Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
Austurland: Rafmagnsverkstæöi Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
I Vestmannaeyjar: Geisli, Vestmannaeyjum
| Suðurnes: Rafiðn, Keflavík
- Vestfirðir: Póllinn, ísafirði
| Norðvesturland: Rafmagnsverkstæði Kf. — Sauðárkróki
.Æ’RÖNNING
SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/SÍMI (91)84000
/X Málmstanaur kr
x u *eiðor(5°°» £
Koffimó/cooosQ kr
25%söluskattur
Samtalskr
Pmij
UfYlQOojo
1710
2.451
3.064
Duni er ódýrasti barinn í bœnum-
fum
$S£f
°9pláss.
J
b,1-dshoi
’fda u .
Hr= x
reglu!
BADMINTON!
Eftirtaldir tímar eru lausir í vetur:
dfús 1 15 valla húg). N
HÁNUD ÞW ÐJUD HIÐVIKUD FUIMTUD FÖSTUD LAUGARD SUNNUD.
08.00 08.00 08.00 08.00 08.00 0910 09 1 0
10.30 10.30 10.30 10.30 10.30 10.00 10.00
11.20 11.20 11.20 11 20 11.20 11.40 11.40
13.00 \ 13.00 13.00 1300 13.00 22.10 12.30
HÚS 2 (12 valla hús):
HÁNUD T>W ÐJUD MIÐVIKUD FIHHTUD F ÖSTUD.LAUGARD SUNNUD.
12.00 12.00
22.40 22.40
12.00
12.00
22.40
22.40
12.00 09 20 09 20
16.50 10.10 10.10
1920 11.00 11.00
21.00 11.50 11.50
21.50 12.40
22.40 1330 13-30
14.20 14.20
1510 1510
16.00 16.00
16.50 16.50
17.40 17.40
UNULINGATÍHAR:
HÁNUD.PWÐJUD.MIÐVIKUD.FIMnTUD.FÖSTUD.
09.40 09.40
13 30 13.30 1330 13 30 13.30
14.20 14.20 14.20
1510 1510 1510 1510 15 10
16.00 16.00 16.00 16.00 16.00
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur Gnoðarvogi l s.ö2266
Afmæliskveðja:
Dagbjört H. Andrés-
dóttir í Sviðnum
90 ára afmæli á í dag, 29. sept-
ember, Dagbjört Hannesina Andr-
ésdóttir, fyrrum húsfreyja í
Sviðnum á Breiðfirði.
Hún fæddist í Stykkishólmi 29.
september 1897, dóttir Pálínu Jóns-
dóttur og Andrésar Jónssonar sem
bæði voru eyjamenn.
Snemma vandist Dagbjört við
alla algenga vinnu og lengst hefír
hún búið í eyjum, þ.e. Bjarneyjum,
þar sem hún var vinnukona um
mörg ár. Síðan fór hún til Jens
Nikulássonar í Sviðnum og bjó með
honum alla tíð síðan. Þau eignuðust
son, Nikulás, en áður hafði -Dag-
björt eignast tvo syni, Ragnar og
Magnús. Fyrir um 20 árum brann
bærinn í Sviðnum og þá festi Jens
kaup á Svefneyjum þar sem þau
bjuggu æ síðan eða þar til fyrir
nokkrum árum að Jens lést hér í
sjúkrahúsinu. Þá tók Nikulás sonur
hans við.
Dagbjört hefir seinustu ár átt
heima í Stykkishólmi og dvelur nú
í sjúkrahúsinu þar, em eftir aldri
og vel viðræðugóð. Nikulás sonur
hennar hefir um skeið starfað í
Svíþjóð og þar var Dagbjört með
honum um tíma, var það henni
mikil upplyfting.
„Það var ágætt að búa í Bjarneyj-
um. Við höfðum það ágætt þar.
Þangað komu margir í heimsókn,
góðir gestir sem lífguðu vel upp á
eyjalífið og svo komu menn af landi
sem leið áttu til Flateyjar við hjá
okkur, fengu sér kaffisopa. Þetta
var tilvalinn áfangi. Það var
kannski ekki mikið ríkidæmi í mínu
lífi en allt gekk þetta vel og maður
var svo innilega glaður yfir hvetjum
áfanga sem unninn var. Eyjalífið
hafði sín litbrigði og svo gaf guð
mér gleði og ánægju í vöggugjöf
og það er ekki svo lítið og í dag
líður mér vel,“ segir Dagbjört að
lokum.
