Morgunblaðið - 30.09.1987, Qupperneq 60
'ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
I GuðjónÓ.hf.
/ 91-27233 !
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGIJR 30. SEPTEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
TVEIR DÝRGRIPIR FLUGLEIÐA
FLUGLEIÐIR hafa eignast
tvær gamlar flugvéiar, sem
áhugamenn um flug kalla dýr-
gripi. Vélar þessar verða til
sýnis á 50 _ára afmæli farþega-
flugs á íslandi þann 9.-11.
október.
Vélamar eru báðar sjóflugvél-
ar. Sú eldri er að gerðinni Waco
YKS-7 og ber hún einkennisstaf-
ina TF-ORN, eins og vél sömu
gerðar sem var í eigu Flugfélags
Akureyrar. Það var stofnað árið
1937, en 1940 var nafni flugfé-
lagsins breytt í Flugfélag íslands.
TF-ÖRN flaug fyrsta sinni frá
Reykjavík til Akureyrar 2. maí
1938 og fyrsta farþegaflug með
vélinni var farið tveimur dögum
síðar.
Hin vélin er af gerðinni Stinson
Reliant, en flugvélar þeirrar gerð-
ar voru í eigu Loftleiða og var
...
srinson Reliant-vélin lítur jafn vel út nú og fyrir áratugum.
Vélin er á hjólum, en ekki flotholtum eins og vélar Loftleiða voru.
Morgunblaðið/KGA
Kristinn Halldórsson, yf irmaður tæknideildar Flugleiða, um borð
í Waco-flugvélinni TF-ÖRN.
fyrsta flug fyrirtækisins með
slíkri vél í apríl 1944. Flugleiðir
keyptu vélina af fullorðnum
Bandaríkjamanni, sem eignaðist
hana árið 1958. Kristinn Halldórs-
son, yfirmaður tæknideildar
Flugleiða, sagði að fyrirtækið
hefði leitað að slíkri vél í átta ár,
en aðeins voru framleiddar um
50 vélar þessarar gerðar. Fyrir
vélina greiddu Flugleiðir 30 þús-
und dali, eða um 1,2 milljónir.
Vélin er svört og rauð að lit og
þar sem hún er í mjög góðu
ástandi verður hún ekki máluð í
litum Loftleiða. „Gamlir flugmenn
hafa komið hingað til að líta á
vélamar og mig grunar að þeir
vildu gjaman fljúga þeim,“ sagði
Kristinn. „Það stendur hins vegar
ekki til að gera þær flughæfar,
svo af því getur ekki orðið."
Vestmannaeyjar:
Breki fisk-
arsem
aldrei fyrr
Aflaverðmæti
106 milljónir
Vestmannaeyjum.
ALLT stefnir í það að togarinn
Breki VE verði aflahæstur tog-
ara í Vestmannaeyjum, svo sem
verið hefur undanfarin ár. Hann
landaði í gær i fjórða skipti í
þessum mánuði og er þá afli
hans þennan eina mánuð orðinn
um 800 tonn.
Sævar Brynjólfsson, skipstjóri á
Breka, vildi í samtali við Mbl. lítið
úr þessu gera og enga hafði hann
sérstaka skýringuna á þessum góðu
aflabrögðum. Hann sagði að þeir
væm löngu búnir með þorskkvóta
sinn og hefðu undanfarið að mestu
verið í ufsa. Hefði aflanum svo til
eingöngu verið landað í frystihúsin
hér.
Það sem af er árinu hefur Breki
aflað 3.900 tonna en allt árið í fyrra
aflaði skipið 4.200 tonna. Aflaverð-
mætið er komið í 106 milljónir.
— bs.
Margeir og
Helgi unnu
Tvær umferðir eftir
Alþýðusamband Austurlands:
Kröfur um 7 0% hækk-
un fyrir fiskvimislufólk
ALÞÝÐUSAMBAND Austurlands hefur samþykkt kröfur fyrir næstu
kjarasamninga félagsins við Vinnuveitendasamband íslands þar sem
krafist er að meðaltali um 70% taxtahækkunar fyrir fiskvinnslufólk.
Sigfinnur Karlsson forseti ASA segir þetta tilraun til að snúa þeirri
öfugþróun við að ekki fáist starfsfólk til fiskvinnslu. Þórarinn V.
Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ segir að kröfugerð ASA sé ekki
í tengslum við raunveruleikann.
Kröfur ASA fyrir fiskvinnslufólk
em miðaðar við flóra launaflokka. í
neðsta flokki er almennt fiskvinnslu-
**rólk og er krafist 38.000 króna
lágmarkslauna í þeim flokki, þegar
reiknað hefur verið með 7,23%
hækkun 1. október og í efsta flokki
er fastráðið sérhæft starfsfólk með
43.031 króna laun. I flokkunum er
síðan gert ráð fyrir starfsaldurs-
hækkunum og er hæsti taxti í 4.
flokki þannig 51.637 krónur.
