Morgunblaðið - 29.09.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
41
Afmæliskveðja:
Lív Jóhannsdóttir
Nú á dögum tíðkast að flokka
fólk í þjóðfélagshópa eftir aldri.
Fólk er böm, unglingar, ungt fólk,
miðaldra, roskið og aldrað. Þessir
flokkar hafa hver sína sérstöðu með
tilheyrandi „athvarfi, félagsmiðstöð
og þingmanni".
Enn eru þó til einstaklingar sem
megna að rífa sig út úr þessu ald-
ursflokkakjaftæði og ganga þvert
á allar venjur í þeim efnum. Þeir
hafa einfaldlega engan aldur og
umgangast því alla jafnt. Fremst
meðal jafningja í hópi aldursleys-
ingja er tengdamóðir mín Lív
Jóhannsdóttir.
Þegar ég barði Lív augum fyrsta
sinni fyrir nær þrem áratugum þá
hafði hún ekki neinn aldur frekar
en nú. Hún var hispurslaus, elsku-
leg, beinskeytt og drepfyndin. Hún
hafði þá tegund af viðmóti sem
afvopnar öll tegundareintök mann-
skepnunnar á svona um það bil 5
mínútum í verstu tilfellum. Og nú
sem fyrr hlakka ég jafnmikið til að
hitta þessa aldurslausu konu, hvort
sem er í fjölskylduheimsóknum, um
helgar eða við önnur tilefni.
Þegar farið er yfir lífshlaup Lívar
þá strandar maður ekki svo mjög
á forstjóratitlum eða riddarakross-
um, enda mundi hún fussa við
svoleiðis hégóma. Þó þekki ég fáa
sem væru betur komnir að vegtyll-
um í lífínu því meðalmaður verður
hún í engu talin.
Hún fæddist 29. september árið
1912 í Osló þar sem faðir hennar,
Jóhann Franklín Kristjánsson, var
að ljúka prófí í húsagerðarlist við
Kongelig Norske Kunst og Hand-
verksskole. Móðir Lívar var Mat-
hilde Wictoria fædd Foss-Gröndahl,
dóttir Olaf Foss, ljósmyndara í Osló,
og Marie Gröndahl frá Osló, Nor-
egi. Jóhann Franklín var fæddur á
Litlu-Hámundarstöðum, Árskógs-
hreppi, sonur Kristjáns Jónssonar
bónda þar og konu hans, Guðrúnar
Jóhönnu Vigfúsdóttur af Krossa-
ætt, en afi Guðrúnar, Gunnlaúgur
Þorvaldsson, er talinn ættfaðir
Krossaættarinnar.
Lív er elst úr hópi 7 systkina,
en næst koma Vilhjálmur læknir í
Jönköping, f. 1913, Hákon
Franklín, kaupmaður, f. 1914,
Kristján Tryggvi, verkfræðingur, f.
1917 — d. 1947 í flugslysinu mikla
í Héðinsfirði ásamt konu sinni og
tveim bömum, Svavar, f. 1919,
skipulagsstjóri Búnaðarbankans,
Herdís María, starfsmaður Teikni-
stofu Landbúnaðarins, f. 1925, og
Guðrún Margrét, ritari og ætt-
fræðingur, f. 1930.
Jóhann, sem var einn af fyrstu
arkitektum þessa lands, var eld-
heitur hugsjónamaður, hugvitsmað-
ur og afburða duglegur. Undir hans
forystu hófst nýtt skeið í bygging-
um til sveita þar sem horfið var frá
lélegum torfhleðsluhúsum til reisu-
legra steinhúsa sem enn í dag bera
af öðrum húsum.
Þetta voru því annasamir tímar
og þegar heilsufar húsmóðurinnar
var ekki upp á marga fiska þá varð
það fljótlega hlutskipti Lívar að ala
önn fyrir systkinum sínum þegar
svo bar undir. Skólagangan varð
því ekki löng þrátt fyrir mjög góðar
námsgáfur. En Lív hefur alltaf til-
heyrt þeim þrönga hópi sem finnst
sælla að gefa en þiggja, enda er
hún systkinum sínum kær og öðrum
sem hana þekkja.
