Morgunblaðið - 29.09.1987, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
>
félk f
fréttum
Pylsusalinn í París
Við sögðum frá honum Freddy Risom, pylsusala,
í fréttum um daginn, en hann var þá á leið frá
heimaborg sinni, Kaupmannahöfn, til Parísar. Slíkt
hefði auðvitað ekki verið í frásögur færandi nema
hvað Freddy fór í þetta 2.123 km ferðalag á pylsuvagn-
inum sínum.
Freddy lagði af stað 1. júní, en nú er hann kominn
alla leið til Parísar, og þar var þessi mynd tekin af
kappanum. Astæðan fyrir því að Freddy lagði í ferða-
lag þetta er veðmál sem hann gerði við vin sinn upp
á 35 danska aura, sem mun vera jafnvirði 2 króna
íslenskra, eða 1/40 úr pylsu með öllu. Ferðalag Fredd-
ys vakti mikla athygli, og var honum því boðið af
ferðaskrifstofu nokkurri að gista á fínu hóteli í heims-
borginni, og var Freddy því feginn, því hann var
orðinn þreyttur á einhæfu matarræði í ferðinni, og
því að sofa á vagngólfinu með sinnepsbrúsann sem
kodda.
Freddy er væntanlegur til Kaupmannahafnar í þess-
arri viku - ekki á pylsuvagninum - og þar bíður hans
opinber móttökuathöfn í Friðriksborgarráðhúsi.
Pylsusalinn
frækni, Freddy
Risom, spjallar
við Parísardöm-
ur um ferðalag
sitt.
Pólitískt leikhús
Finnski rithöfundurinn Johan Bargum. Morgunbiaðið/BAR
landi og Ungveijalandi. Í Finnlandi
sýndi Lilla Teatret leikritið í nokkr-
um skólum, og fékk það svo góðar
viðtökur þar, að fínnska mennta-
málaráðuneytið hefur gefíð leik-
húsinu styrk til að standa fyrir 100
sýningum í viðbót í skólum landsins.
Það mun vera sjaldgæft að
fínnskt leikrit nái slíkum vinsældum
erlendis sem „Eru tígrisdýr í
Kongó?“; hveija telur Borgum vera
skýringuna á því? „Það virðist vera
svo að við höfum náð að skrifa leik-
rit sem fólk hefur verið að bíða
eftir. Þetta kemur einstöku sinnum
fyrir rithöfunda, en því miður alltof
sjaldan" sagði Borgum og brosti.
Er hann búinn að slá í gegn? Borg-
um sagðist ekki ala með sér neina
drauma um frægð og frama, en því
væri ekki að neita að það fylgdi
því góð tilfinning að verða vitni að
velgengni leikritsins.
ísland var fyrsta landið fyrir utan
Finnland þar sem „Eru tígrisdýr í
Kongó?“ var tekið til sýningar, en
sýningar Alþýðuleikhússins hófust
í mars á þessu ári, aðeins þremur
mánuðum á eftir Lilla Teatret. Leik-
ritið hefur verið sýnt í 71 skipti,
og eru sýningar nýhafnar aftur fyr-
ir fullu húsi. Þá gaf Sverrir
Hermannsson, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, Alþýðuleikhúsinu
500.000 króna styrk til að sýna
leikritið í skólum landsins. Bargum
gafst þó ekki möguleiki til að sjá
uppfærslu Alþýðuleikhússins að
þessu sinni, því hann hélt utan dag-
inn sem hádegissýningar hófust að
nýju í veitingastaðnum í kvosinni.
Borgum sagði að sig hefði lengi
langað til að koma til Islands; hann
hefði lesið fslendingasögumar
snemma, og hann liti reyndar svo
á að hann væri rithöfundur í anda
þeirrar bókmenntahefðar sem þær
hefðu skapað. Borgum sagði í lokin
að hann væri að vinna að smásag-
nagerð í augnablikinu, og hefði
engin ný leikrit á pijónunum í bráð.
er hundleiðinlegt
- segir höfundur leikritsins „Eru tígrisdýr í Kongó?“
Finnski rithöfundurinn Johan
Bargum var nýlega staddur hér
á landi í boði bókmenntahátíðar.
