt var á sunnudag. Þing-
kosningar verða í Tyrklandi 1.
nóvember næstkomandi.
Niðurstöður könnunarinnar voru
birtar í dagblaðinu Milliyet og mun
Föðurlandsflokkurinn fá 48,8 pró-
sent atkvæða samkvæmt henni.
Flokkur hægri manna sem nefnist
„Einstigi sannleikans" fær sam-
kvæmt könnuninni 10,9 prósent
atkvæða og sósíaldemókratar 10,1
prósent. Verði niðurstöður kosning-
anna í samræmi við könnunina mun
Föðurlandsflokkurinn fá traustan
meirihluta á þingi en 450 fulltrúar
verða kjömir til setu þar.
Turgut Ozal