Alþýðusambandið samþykkti
einnig launakröfur fyrir alla al-
menna verkamannavinnu sem ekki
er raðað annarsstaðar. Þar er gert
ráð fyrir fjórum flokkum og em lág-
markslaun á bilinu 35.000 til 38.246
á mánuði. Hæsti taxti í 4. flokki
ér 45.895 krónur. Einnig em gerðar
kröfur um einn yfirvinnutaxta sem
er 80% á yfirvinnu og 160% stórhá-
tíðarálag.
Sigfinnur Karlsson forseti ASA
sagði að þama væri verið að krefj-
ast um 70% launahækkunar fyrir
fiskvinnslufólk en um 50% fyrir al-
menna verkamenn. „Forsendumar
em að það er að verða vandræða-
sættu sig ekki við að fá einn pott
af mjólk heldur vildu fá annan, þó
svo hann væri þynntur með vatni,"
sagði Þórarinn.
MARGEIR Pétursson vann í gær
Þröst Þórhallsson á Skákþingi ís-
lands sem haldið er á Akureyri.
Hann er efstur eftir elleftu umferð
með 10 vinninga. Helgi Ólafsson
er í öðru sæti með 9 vinninga og
Hannes Hlífar Stefánsson í því
þriðja með 7,5 vinninga.
Önnur úrslit á Skákþingi_ íslands
í gær vora þau að Helgi Ólafsson
vann Þröst Amason, Hannes Hlífar
Stefánsson vann Gylfa Þórhallsson,
Dan Hansson vann _ Gunnar Frey
Rúnarsson, Davíð Ólafsson vann
Áskel Öm Kárason og Sævar Bjama-
son vann Ólaf Kristjánsson. Skák
Jóns G. Jónssonar og Karls Þorsteins
var frestað.
ástand allsstaðar á landinu með
frystihúsin, þar sem fólk fæst ekki
til vinnu. Við ætlum með þessu að
reyna að skapa raunhæfa möguleika
á að undirstöðuatvinnuvegur þjóðar-
innar verði nýttur betur en gert er
og það verður ékki gert nema hægt
sé að laða fólk að þessari vinnu með
hærri launum. Þetta er tilraun til
að snúa þessari öfugþróun við,“
sagði Sigfinnur.
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins sagðist í gærkvöldi ekki
hafa fengið kröfur ASA í hendumar
en miðað við það sem hann hefði
heyrt virtist honum þær vera laus-
tengdar raunvemleikanum. „Það
væri út af fyrir sig afskaplega gam-
an að geta orðið við þessum óskum
en fólk getur sagt sér það sjálft
hvort líkur séu fyrir að það sé hægt.
Mér sýnist á kröfum Verkamanna-
sambandsins, eins og þær liggja
fyrir, og af því sem heyrist frá Aust-
urlandi að þar séu menn búnir að
gefast upp við að semja um raun-
vemlegar launabreytingar og vilji
aftur hverfa til þess tíma sem menn
Fiskmarkaðurinn í Hafnarfirði:
Skilyrði um ráðstöf-
unþorsks úr Víði HF
ÚTGERÐ og áhöfn togarans
Víðis HF setti í gær það skilyrði
fyrir sölu 23 tonna af þorski á
Fiskmarkaðinum i Hafnarfirði,
að hann yrði ekki fluttur óunn-
inn úr landi. Það olli verulegri
ólgu meðal kaupenda fyrir upp-
boð, en fiskurinn var engu að
síður keyptur. Skýring þessa er
sú, að þrátt fyrir að fiskurinn
skipti um eigendur, miðast út-
flutningur fisksins fersks við
skipið, sem aflaði hans. Því
skerðist þorskkvóti þess um 10%
þó fiskurinn sé ekki fluttur utan
sem eign útgerðar og áhafnar
þess samkvæmt reglum um út-
flutning á ferskum fiski.
„Það er ljóst að þessar reglur
skerða athaftiafrelsi manna á fisk-
mörkuðunum. Eigum við að taka
á okkur skerðingu á kvóta vegna
útflutnings á ferskum fiski, viljum
við taka þá áhættu sjálfir. Ekki
fá bakreikning síðar fyrir að hafa
farið yfir leyfilegt magn á veiðum.
Við munum því halda þessum skil-
yrðum fyrir sölu á fiski frá okkur
á markaðnum," sagði Jón Friðjóns-
son, útgerðarmaður Víðis, í samtali
við Morgunblaðið.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðarins, tók í
svipaðan streng og Jón Friðjóns-
son. Hann sagði, að við þessu yrði
bmgðizt. Reglur þessar um kvóta-
skerðingu heftu starfsemi fisk-
markaðanna. Það gæti ekki gengið
að menn settu fisk inn á markað-
inn, seldu hann þar öðmm
mönnum án þess að vita hvað um
fiskinn yrði, og fengju svo sektir
fyrir að hafa veitt umfram kvóta.
Þetta skilyrði útgerðar og áhafnar
Víðis hefði verið kynnt skilmerki-
lega fyrir uppboð og valdið tals-
verðri ólgu, enda skiljanlegt að
kaupendur væm óhressir með að
vera sett skilyrði fyrir því, hvað
þeir gerðu við fisk, sem þeir
keyptu. Þetta væri slæmt fyrir
baeði seljendur og kaupendur og
lausn á þessu yrði að finnast.