Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
Pólland:
Bush leggur sveig
á leiði Popieluszko
Varsjá, Reuter.
VARAFORSETI Bandaríkjanna,
George Bush, fór í gær ásamt
Samstöðuleiðtoganum Lech Wa-
lesa og lagði blómsveig á leiði
séra Jerzy heitins Popieluszko,
en honum var sem kunnugt er
rænt af pólskum lögreglumönn-
um og myrtur að loknum pynt-
ingum árið 1984. Við athöfnina
hvatti Bush Pólveija til þess að
halda áfram baráttu séra Popiel-
uszko „til þess að sigrast á hinu
illa með góðu.“
Þegar Bush kom til kirkjugarðs-
ins beið hans hópur fólks, sem
hrópaði „Ekkert frelsi án Sam-
stöðu“. Aldraðir foreldrar Popielus-
zko, Marianna og Wladislaw, stóðu
við hlið Bush um leið og hann
minntist prestsins. „Rödd hans
barst sem bjölluhljómur um landið
og hann skal ekki falla í gleymsku,"
sagði Bush meðal annars.
Sem Bush lagði blómsveiginn,
sem prýddur var smáum banda-
rískum fánum, á leiði Popieluszko
dró hann upp fána Samstöðu úr
vasa sínum og lagði ofan á sveig-
inn. Að athöfninni lokinni rétti hann
fram fingur sína með sigurtákninu,
merki Samstöðu.
Til kirkjunnar komu nokkur þús-
und manns, sem fagnaði þeim Bush
og Walesa og hrópaði m.a.: „Við
viljum Lech, ekki Wojciech", en
Wojciech er skírnamafn Jaruzelski
hershöfðingja.
Fjögurra daga heimsókn Bush til
Póllands lýkur í dag. Meðan á henni
hefur staðið hefur Bush hitt helstu
Bush hefur veríð afskaplega vel tekið í Póllandi og á laugardag var
þessi borði t.a.m. látinn falla niður af svölum við eitt fjölfamasta
torg Varsjár um svipað leyti og Bush átti leið þar um. Á borðanum
stendur: „Hið stríðandi Pólland býður vins sinn, varaforsetann Ge-
orge Bush, velkominn."
fyrirmenn Póllands að máli, þ. á Glemp erkibiskup og Walesa, eins
m. þá Jaruzelski hershöfðingja, og áður er getið.
Leynigreiðslur til kontra-skæruliða:
Ekkja Caseys segir
játningn uppspuna
New York, Reuter.
EKKJA Williams Casey heitins,
sem var yfirmaður bandarísku
leyniþjóustunnar CIA, sagði á
sunnudag að það værí með öllu
ósatt að eiginmaður hennar hefði
játað á banabeði að hafa vitað um
leynilegan stuðning við kontra-
skæruliða í Nicaragua. Banda-
ríska dagblaðið The Washington
Post skýrði frá þvi á laugardag
að Casey hefði játað á sig sakim-
ar í viðtali skömmu áður en hann
lést f maímánuði.
í frétt The Washington Post var
stuðst við viðtal sem blaðamaðurinn
Robert Woodward kveðst hafa tekið
við Casey er hann lá banaleguna.
Woodward segist hafa átt fjögurra
mínútna langt viðtal við Casey en
vill ekki láta uppi hvenær það var
tekið af ótta við að það geti komið
sér illa fyrir þá sem hjálpuðu honum
að komast inn á stofuna þar sem
Casey lá. Woodward hefur nýverið
lokið við bók um bandarísku leyni-
þjónustuna sem nefnist „Leynistríð
CIA 1981-1987“. Woodward kveðst
hafa spurt Casey hvort hann hafí
vitað að ágóði af vopnasölu til íran
hafi runnið til kontra-skæruliða og
segir blaðamaðurinn Casey hafa
kinkað kolli.
