Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
Morgunblaðið/Þoricell
Albert Guðmundsson og Júlfus Sólnes heilsast að loknum kosningum um formann og varaformann.
Albert var kosinn „rússneskri** kosningu, eins og hann orðaði það sjálfur, með lófataki án atkvæða-
greiðslu, en Júlíus hlaut 227 atkvæði og Benedikt Bogason 100.
arsteinar, sem Borgaraflokkurinn
byggir á í baráttu sinni fyrir rétti
einstaklingsins hvar sem fulltrúar
hans fá því við komið. Á þeim
örlagaríku dögum í marsmánuði
sl., á endaspretti kosningabarát-
tunnar, var forgöngumönnum að
stofnun Borgaraflokksins nauð-
ugur einn kostur að stofna stjóm-
málaflokk og bjóða fram í öllum
kjördæmum landsins með örfárra
daga undirbúningi en þola óvenju-
lega valdníðslu ella.“
í stjómmálaályktun Borgara-
flokksins er vfðast all almennt
orðalag í hinum ýmsu málaflokk-
um, að flokkurinn standi með
einstaklingnum í kerfínu, að taka
þurfí á verðbólguvandanum, laun-
amisréttinu, skattamisrétti, að
landið byggist allt eins og land-
kostir bjóði, að stjómunarkerfí
sjávarútvegs og landbúnaðar séu
stórgölluð og flokkurinn fagnar
árangri af afvopnunarviðræðum
stórveldanna og telur brýnt að
unnið sé gegn mengunarhættu í
úthöfum og andrúmslofti.
Landsfundur Borgararflokksins:
Albert kjörinn for-
maður með lófataki
Valddreif-
ingin gekk
ekkiupp
- segirBene-
dikt Bogason
verkfræðingnr
„í heild er ég afskaplega
ánægður með þennan landsfund
þótt prógramið færi aðeins úr
skorðum, þvi við reiknuðum með
að við gætum syndgað upp á
náðina og þetta gekk alveg upp,“
sagði Benedikt Bogason verk-
fræðingur i samtali við Morgun-
blaðið að loknum landsfundi
Borgaraflokksins.
„Þeir sem stóðu að baki mér og
urðu þess valdandi að ég gaf kost
á mér á síðustu stundu til varafor-
manns, sýndu að mínu mati fyllstu
kurteisi, en það kom á óvart að
Ásgeir Hannes skyldi draga sig í
hlé á síðustu stundu. Mér fannst
mjög auðvelt að fara í kosninguna
þótt AJbert væri búinn að gefa út
stuðningsyfírlýsingu við Júlíus Sól-
nes. Ég og mínir menn lögðum
engu að síður áherslu á valddreif-
ingu. Ég var fulltrúi fyrir ákveðinn
hóp, sem einblíndi á valddreifing-
una, en það gekk ekki upp. Ég hef
enga ákvörðun tekið um það hvort
ég býð mig fram aftur til formanns
eða varaformanns."
Júlíus Sólnes varaformaður með 226 atkv.
— Benedikt Bogason hlaut 100 atkvæði
Um 350 manns tóku þátt í kosningu embættismanna Borgara-
flokksins á fyrsta landsfundi flokksins sem haldinn var á Hótel
Sögu sl. föstudag og laugardag. Þó hafði 581 flokksmaður ver-
ið skráður til þátttöku á fundinum samkvæmt upplýsingum
blaðafulltrúa fundarins. Albert Guðmundsson var kjörinn for-
maður án atkvæðagreiðslu með lófataki, en kosið var á milli
Júlíusar Sólnes og Benedikts Bogasonar eftir að Ásgeir Hannes
Eiríksson hafði dregið framboð sitt til baka, en þeir þremenning-
ar höfðu allir tilkynnt um framboð sitt til varaformanns. Ásgeir
Hannes Eiríksson hvatti stuðningsmenn sína til þess að kjósa
Júlíus Sólnes. Úrslit urðu þau að Júlíus Sólnes hlaut 227 at-
kvæði en Benedikt Bogason 100 atkvæði. 4 seðlar voru auðir.
Landsfundur Borgaraflokksins væng stjómmálanna, náð að festa
setti flokknum skipulagsreglur og
mótaði afstöðu flokksins til
ýmissa þjóðfélagsmála. í stjóm-
málaályktun fundarins segir að
landsfundurinn marki tímamót í
stjómmálasögu íslendinga að því
leiti að í fyrsta sinn í 60 ár hafí
stjómmálaflokkur, sem á sjö full-
trúa á Alþingi íslendinga og ekki
er sérstaklega tengdur vinstri
sig í sessi um allar byggðir lands-
ins. „Borgaraflokkurinn," segir í
stjómmálaályktuninni, „hefur sótt
fylgi sitt um allt litróf íslenska
flokkakerfísins. Því veldur kjam-
inn í hugsjón hans, sem höfðar
nánast til hvers einasta manns,
vegna þess hve ríkjandi hann er
í almennu viðhorfí íslendinga.
Mannúð og mildi eru þeir hyming-
Benedikt Bogason og Júlíus Sólnes fagna að lokinni kosningu vara-
formanns.
Ég er mjög
ánægður með
mína stöðu
- segir Júlíus Sól-
nes varaformaður
Borgaraflokksins
„Út af fyrir sig er ég nyög
ánægður með mina stöðu eftir
landsfundinn, ég leyni þvi ekkert,“
sagði Júlíus Sólnes alþingismaður,
nýkjörinn varaformaður Borgara-
flokksins, i samtali við Morgun-
blaðið að loknum landsfundi.
„Ég er þó fyrst og fremst ánægður
með skoðanaskiptin á fundinum og
tel þau gott veganesti inn á Alþingi
fyrir þá 7 þingmenn sem eru til stað-
ar fyrir flokkinn. Annars einkenndist
þessi fundur af frumraun okkar með
landsfund og við tökum mið af því,
bæði í kosningum og umræðum."
Séð yfir hluta fundarsalarins þegar kosningin fór fram.
Borgaraflokkurínn ekki
neitt stundarfyrirbrigði
- segir Albert Guðmundsson
„Það er ljóst að á þessum þróttmikla fundi hafa margir
tekið þátt í að móta stefnu og framtíðarandlit flokksins sem
sýnir að hann er ekki neitt stundarfyrirbrigði," sagði Ai-
bert Guðmundsson formaður Borgaraflokksins í samtali við
Morgxinblaðið að loknum landsfundi Borgaraflokksins.
„Hér er fólk úr öllum lands- er jú aðeins 6 mánaða stjóm-
hlutum," sagði Albert, „og það málaflokkur. Það er ljóst að það
má búast við því að flokkurinn er þörf fyrir nýtt pólitískt afl í
eigi eftir að breiða úr sér, þetta íslenskum stjómmálum."
Vesturland
Vestfiröir
Noröurland
Norðausturland
29. og 30. sept.
1. og 2. okt.
3. og 4. okt.
5. okt.
Austfirðir 7. okt.
Suðurland 8. og 9. okt.
Suðurnes ÍO. okt.