Henni berast hlýjar kveðjur og
árnaðaróskir á afmælinu og þakkir
fyrir góða samfylgd. Megi hamingj-
an alla tíð fylgja henni.
Arni
Aðalfundur Bílgreinasambandsins:
Innflutningnr nýrra
bíla er ekki óeðli-
lega mikill á árinu
AÐALFUNDUR Bílgreinasam-
bandsins var haldinn á Hótel
KEA á Akureyri Iaugardaginn
12. september s.l. Þátttakendur
á fundinum, félagsmenn, makar
þeirra og gestir, voru um 130
talsins.
Fundurinn hófst með sérgreina-
fundum, þar sem meðal annars var
rætt um einingakerfi fyrir verk-
stæðisvinnu, viðgerðaskýrslur,
skipulag eftirmenntunar, bifreiða-
skoðun, nýskráningu bíla, árgerðar-
skráningu og verksvið smurstöðvar-
manna.
Því næst flutti Jón Sigurðsson,
dómsmálaráðherra, erindi sem fjall-
aði meðal annars um breytingar á
starfsemi Bifreiðaeftirlitis ríkisins
og möguleika á því að stofna nýtt
fyrirtæki sem tæki við af Bifreiða-
eftirlitinu. Einnig ræddi hann um
ný umferðarlög og reglugerðir um
umferð.
Á eftir ræðu dómsmálaráðherra
hófust almenn aðalfundarstörf þar
sem meðal annars var kosið í stjórn
sambandsins. í stjórnina voru
kjörnir Gísli Guðmundsson, formað-
ur, Björn Ómar Jónsson, Ingvar
Helgason, Sigfús Sigfússon, Svan-
laugur Ólafsson, Jóhannes Ást-
valdsson, Sigurður Helgi Óskarsson
og Gestur Halldórsson.
í fundarlok samþykktu fundar-
menn ályktanir um bifreiðainnflutn-
ing, bifreiðaskoðun, tollamál og
nauðsyn betri menntunar og endur-
menntunar starfsfólks í bílgreinum.
í ályktun fundarmanna um bif-
reiðainnflutning segir að þrátt fyrir
að innflutningur bifreiða hafi aukist
mjög mikið í kjölfar tollalækkunar
á bílum, þá verði meðalinnflutning-
ur nýrra bifreiða á árunum 1983
til 87 um 10.700 bílar á ári, ef 20
þúsund nýir bílar yrðu fluttir inn á
þessu ári. Þar sem landsmenn hafi
átt 126 þúsund bíla í ársbyijun
1987, þá sé þessi innflutningur ein-
ungis til kominn vegna eðlilegrar
endumýjunar bifreiðanna.
Fundarmenn ályktuðu um bif-
reiðaskoðun á þá leið að gera þyrfti
átak til að bæta hana, þannig að
hún verði sambærileg og í ná-
grannalöndum okkar. Nauðsynlegt
sé að afskrá bifreiðar með laskaðan
öryggisbúnað og að þær verði ekki
skráðar að nýju fyrr en fyrir liggi
vottorð frá viðurkenndu verkstæði
um ástand bifreiðarinnar.
Fundarmenn ítrekuðu fyrri tillög-
ur þeirra um að endurskoðun
bifreiða verði heimiluð á viður-
kenndum verkstæðum um land allt.
Verkstæðin fái jafnframt heimild
til að taka að sér almenna skoðun,
fullnægi þau þeim kröfum sem
gerðar yrðu til þeirra í þeim efnum.
I ályktun fundarmanna um tolla-
mál segir að aðflutningsgjöld á
bílavarahlutum séu há eða 70% og
25% söluskattur lagður á þá. Sömu
gjöld séu lögð á tæki ætluð til notk-
unar á bifreiðaverkstæðum en aðrar
iðngreinar, sem flokkaðar séu undir
samkeppnisiðnað, fái aðflutnings-
gjöld og söluskatt felldan niður á
þeim vélum og tækjum sem notuð
séu í þeim.
Að lokum vildu fundarmenn
vekja athygli á nauðsyn þess að
bæta grunnmenntun iðnaðarmanna
í bílgreinum. Menntun þeirra þurfi
að endurspegla þarfir markaðarins
á hveijum tíma. Til þess að svo
megi verða þurfi að stórbæta alla
kennsluaðstöðu iðnmenntunar í
bílgreinum, svo og skipulag hennar.
Einnig þurfi að auka möguleika
iðnaðarmanna í bílgreinum til end-
urmenntunar i þeim, svo og leggja
áherslu á að fá menn aftur til starfa
í þessum greinum sem horfið hafa
til annarra starfa.