Eftirlifandi eiginkona Caseys,
Sophia, sagði í samtali við frétta-
mann bandarískrar sjópnvarpsstöðv-
ar á sunnudag að fullyrðingar
Woodwards væru „helber lygi og
uppspuni". Ray Cline, fyrrum yfír-
maður bandarísku leyniþjónustunn-
ar, lýsti yfír því að saga Woodwards
væri ótrúleg. „Ég tel að frásögn
Woodwards af samtalinu við Casey
á sjúkrahúsinu hljóti að vera upp-
spuni að mestu," sagði Cline. Þótt
Casey hefði vitað um greiðslur til
skæruliða hefði það verið íjarska
ólíkt honum að játa það fyrir Wood-
ward, að sögn Clines.
Woodward og félagi hans Carl
Bemstein afhjúpuðu Watergate-
hneykslið svonefnda sem varð til
þess að Richard M. Nixon sagði af
sér embætti Bandaríkjaforseta árið
1974.
Heimsókn Weinberg-
ers til Persaflóa lýkur
Enn finnast dufl a
Bahrain, Reuter.
í GÆR fundust fleirí dufl á Persa-
flóa, en í sama mund lauk heim-
sókn Caspars Weinbergers,
varnarmálaráðherra Banda-
rikjanna, til flóans. í heimsókninni
ítrekaði Weinberger þá ábyrgð
sem Bandaríkjamenn hefðu tekið
sér á herðar til þess að halda al-
þjóðlegum siglingaleiðum á
svæðinu opnum. Duflin, sem fund-
ust, voru skammt undan strönd
Dubai.
Spenna á flóanum minnkaði ekki
við komu Weinbergers, en menn
vænta enn hefndaraðgerða írana
vegna þyrluárásar Bandaríkjaflota á
íranskt skip í síðustu viku, en skip-
floanum
veijar þess voru staðnir að því að
leggja tundurdufl. Weinberger^gaf á
hinn bóginn lítið út á hótanir Irana:
„Þeir hafa fjasað um hefnd frá árinu
1979 . . .“ og vísaði þar til stofnun-
ar íslamska klerkaveldisins eftir að
Reza Pahlevi, íranskeisara, hafði
verið steypt af stóli.
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC
hermdi í gær að Bandaríkjastjóm
hygðist taka upp fyrirbyggjandi ár-
ásir á skip, sem talið væri að legðu
tundurduflum.
Bandaríkjastjóm vísaði þessu hins
vegar á bug og sagði talsmaður
hennar að slíkar árásir væra alls
ekki á döfínni og hugarburður einn.
Reuter
Á sunnudag átti Bush einkaviðræður við Lech Walesa og að sögn
var Walesa mjög ánægður með fundinn.
Shevardnadze i Suður-Amenku:
Friðarviðræður
og viðskipti verða
efst á baugi
Fyrsta heimsókn sovésks ráðamanns
til Suður-Amenku
Buenos Aires, Reuter.
EDUARD Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna, hóf á
laugardag opinbera heimsókn til
nokkurra ríkja Suður-Ameríku.
Er þetta í fyrsta skipti sem svo
háttsettur sovéskur embættis-
maður sækir riki þessi heim. Talið
er að þessi för sé liður í undirbún-
ingi fyrír heimsókn Mikhails
Gorbachevs til þessa heimshluta,
liklega á næsta árí.
Shevardnadze kom til Brasilíu á
laugardag en hann mun einnig eiga
viðræður við ráðamenn í Argentínu
og Uraguay. Heimsókninni lýkur 7.
október og mun hann koma við á
Kúbu í bakaleiðinni. Afvopnunar-
mál, friðarviðleitni leiðtoga ríkja
Mið-Ameríku og tvíhliða viðskipti
verða einkum til umræðu. „Þetta er
mjög mikilvæg heimsókn og hún
markar ákveðin þáttaskil í utanríkis-
stefnu Sovétríkjanna," sagði Adolfo
Rosselini, talsmaður argentínska
utanríkisráðuneytisins.
