Morgunblaðið - 30.09.1987, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 30.09.1987, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1987 51 SVAR MITT eftir Billy Graham Er Guð að refsa mér? Eg hef undanfarið þurft að glíma við margvisleg vandamál. Heldur þú að Guð sé að refsa mér fyrir eitthvað sem eg hef gert af mér? Eg veit ekki hvemig á stendur hjá þér, og því er erfítt fyrir mig að svara þessu til fulls. Þó ættir þú að gera þér grein fyrir nokkrum meginatriðum þegar þú hugsar um stöðu þína. Það er eitt, að óvíst er með öllu að Guð sé að refsa okkur fyrir einhveija synd sem við höfum drýgt, þó að við verðum fyrir áföllum. Þeta kennir Biblían greinilega. Einu sinni hitti Jesús mann sem hafði verið blindur frá fæðingu. Lærisveinamir hugsuðu sér að Guð væri að refsa honum á þennan hátt fyrir eitthvað sem hann eða foreldrar hans hefðu gert. En Jes- ús sagði að svo væri ekki heldur hefði Guð leyft að þetta gerðist! „Er þetta til þess að Guðs verk verði opinber á honum“ (Jóh. 9,3). Síðan læknaði Jesús manninn til þess að opinbera mátt Guðs. Stundum skiljum við ekki eitt og annað sem okkur ber að höndum og hvers vegna Guð tekur ekki í taumana. En við megum ekki gera sömu mistök og vinir Jobs. Þeir héldu að þjáningar hans hlytu að vera refsing Guðs. En jafnframt skulum við gera okkur ljóst að sum atvik í lífi okk- ar stafa beinlínis af því að við höfum risið upp gegn Guði. Ef við reynum að bijóta náttúrulögmálin, t.d. þyngdarlögmálið, kemur það okkur í koll. Alveg eins og fer ef við bijótum siðgæðislögmál Guðs eða andleg lögmál hans. Við hljótum að súpa seyðið af því, beint eða óbeint. Eg veit ekki hvort aðstæður þínar eru einmitt á þann veg. En orð Guðs segir: „Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða, því að það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. Því að sá sem sáir í hold sjálfs sín (þóknast syndugu eðli sínu) mun af holdinu uppskera glötun“ (Gal. 6, 7—8). Nú ríður mest á að þú snúir þér til Krists og felir honum vanda- mál þín. Þú þarfnast fyrirgefningar því að þú ert syndari eins og allir aðrir. Og þú þarft líka á styrk hans að halda í daglegu lífí. Guð elskar þig og hann þráir að þú komir til sín í trú á Krist. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför SONJU GÍSLADÓTTUR hjúkrunarkonu, Eva Geirsdóttir, Jón Geirsson, Sturla Geirsson, Þóra Geirsdóttir, Eva Andersen, tengdabörn, barnabörn og systkini hinnar látnu. t Innilegar þakkir faerum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför RAGNHEIÐAR GRÓU VORNSDÓTTUR, Ægisgötu 43, Vogum. Jóhann Óskar Guðjónsson, Bjarndís S. Jóhannsdóttir, Páli Sœvar Kristinsson, Inga Ósk Jóhannsdóttir, Jónas Þ. Jónsson, barnabörn og systkini hinnar látnu. Birting afniælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. .. Fréttabréf frá Danmörku: Fjölbreytt Vetrargleði Islendingafélagsins stendur í rúma viku JónshÚHÍ, Kaupmannahöfn. EKKI er enn búið að leysa hið svokallaða nafnamál íslenzkra barna hér í Danmörku. Færa Danir sig heldur upp á skaftið og eru nú dæmi um, að ungling- um, sem flytjast frá íslandi með foreldrum sínum, sé gert að skipta um nafn. Einkum stúlkur sem eiga þá að heita sonur afa síns eða taka nafn stjúpafa. Þetta hefur verið vandræðamál a.m.k. undanfarin 4 ár og er leitt, að islenzk yfirvöld skuli líða þetta misrétti, sem hefur gert mikið illt i samskiptum ungra islenzkra fjölskyldna við dönsk yfirvöld, svo ekki sé talað um óþægindi íslenzka prestsins, sem berst