Morgunblaðið - 29.09.1987, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
Helmingur íbúa Mosfellsbæjar í kröfugöngu:
it
RÚMLEGA tvöþúsund Mosfell-
ingar gengu fylktu liði á sunnu-
dag að borgarafundi við Hlégarð
til vekja athygli á slæmu ástandi
umferðarmála i Mosfellsbæ. Á
fundinum var samþykkt ályktun
sem afhent var Birgi Isleifi
Gunnarssyni, starfandi sam-
gönguráðherra, þar sem yfirvöld
samgöngumála voru beðin um
að beita sér fyrir umbótum í
umferðarmálum bæjarins.
Ibúar í Mosfellsbæ, á öllum aldri,
gengu í rigningarveðri eftir Vestur-
landsvegi síðdegis á sunnudag að
félagsheimili bæjarins að Hlégarði.
Gengið var frá tveimur stöðum,
annar hópurinn frá mótum Vestur-
landsvegar og Þingvallavegar og
hinn frá mótum Vesturlandsvegar
og Hlíðartúns. Á meðan á göngunni
stóð, var Vesturlandsvegur lokaður.
Við félagsheimilið var síðan haldinn
almennur borgarafundur, þar sem
flutt voru ávörp. Séra Birgir Ás-
geirsson, sóknarprestur og einn
nefndarmanna í framkvæmdanefnd
göngunnar bar ályktun frá nefndar-
mönnum upp til samþykkis á
borgarafundinum og var sú ályktun
samþykkt samhljóða og með lófa-
taki. Birgir afhenti því næst Birgi
ísleifi Gunnarssyni ályktunina, en
hann gegnir störfum samgönguráð-
herra í forföllum Matthíasar Á.
Mathiesen.
Ályktun borgfarafund-
arins
Alyktun íbúa Mosfellsbæjar var
svohljóðandi: „Við minnum okkur á
að Vesturlandsvegur og Þingvalla-
vegur eru fjölfamir þjóðvegir, sem
liggja um byggðarlagið, og því beri
okkur bæjarbúum að taka fullt tillit
■til þess, þegar við eigum leið um
eða yfír þessa vegi.
Við minnum aðra vegfarendur
alvarlega á, að þjóðvegimir, sem
liggja um Mosfellsbæ, eru einnig
bæjarbrautir , þar sem sífelld um-
ferð bæjarbúa er til staðar, ekki
síst bama og unglinga. Því beri
þeim, sem um bæinn fara, að sýna
fyllstu tillitsemi og aðgæslu og virða
allar þær umferðarreglur, leiðbein-
ingar og hraðatakmarkanir, sem
uppi em hverju sinni.
Við biðjum hæstvirtan sam-
gönguráðherra landsins að leggja
sitt af mörkum til að raunhæfar
úrbætur verði gerðar sem fyrst, sem
auki öryggi vegfarenda og stuðli
að betri og hættuminni umferð um
þann hluta þjóðvegarins, sem liggur
um Mosfellsbæ. Um leið lýsum við
yfír stuðningi okkar við margítrek-
aðar óskir bæjarstjómar og lögreglu
í þessum málum á undanfömum
árum.“
„Skil óskir bæjarbúa“
Eftir að hafa veitt viðtöku álykt-
un fundarins, sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson í samtali við Morgun-
blaðið að hann keyrði æði oft í
gegnum Mosfellsbæ eftir Vestur-
landsvegi og hefði oft furðað sig á
því hversu umferðin væri hröð. „Eg
skil því óskir og aðgerðir bæjarbúa
til að draga úr hraða og slysa-
hættu." Birgir sagði að yfírvöld
samgöogumála hlytu að taka fullt
mark á þessum ábendingum
bæjabúa og flýta aðgerðum til úr-
bóta. Hann benti þó á að fram-
kvæmdir við Vesturlandsveg væru
ekki á vegaáætlun fyrir næsta ár.
Morgunblaðið/RAX
Séra Birgir Ásgeirsson sóknarprestur afhendir Birgi ísleifi Gunnars-
syni, starfandi samgönguráðherra ályktun borgarafundarins.
Sýnir hug- okkar
Séra Birgir Ásgeirsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að þeir
sem hefðu unnið að undirbúningi
göngunnar hefðu gert sér um vonir
um 1.200-1.500 þátttakendur í góðu
veðri. „En að helmingur bæjarbúa
skyldi mæta í þessari rigningu er
hreint frábært og sýnir glögglega
hug bæjabúa í þessu máli.“ Birgir
kvað menn ekki vera að leggja neitt
til, enda væru þeir ekki neinir fag-
menn, heldur væri verið að hvetja
yfírvöld til umhugsunar um ástand-
ið og bæjarbúar væru með þessu
að sýna að þeir væru ósáttir við
það. „Það er margt sem kemur til
greina til úrbóta; aukin löggæsla,
auknar leiðbeiningar við umferð,
umferðarljós og brúarframkvæmd-
ir.“ Birgir vildi koma á framfæri
þakklæti til til allra þeirr bæjarbúa,
sem tekið hefðu þátt í aðgerðunum,
svo og til þingmanna kjördæmisins
og ráðherra fyrir að koma og taka
við ályktuninni.
Lifa í sátt við veg’inn
„Við verðum fyrst og fremst að
reyna að lifa í sátt við veginn," sagði
Páll Guðjónsson bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar í samtali Morgunblaðið
að lokinni göngunni. „En einnig
hljótum við að gera kröfu um skjót-
ar úrbætur á veginum, til dæmis
með umferðljósum á mótum Þing-
vallavegar og Vesturlandsvegar og
með undirgöngum undir Vestur-
landsveg. Þriðji þátturinn í þessu
máli eru aðgerðir til þess að gera
vegfarendum betur ljóst að þeir eru
að aka í gegnum þéttbýli. Að end-
ingu þarf síðan að huga að framtí-
ðalausn umferðarmála bæjarins.
Aðalskipulag gerir ráð fyrir ákveðn-
um leiðum, en ef ekki er unnt að
fara þá leið eru bæjaryfirvöld til
umræðu einfaldari leiðir, sem einnig
byðu upp á varanlegar úrbætur."
Eitt af biýnustu hagsmunamál-
um Mosfellsbæjar að sögn bæjar-
stjórans, er að fá eigin löggæslu,
en sem stendur þjónar lögreglan í
Hafnarfirði Mosfellingum. „Með því
móti yrði tryggð aukin viðvera og
bætt löggæsla," sagði Páll. Hann
benti hins vegar á að það mál væri
háð fjárveitingum og til að fá fulla
löggæslu þyrfti átta lögregluþjóna.
„Eftir að við fengum kaupstaðar-
réttindi, hefur þrýstingurinn á
stjómvöld aukist og trúi ég ekki
öðru en að flárveitingavaldið verði
við þessari ósk, enda höfum við í
áranna rás ekki verið dýrir á fóðrun
hjá því.“
Morgunblaðið/RAX
Talið er að rúmlega tvöþúsund manns hafi tekið þátt í hópgöngu
Mosfellinga eftir Vesturlandsvegi. Hér getur að sjá hluta hópsins,
sem gekk frá mótum Vesturlandsvegar og Hlíðatúns.
Morgunblaðið/RAX
Mosfellingar samþykktu ályktun um umferðarmál samhljóða á úti-
fundinum.
Sljórnvöld
krafín úrbóta á
umférðarmáhim