Ríkin þijú sem Shevardnadze
sækir heim styðja friðaráætlun sem
forsetar fimm Mið-Ameríkuríkja
samþykktu í síðasta mánuði. Sovét-
menn hafa einnig lýst yfir stuðningi
við áætlunina sem miðar að því að
koma á friði í ríkjum Mið-Ameríku.
Samkvæmt henni verður lýst yfír
vopnahléi í átökum stjómvalda og
hinna ýmsu skæraliðahreyfinga
þann 7. nóvember auk þess sem hún
kveður á um að stjómarandstæðing-
um verði sleppt úr haldi og mann-
réttindi virt.
Á undanfömum áram hafa sam-
skipti Sovétríkjanna og ríkja Suður-
Ameríku farið batnandi. Þetta má
að hluta til rekja til aukinna við-
skipta. Vöraskiptajöfnuðurinn hefur
verið Sovétmönnum óhagstæður.
Þeir hafa keypt hráefni frá nokkram
ríkja Suður-Ámeríku en hins vegar
hefur þeim gengið treglega að selja
útflutningsvörar til þessara landa,
sem flest era skuldum vafín. Að
Kúbu frátaldri er Argentína helsta
viðskiptaland Sovétmanna í þessum
heimshluta. Komútflutningur Arg-
entínumanna til Sovétríkjanna jókst
veralega eftir að Jimmy Carter, fyrr-
um Bandaríkjaforseti, setti á kom-
sölubann í kjölfar innrásar sovéska
hersins í Afganistan árið 1979. Þá
hafa Argentínumenn einnig lýst sig
fylgjandi banni við smíði geim- og
efnavopna og segja stjómarand-
stæðingar í érgentínu að þessi
afstaða stjórnar Rauls Alfonsín for-
seta hafi treyst sambandið við
Kremlveija.
Fundur fulltrúa sjö iðnríkja:
Samþykkt að standa
við fastgengisstefnu
Washington, Reuter.
RÁÐHERRAR og bankastjórar
sjö vestrænna iðnríkja samþykktu
á laugardag að standa við Lo-
uvre-samkomulagið frá því í
febrúar um stöðugt gengi helstu
gjaldmiðla. Bandaríkjamenn
höfðu fyrir fundinn farið fram á
að Bandaríkjadal yrði gefið svigr-
úm til að lækka gagnvart öðrum
gjaldmiðlum.
Fulltrúar Bandaríkjanna, Japans,
Vestur-Þýskalands, Frakklands,
Bretlands, Ítalíu og Kanada sam-
þykktu einnig að ríki með hagstæðan
viðskiptajöfnuð og þá einkum Japan
og V-Þýskaland héldu áfram að örva
eftirspum á innanlandsmarkaði.
Einnig var lagt hart að Bandaríkja-
mönnum að minnka hallann á ríkis-
sjóði.
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna,
James Baker, benti á nokkum
árangur stjómar sinnar. Líkur væra
á að hallinn á ríkissjóði yrði á þessu
ári 60 milljörðum Bandaríkjadala
minni en áætlað var. Einnig nefndi
hann yfírlýsingu Ronalds Reagan
fyrr um daginn þar sem fram kom
að hann myndi leggja fram fram-
varp um lög sem þvinguðu fram
minni halla á ríkisbúskapnum.
Á fundinum var einnig rætt um
„óheiðarlegar samkeppnisaðferðir"
sumra Asíuríkja á borð við Taiwan,
Singapore og S-Kóreu en þessi ríki
vora sökuð um að halda gengi gjald-
miðla sinna of lágu gagnvart
Bandaríkjadal.
Fjármálamenn víða um heim tóku
samþykkt fundarins vel því margir
höfðu óttast að fallið yrði frá Lo-
uvre-samkomulaginu um fast gengi.
Sumir höfðu þó á orði að árangur
fundarins væri lítill og svo virtist
sem „mestur tími hefði farið í að
drekka kaffí".