lítt studdur fyrir sjálfsögðum rétt- indum barna hér fæddra til að halda íslenzkri nafnhefð. Skiptir þá ekki máli, hvort barn er skírt eða nafngefið hér eða heima. Svíar leystu þetta mál farsællega fyrir 2 árum og nú hefur það verið til lykta leitt á jákvæðan hátt í Noregi eftir viðræður Gro H. Brundtland forsætisráðherra og Steingríms Hermannssonar utanríkisráðherra í fyrravetur. Séra Felix Ólafsson, sem hefur verið starfandi prestur hér í Dan- mörku um árabil, annaðist síðustu íslenzku guðsþjónustuna í Skt. Pálskirkju í veikindaforföllum. Er mikið happ að eiga svo góðan starfsbróður hér í „afskekktasta íslenzka prestakallinu", þar sem enginn er til afleysinga. Hafði séra Felix ekki messað á móðurmálinu í 17 ár, en greinilega engu gleymt. Jón Böðvarsson ritstjóri Iðnsögu íslands hélt í messukaffínu fróðlegt erindi um þorskastríð á 16. öld, svokallaðan Grindavíkurbardaga. Jón dvaldi ásamt Guðrúnu Björg- vinsdóttur konu sinni í fræðimannsí- búðinni þetta nýliðna sumar, sem Danir kalla gjaman grænan vetur. Séra Finnúr Tulinius, dansk-ís- lenzkur prestur og íslandsvinur, lézt í sumar á tíræðisaldri. Hélt hann reisn sinni þrátt fyrir háan aldur fram undir það síðasta og við frábæra umönnun konu sinnar, frú Ullu, á heimili þeirra í Hellerup lengst af. Séra Finnur átti fjölda vina á íslandi og heimsótti þá iðu- lega og var einlægur vinur ættlands feðra sinna, en faðir hans var Þórar- inn Erlendur Tulinius. ins, séra Ágústi, og geta íslendinga- félög í Danmörku snúið sér til hans vegna útlána á þeim. Var þetta smekkleg og eftirbreytniverð gjöf, því íslendingafélög, stór og smá, hafa opið hús eða kvöldvökur fyrir félaga sína hvert á sínum stað og er íslenskt efni, blöð og myndir kærkomið. I október mun íslendingafélagið í Kaupmannahöfn gangast fyrir íjölbreyttri Vetrargleði í rúma viku. Nánar tiltekið frá 24.—31. október og fara öll atriðin fram í Jónshúsi nema gönguferð um íslendingaslóð- ir, guðsþjónusta og dansleikur. Er það von stjómar félagsins, að sem flestir fínni eitthvað við sitt hæfí á Vetrargleðinni og leggi leið sína í Jónshús. íslenzkur matur verður á boðstólum flest kvöld og þarf að panta matinn 2 dögum áður hjá Bergljótu Skúladóttur gestgjafa. Dagskráin verður sem hér segir: Laugardagur 24. október. Gönguferð á íslendingaslóðir undir leiðsögn sr. Ágústs Sigurðssonar, frá Sivalatumi kl. 15. Stiklumyndin í Fjörðum sýnd kl. 17.45 og að afloknu borðhaldi með lambasteik hefst kvöldvaka í léttum dúr fyrir alla fjölskylduna kl. 20. Sunnudagur 25. október. Guðs- þjónusta í Skt. Pálskirkju kl. 14. Messukaffi og samkoma fyrir eldri borgara. íslenzk kvikmynd og hlutavelta íslenzka safnaðarins í Kaupmannahöfn. Mánudaginn 26. október. Sýnd myndin Arkað af stað á Austur- landi kl. 17.45. Eftir saltkjöt og baunir verður kvöldvaka sem nefn- ist Föðurhúsum fjarri. fslendingar Stykkishólmi. FLOTBÚNINGAR eru nú komnir í alla báta í Stykkishólmi eftir þeim upplýsingum sem fréttarit- ari hefur aflað sér hjá skipstjór- um og áhugamönnum. Sérstakt átak var gert og tvö- hundruð búningar keyptir í einu. lýsa fyrstu skrefum sínum á er- lendri grund. Umsjón Erla Sigurð- ardóttir. . Þriðjudagur 27. október. Sýnt myndbandið Handafl og vatnsafl' kl. 17.45. Eftir svið og rófustöppu er tónlistarkvöld, þar sem Hlín Þor- steinsdóttir og Morten Praem flytja tónlist og Ásgeir Elvar syngur við gítarundirleik. Miðvikudagur 28. október. Undir vaðalfjöllum, stikluþáttur, sýndur kl. 17.45. Síðan er steikt ýsa á