Morgunblaðið - 29.09.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
35
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Steypubifreiða-
stjóra
vantar.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 36470.
Steypustöðin hf.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir að ráða duglegt fólk til starfa í
uppvask í eldhúsi. Vaktavinna. Góð laun í boði.
Upplýsingar á staðnum og í símum 36737
og 37737 fyrir kl. 17.00.
WyilÍdfHl
HALLARMUI.A SIMI 37737 og 36737
Sölumenn
Vegna aukinna umsvifa þurfum við að ráða
tvo harðduglega sölumenn. Við bjóðum
fyrsta flokks vöru og góð sölulaun.
Upplýsingar í síma 44422.
Natura Casa.
Vélstjóri
2. vélstjóra vantar á Rauðsey, AK 14, sem
fer á loðnuveiðar.
Upplýsingar í símum 93-11014 og 93-11854.
Haraldur Böðvarsson & Co hf.
Háskólanemi
í viðskiptafræði óskar eftir vinnu á morgnana
til hádegis.
Upplýsingar í síma 45734.
Trésmiðir
-trésmiðir
Ef ykkur vantar mikla og vel borgaða vinnu,
hvort heldur sem er úti eða inni, hafið þá
samband við okkur.
Mikil verkefni í allan vetur.
Qysteintak hf
VERKTAKI BÍLDSHÖFÐA 16, 112 REYKJAVÍK
■■l——— HW-I.— 1.1 ... i '»
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Auglýsing um almenna
skoðun ökutækja í
Reykjavík í október 1987
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoð-
unar 1987 sem hér segir:
1. Eftirtalin ökutæki sem skráð eru 1986 eða
fyrr:
a. Bifreiðir til annara nota en fólksflutn-
inga.
b. Bifreiðir, er flytja mega 8 farþega eða
fleiri.
c. Leigubifreiðir til mannflutninga.
d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu í
atvinnuskyni án ökumanns.
e. Kennslubifreiðir.
f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g. Tengi- og festivagnar, sem eru meira
en 1500 kg. að leyfðri heildarþyngd.
2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1. sem
skráðar eru nýjar og í fyrsta sinn 1984
eða fyrr. Sama gildir um bifhjól.
Skoðun fer fram virka daga aðra en laugar-
daga frá kl. 08.00 til 15.00 hjá Bifreiðaeftirliti
ríkisins, Bíldshöfða 8, Reykjavík á tímabilinu
01.10 til 30.10 ökutæki nr. R-62501 og yfir.
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram gild
ökuskírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiða-
skatts og vottorð um að vátrygging ökutækis
sé í gildi.
Skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Á
leigubifreiðum skal vera sérstakt merki með
bókstafnum L, einnig gjaldmælir, sem sýnir
rétt ökugjald á hverjum tíma. I skráning-
arskírteini skal vera áritun um það, að
aðalljós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31.
júlí 1987.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
24. september 1987,
Böðvar Bragason.
Námskeið um vökvakerfi
ætlað starfandi málmiðnaðarmönnum, eink-
um þeim sem fást við uppsetningu, viðhald
og umsjón með vökvakerfum verður haldið
dagana 8. okt. til og með 16. okt. kl. 8.30-
16.00 í félagssal Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins, Borgartúni 16. Þátttökugjald
er kr. 15.000,- Innifalin eru námsgögn og
kaffi.
Upplýsingar og innritun í símum 687440 og
687000.
B
FRflEÐSL UMIÐSTOÐ
IÐNAÐARINS
Styrkirtil háskólanáms
í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki
handa erlendum námsmönnum til að stunda
nám í Svíþjóð námsárið 1988-89. Styrkir
þessir eru boðnir fram í mörgum löndum og
eru öðru fremur ætlaðir til náms sem ein-
göngu er unnt að leggja stund á í Svíþjóð.
Styrkfjárhæðin er 3.880 s.kr. á mánuði, þæ.
9 mánuði. Til greina kemur að styrkur verði
veittur í allt að þrjú ár.
Nánari upplýsingar um styrki þessa fást í
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, en umsóknir skulu sendar til
Svenska Institutet, box 7434, S-103 91
Stockholm og lætur sú stofnun í té tilskilin
umsóknareyðublöð fram til 1. desember nk.,
en frestur til að skila umsóknum er til 15.
janúar 1988.
Menntamálaráðuneytið,
23. september 1987.
Styrkirtil háskólanáms
í Sviss
Svissnesk stjórnvöld bjóða fram í löndum,
sem aðild eiga að Evrópuráðinu, 15-19 styrki
til háskólanáms í Sviss háskólaárið 1988-89.
Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara
styrkja muni koma í hlut íslendinga. Styrkirn-
ir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms
við háskóla og eru veittir til 9 mánaða náms-
dvalar. Nauðsynlegt er að umsækjendur
hafi nægilega þekkingu á frönsku eða þýsku
og þurfa þeir að vera undir það búnir, að á
það verði reynt með prófi. Umsækjendur
skulu eigi vera eldri en 35 ára og hafa lokið
háskólaprófi áður en styrktímabil hefst.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 1. desember nk. á tilskildum
eyðublöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið,
23. september 1987.
Námskeið um stýritækni
- loftstýringar
ætlað sveinum í greinum málmiðna og öðrum
sem annast loftbúnað, verður haldið í Vél-
skóla íslands og hefst mánudaginn 5. okt.
kl. 13.00. Þátttökugjald er kr. 10.000,-
Innifalin eru námsgögn og kaffi.
Upplýsingar og innritun í símum 687440 og
687000.
frn
Styrkirtil náms
í Sambandslýðveldinu
Þýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt
íslenskum stjórnvöldum, að boðnir séu fram
eftirtaldir styrkir handa íslendingum til náms
og rannsóknastarfa í Sambandslýðveldinu
Þýskalandi á námsárinu 1988-1989:
1. Fjórir styrkir til háskólanáms.
Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k.
tveggja ára háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunám-
skeið sumarið 1988.
Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs
háskólanámi og hafa góða undirstöðu-
kunnáttu í þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til náms-
dvalar og rannsóknastarfa um allt að
fjögurra mánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 10. nóvember nk. Sérstök
umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
23. september 1987.
Æðardúnsbændur
- æðardúnsbændur
Nú er tækifæri til að komast inn á Japans-
markað. Hef fengið pöntun fyrir 100 kg. af
æðardúni.
Örugg greiðsla, gott verð.
Þeir sem vilja vera með við að vinna nýjan
markað, vinsamlegast hafið samband strax.
E. G. heildverslun,
Elías Gíslason,
Neðstaleiti 14, Reykjavik,
sími 687685.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Þekkt rafeindafyrirtæki óskar eftir leiguhús-
næði í Reykjavík fyrir skrifstofu og þjónustu-
deild. Æskileg stærð 200-300 fm á jarðhæð.
Vinsamlegast skilið inn upplýsingar á auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir mánudaginn 5. okt. nk.
merkt: „Skrifstofuhúsnæði — 4573“.