Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
27
Astralía:
Ný tegund
lyfjagegn
krabbameini
og MS
Canberra. Reuter.
ÁSTRALSKIR vísindamenn hafa
þróað nýja tegnnd sykrunga-
lyfja, sem þeir telja að geti komið
í vcg fyrir, að krabbamein og
mænusigg nái að breiðast út í
likamanum.
Dr. Christopher Parrish, sem
starfar hjá Þjóðarháskólanum í
Astralíu, sagði á föstudag, að lyfín
gætu einnig komið í veg fyrir, að
líkaminn hafnaði ígræddum líffær-
um.
Parrish sagði, að lyfin hefðu að
níu tíundu hlutum komið í veg fyr-
ir útbreiðslu annars stigs brjóst-
krabbameins í rottum og algerlega
heft útbreiðslu mænusiggs á byij-
unarstigi.
Hann sagði, að tilraunir á dýrum
stæðu enn yfír og tvö til þrjú ár
væru í, að unnt yrði að hefjast
handa við tilraunir á mönnum.
Lyfín eru gerð úr súlfatmettuð-
um fjölsykrungum, sem hafa verið
einangraðir í slímhimnu lungna úr
svínum, nautgripum og sauðfé.
Parrish, sem er ónæmisfræðing-
ur, sagði, að mikilvægasta upp-
götvunin varðaði sameindalykilinn,
sem gerði boðskipti frumnanna
möguleg.
„Við erum að reyna að plata
frumurnar til að forðast að fara á
þá staði, sem þær smjúga venjulega
inn í, með því að nota þessi lyf, sem
líkja eftir sameindalyklinum," sagði
hann.
„Lyfin hafa engin áhrif á krabba-
meinsæxlin, en þó eru miklir
möguleikar á, að þau geti í framtíð-
inni ráðist gegn meininu sjálfu,
einkum þegar þau eru notuð með
kortísóni," sagði Parrish.
Súlfatmettaðir fjölsykrungar
fínnast í öllum frumum manna og
dýra og eru meðal uppistöðuefna
frumnanna. En það var ekki fyrr
en með rannsóknum áströlsku
vísindamannanna, að ljóst varð, að
hlutverk þessara efna er fjölþættara
en áður var talið.
Svíþjóð:
Jafnaðarmenn
vilja frelsa
búrhænsnin
Stokkhóimi. Reuter.
SÆNSKIR kjúklingabændur
standa nú frammi fyrir því að
verða að bæta vistarverur fiðr-
aðra skjólstæðinga sinna í kjölfar
þeirrar samþykktar Jafnaðar-
mannaflokksins að banna búra-
uppölslu kjúklinga.
Landsþing Jafnaðar. lanna-
flokksins - sem ræður mestu um
stefnumótun flokksins - samþykkti
ályktun þess efnis, að flokkurinn
skuli beita sér fyrir lagasetningu,
sem miði að því að frelsa hænur
úr búrum sínum „smátt og smátt".
Félög bænda vöruðu við, að egg
hlytu að hækka í verði, ef rýmkað
yrði um fíðurféð.
Mikill fiðringur hefur verið und-
anfarna mánuði í samskiptum
stjómvalda og umhverfísvemdar-
hópa, sem beitt hafa sér fýrir
aðgerðum í því skyni að gera verk-
smiðjuframleiðslu í landbúnaði
mannúðlegri.
Einn af forkólfum umhverfís-
vemdarmanna, barnabókahöfund-
urinn Astrid Lindgren, gagnrýndi
landbúnaðarráðuneytið harðlega
fyrr á þessu ári fyrir að látast ekki
sjá hnignunina í sænskum land-
búnaði og matvælaframleiðslu.
Skoðanakönnun í Kína:
Vilja taka meiri áhættu í lífinu
Reuter
Amman með kisu
SÚ gamla á myndinni heldur
á kisu sinni sem hún vildi selja
fyrir fimm rúblur á gælu-
dýramarkaðnum í Moskvu.
Peking, Reuter.
KÍNVERJAR líta á sjálfa sig
sem iðjusamt, hlýðið og spar-
samt fólk, en nú er svo komið
að þeir vilja fremur taka
áhættu í lífinu en lifa þvi í ör-
yggi, ef marka má skoðana-
könnun, sem blaðið China Daily
lét gera í Kína og birtist í gær.
í skoðanakönnuninni kváðust
flestir aðspurðra telja að kínverska
þjóðin væri íhaldsöm fremur en
ævintýragjöm. Sjálfir vildu þeir
aftur á móti auka samkeppni á
vinnumarkaði, þótt það kynni að
hafa atvinnuleysi í för með sér. I
blaðinu sagði að þeir, sem gerðu
skoðanakönnunina, teldu niður-
stöðumar sýna að íhaldsemi í
skoðunum, sem gæti staðið nýj-
ungum í þjóðlífinu fyrir þrifum,
væri á undanhaldi.
Skoðanakönnunin tók til 4244
borgarbúa og vom þeir beðnir að
lýsa helstu þjóðareinkennum
Kínverja með þremur orðum.
Helmingur sagði að Kínverjar
væm „iðjusamir" og „sparsamir",
rúmlega þriðjungur lýsti þjóðinni
sem „raunsærri", „íhaldsamri" og
„hlýðinni", 18,6 prósent sögðu
Kínverja „gáfaða“ og aðeins 2,7
prósent nefndu „ævintýragimi".
Rúmlega helmingur aðspurðra
kvaðst fremur vilja vinna krefjandi
störf og eiga atvinnuleysi á hættu,
en að vera í auðveldri og ömggri
vinnu. Var því bætt við að flestir
hefðu eflaust fremur viljað öryggi
en áhættu, hefði könnunin verið
gerð fyrir nokkmm ámm.
GYLMÍR/SÍA