Æskan og unglingsárin liðu hratt
og fljótt dró að því að Lív fyndi sér
lífsförunaut sem var ungur og
glæsilegur Tungnamaður, Eiríkur
Guðlaugsson frá Fellskoti í Bisk-
upstungum. Eiríkur er sonur
Guðlaugs Eiríkssonar bónda í Fells-
koti og Katrínar Þorláksdóttur konu
hans af Fremri-Hálsætt. Guðlaugur
var sonur hagleiksmannsins Eiríks
Einarssonar bróður Guðmundar
Einarssonar eldra frá Miðdal. Eirík-
ur Guðlaugsson er einn af þessum
afbragðsmönnum þar sem heiðar-
leikinn, vinnusemin og góðmennsk-
an eru í fyrirrúmi. Lív og Eiríkur
hafa verið í hamingjusömu hjóna-
bandi í meir en hálfa öld.
Böm þeirra eru Svava, f. 1937
— d. sama ár, Guðlaug Emilía, f.
1940, gift Pétri Elíassyni húsasms-
ið, Hanna Matthildur, f. 1941, gift
Edgari Guðmundssyni verkfræð-
ingi, Katrín, f. 1947, gift Helga
Karlssyni skrifstofustjóra, og Jó-
hann Grétar verslunarstjóri,
kvæntur Þóreyju Rut Jónmunds-
dóttur flugfreyju. Barnabörnin eru
orðin níu og bamabamabömin tvö.
Lív hefur alltaf verið trúuð kona
og hefur unnið mikið og óeigin-
gjamt starf í þágu Laugamessafn-
aðar og veit ég að þar sem annars
staðar er hún mikils metin.
Störf Lávar hafa þó mest verið í
þágu heimilisins þar sem hún hefur
haldið til streitu fyrri iðju sinni, að
miðla öðmm af gæsku sinni.
Eg óska að mega njóta samvista
við tengdamóður mína um alla eilífð
og veit að þannig er farið um alla
afkomendur hennar, tengdafólk og
vini.
Lifðu heil og til hamingju með
daginn.
Edgar Guðmundsson
HOTEL SELFOSS - FRUMSYfi
WhótelW
SELFOSS
FRUMSYNING - HOTEL SELFOSS - FRUMSVNING HÓTEL SELFOSS - FRUMSÝNING HOTEL SELFOSS FRUMSYNING
Frumsýning
laugardaginn 3. okt.
LADDI - EDDA BJÖRGVINS og JÚLÍUS BRJÁNSSON
ásamt hljómsveitinni KARMA kynna:
Frumsýning á stórkostlegri skemmtidagskrá meö úrvals
skemmtikröftum. Húsið opnað kl. 19.00. — Matur fram-
reiddur frá kl. 20.00. — Dansleikur frá kl. 23.30.
ATH. Takmarkaður sýningafjöldi.
MIÐAPANTANIR:
MIÐAVERÐ: Frá mánud. 28. sept.
kr. 2.400,- í Hótelinu. Forsala
Hópafsláttur. aðgöngumiða hefst
Miðaverða á dans- fimmtud. 1. okt.
leik kr. 450,- frá kl. 17.-22.
hote!
SELFOSS
Eyravegi 2, sími 2500
HÓTEL SELFOSS FRUMSÝNING - HÓTEL SELFOSS - FRUMSYNING - HÓTEL SELFOSS - FRUMSYNINC* - HÓTEL SELFOSS FRUMSYNING - HÓTEL SELFOSS FRUMSYNING
.n'nsJa Bns.ins íiJ ilsri nnomabru;! maa tkU .ni; aaaad
NYR FRAKT SOLU-OG
ÞJÓNU STUAÐILI
FYRIR FLUGLEIÐIR
í HOLLANDI FRÁ
l.OKTÓBER 1987.
CAD - Aviation Services B.V.
Cargo Point Building
Schiphol - South
1118 ZP Schiphol
The Netherlands Sími: 020 - 480010
Vöruflutningar um Luxembourg daglega.
F&fffcmfyaát ó ö&&m ^&tókm/
FLUCLEIDIR
HILLUEFNI
iHMBmwtHHMmttmHnumtHWiif