Okkur íslendingum er Bargum
kannski einkum kunnur fyrir leikrit
sitt „Eru tígrisdýr í Kongó?“, sem
hann samdi í félagi við Bengt Al-
fors. Alþýðuleikhúsið hefur nú sýnt
leikritið í hálft ár, og nýtur það enn
mikilla vinsælda. Við hittum Barg-
um að máli til að forvitnast um
leikritið og höfundinn.
Bargum er þekktur í Finnlandi
fyrir skáldsögur sínar og smásögur,
en hann hefur einnig samið nokkur
leikrit í samvinnu við Bengt Alfors
og Claas Anderson. Hann hefur
unnið mikið við Lilla Teatret í Hels-
inki, þar sem Borgar Garðarsson,
leikari, hefur einnig starfað.
Um tilurð leikritsins „Eru tígris-
dýr í Kongó?" sagði Bargum: „Það
hefur lengi tíðkast hjá Lilla Teatret
að leikritahöfundar hlusti á það sem
helst ber á góma í umræðum fólks
í það og það skiftið, og skrifí svo
leikrit út frá því. Það var því eðli-
legt að skrifa leikrit um eyðni, eða
öllu heldur óttann við eyðni." Leikri-
tið íjallar um tvo rithöfunda sem
reyna að setja sig í spor eyðnisjúkl-
ings; þannig að segja má að það
fjalli að stórum hluta um hugrenn-
ingar þeirra tvímenningana við
samningu leikritsins, og Bargum
viðurkennir fúslega að það megi
þekkja þá Alfors á ýmsum stöðum
í því. Með því að taka þennan pól
í hæðina, þ.e. að fjalla um „venju-
legt fólk“, segist Bargum vonast
til þess að áhorfendur eigi auðveld-
ara með að sjá sjálfa sig á sviðinu.
En hver er boðskapur leikritsins
- er Bargum að reyna að koma ein-
hveijum upplýsingum eða áróðri á
framfæri með hjálp leiklistarinnar?
Bargum gretti sig við þessarri
spumingu og sagði: „Það einfald-
lega gengur ekki upp ef listamenn
eru reyna að standa fyrir beinum
áróðri eða þjóðfélagsfræðslu. Það
sem listin getur gert er að fá fólk
til að hugsa og finna til, og kannski
að gefa því einhveija von.“ Bargum
hélt áfram að tala út frá þessu, og
lýsti því yfir að svokallað „pólitískt
leikhús" væri hundleiðinlegt, þar
sem þar væri sífellt verið að reyna
að segja áhorfandanum hvað hann
ætti að gera. Hann sagðist ekki
skrifa beint fyrir áhorfendur, heldur
„eiga samræður við sjálfan sig“;
og ef honum tækist vel upp við
það, þá fyndi verkið yfirleitt líka
hljómgrunn hjá áhorfendum
„Eru tígrisdýr í Kongó?“ er öðr-
um þræði gamanleikrit, og Bargum
var spurður hvemig það væri hægt
að koma nokkurri gamansemi að í
leikriti um jafn alvarlegt mál og
eyðni? „Mín speki er sú, að því
meira sem gamni og alvöru er
blandað saman í leikriti, því betra,“
sagði Bargum, „mér er alveg
ómögulegt að skilja hvernig hægt
er að gera nokkuð sem er fullkom-
lega alvarlegt."
Leikritið hefur verið geysilega
vinsælt í Finnlandi, og víðar reynd-
ar, því það er nú sýnt á öllum
Norðurlöndunum - þ.á.m. í 7-8 leik-
húsum í Svíþjóð - og verður brátt
tekið til sýninga í Vestur-Þýska-
Láttu okkur í Nýjábæ sjá um
matseldiua á meðan þú verslar
Nú getur þú fengiö heitan og Ijúffengan heimilislegan mat handa allri fjöl-
skyldunni þegar þú verslar í Nýjabæ viö Eiðistorg. Þannig sparar þú tíma og
fyrirhöfn, sem fylgir því aö elda í hádeginu eöa aö loknum löngum og ströng-
um vinnudegi.
Betriþjónusta með lengri opnunartíma
Viö erum alltaf aö auka þjónustuna og nú er opiö hjá okkur frá kl. 9 til 19
mánudaga til fimmtudaga, til kl. 20 á föstudögum og frá kl. 10 til 16 á
laugardögum.
VORUHÚSIt1 EIÐISTORGI
G0TT FÓLK / SÍA