borðum og þá jazzkvöld í umsjá Guðmundar Eiríkssonar. Fimmtudagur 29. október. Kvik- myndin Falin fegurð kl. 17.45. Þá verður snætt hangikjöt og loks ís- landskvöld á dönsku, þar sem Edith Tranekjær Poulsen, Örn Ólafsson lektor og Sigurður Sigurðsson frá Flugleiðum segja frá og sýna mynd- ir. Föstudagur 30. október. Stiklu- þátturinn Með fulltrúa fomra dyggða sýnd kl. 17.45. Saltkjöt og baunir á borði og loks bingó kl. 20, þar sem vinningar eru m.a. íslands- ferð, íslenzkt lambakjöt og íslensk- ur fiskur. Laugardagur 31. október. Ómar Ragnarsson skemmtir börnunum • kl. 15. Síðan sýnd myndin Með fróð- um á frægðarsetri. Lambasteik er kl. 18, en kl. 20 verða nýnemar boðnir velkomnir af Námsmannafé- laginu. Þar á eftir er dansleikur í Teatersalen við Bispetorv, og hefst hann kl. 21. íslenzka danshljóm- sveitin leikur og Ómar Ragnarsson skemmtir gestum. — G.L. Ásg. Tíu búningar hafa verið keyptir í til æfinga fyrir sjómenn hjá björg- unarsveitinni Berserkir. Æfíngar í notkun flotbúninganna fara fram fjórum sinnum á ári og á hver skip- stjóri að sjá um að skipshöfn hans taki þátt I þeim. Flotbúningar í alla báta í Stykkishólmi í Odense er stórkostlegt sýning- arhús, sem heitir Brandts Klæde- fabrik og var opnað í fyrra. Undanfarið hefur verið sýning þar í Kunsthallen á_ verkum Islending- anna Halldórs Ásgeirssonar, Krist- jáns Guðmundssonar og Hannesar Lárussonar. Ásamt þeim sýndi Oey Tjeng Sit, sem er frá Java í Indó- nesíu, en búsettur í Amsterdam. Sýning þessara ólíku listamanna nefndist Vorsól á Snæfellsjökli og vakti athygli á Fjóni og víðar. Málverk Hjálmars Þorsteinsson- ar listmálara hafa verið til sýnis í félagsheimilinu í Jónshúsi undan- famar vikur og sterkir litir þeirra brugðið birtu í salinn. Hjálmar sýndi einnig fyrr í sumar á Dragör, þar sem hann á heima, og víðar á Amager. Nú tekur brátt við sýning Hauks Dór í félagsheimilinu, en hann er líka búsettur hér í Dan- mörku. Nýlega sendi Markús Öm Ant- onsson útvarpsstjóri alla Stiklu- þætti Ómars Ragnarssonar Jónshúsi að gjöf til notkunar í fé- lagsstarfí. Eru spólumar 10 og raunar fleiri íslenzk myndbönd. varðveitt hjá umsjónarmanni huss- Tíu bílar í Happ- drætti styrktar- félags vangefinna ÞESSA DAGANA er verið að senda út happdrættismiða í ár- legu happdrætti Styrktarfélags vangefinna, en miðamir erú sendir heim til kvenna á aldrin- úm 18-64 ára. Vinningar verða 10 talsins og heildarverðmæti þeirra 4,2 mil(jónir króna. í fréttatilkynningu frá félaginu segir, að aðalvinningurinn í happ- drættinu sé Audi 100 CC, árgerð 1988 að verðmæti um 1 milljón krónur og annar vinningurinn bif- reið áð eigin vali að upphæð 600 þúsund krónur. Þá eru átta vinning- ar, bifreiðar að eigin vali, hver að skattfrjálsir. Dregið verður 24. des- ember næstkomandi. í fréttatilkynningu Styrktarfé- lags vangefínna segir, að félagið standi nú sem fyrr í miklum og fjárfrekum framkvæmdum. Meðal annars hefur það á þessu ári fest kaup á fjórum íbúðum sem leigðar hafa verið fólki, sem flest hefur áður dvalið á sambýlum félagsins. Auk þessara íbúða annast félagið nú rekstur sex sambýla í borginni, skammtlmaheimilis, þriggja dag- vistunarstofnana og verndaðs vinnustaðar. Alls dvelja nú um 150-160 einstaklingar á þessum heimilum og stofnunum, en enn eru. upphæð 325 þúsund krónur. Miða- tugir einstaklinga á biðlistum eftir nrn \ lUMMMHfHIXMi , .,. t'lipMpPMaMnSMHMÍ verð er 250 krónur og vmnmgar sambynspiássum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.