Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 37

Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987 37 HEIMA OG HANDAN Anjelica Huston og James Caan í mistækri mynd Coppola. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Stjörnubíó. Steingarðar — Gardens of Stone ☆☆☆ Leikstjóri: Francis Copp- ola. Handrit: Ronald Bass, byggt á skáldsögu Nicholas Profitt. Tónlist: Carmine OFBELDIGEGN OFBELDI Regnboginn. Ómega-gengið ☆☆ Leikstjóri: Joseph Manduke. Handrit: John Sharkey. Mynda- tökustjóri: Harvey Genkins. Tónlist: Nicholas Carras. Aðal- leikendur: Ken Wahl, George DiCenzo, Cicole Eggert, Doug McClure. Bresk. Smart Egg Pictures 1987. Ómega-gengið er ein hinna fjöl- mörgu miðlungsþrillera sem í raunin er sárafátt um að segja. Svo gott sem allt í meðallagi. Leik- hópurinn nánast óþekktur, ef undan eru skildir þeir Ken Wahl, sem virðist hafa haft einum of miklar framavonir eftir að hann lék í Fort Apache, The Bronx, og gamli Walt Disney leikarinn Dough McClure, sem hér áður fyrr lék gjaman blíðlynda mömmudrengi en gerir sig nú ánægðan með hlut- verk treggáfaðra, sælgætissjúkra lögregluforingja. andi fer. Heimur versn- Eitt er það þó sem gerir Omega-gengið nokkuð frábrugðið öðrum þrillerum. Það er hið tak- markalausa ofbeldi sem beitt er á báða bóga. Myndin gerist í LA og segir af raunum blaðamannsins Wahl. Hann er ekkill sem fær að heimsækja dóttur sína á tveggja mánaða fresti og einmitt þegar hann hefur hana hjá sér er telp- unni rænt. Wahl fær gamlan stríðsfélaga úr Víetnam að hafa uppá ræningjunum og áður en þeir vita af eru þeir komnir í stríð við hryðjuverkasamtökin Omega. Gamalkunn formúla og engin ævintýramennska í framsetning- unni. Sem svo oft áður í myndum af þessari gerð er ýmislegt heldur óljóst og óútskýrt í hinum talaða texta, aðaláherslan lögð á að aldr- Nicole Eggert er tvímælalaust fallegasti punkturinn við Omega-gengið. ei þagni í byssukjöftum né bílmót- orum. Hasarmynd fyrir unglinga yfir sextán. Coppola. Myndatökustjóri: Jordan Cronenweth ASC. Klipping: Barry malkin. Aðalleikendur: James Caan, James Earl Jones, Anjelica Huston, D.B. Sweeney, De- an Stockwell, Mary Stuart Masterson, Dick Anthony Williams, Lonette McKee. Bandarísk, TriStar Pictures 1987. í nýjustu mynd sinni fjallar Coppola um Víetnamstríðið séð með augum þeirra sem heima fyrir sitja. Gamalla atvinnuheij- álka, ungra manna í herþjálfun og eiginkvennanna sem einar máttu þreyja þorrann og góuna. Caan og Jones eru rosknir at- vinnuhermenn sem báðir sáu vígvellina í Kóreu og Víetnam. En nú hafa þeir fengið annað hlutverk; að sjá um greftranir í þjóðargrafreitnum í Arlington, en það er hlutverk heiðurssveitar bandaríska fótgönguliðsins. Þeir sjá sjálfa sig unga í hinu efnilega stríðsmannsefni D.B. Sweeney sem sér stríðið í ljóma hugsjónar- innar, og á þann draum heitastan að komast á vígvöllinn í Víetnam. Segir eitthvað á þá leið; „her- maður á réttum tíma og réttum stað getur breytt gangi sögunn- ar“. Þeir Caan og Jones reyna að telja Sweeney hughvarf, eink- um sökum þess að þ eir hafa báðir skömm á Víetnamstríðinu, sem þeir af eigin reynslu vita að er alltöðru vísi en aðrar styij- aldir. En allt kemur fyrir ekki, hann lætur drauminn rætast og kemst á vígstöðvamar. Steingarðar §alla um mikið fleira en þennan þráð, kannski fyrst og fremst um hermennsku, böndin sem bindast manna á milli á blóðvellinum, herslu her- þjálfunarinnar, agann, virðing- una fyrir föðurlandinu, sjálfum sér, búningnum, heiðurmerkjun- um ... í þeirri umfjöllun flýgur andi Coppola hæst að þessu sinni og nýtur afbragðsleikara sem halda athygli manns á myndinni vakandi frá upphafi til enda. Það er unun að horfa á samleik þeirra Caans og Jones, Dick Anthony Williams er sömuleiðis góður í hlutverki hrottans Slasher Will- iams. Þá er D.B. Sweeney ótrúlega sannfærandi í mjög erf- iðu hlutverki hins hugumstóra nýliða og Anjelica Huston fer vel með hlutverk vinkonu Caans, þó það sé nokkuð útá þekju af hálfu handritshöfundar. Því miður umvefur Coppola myndina of sterkum tilfinningum strax í nístandi upphafsatriðinu, þar sem hann markar línuna og áhorfendur vita hvert framhaldið verður. Steingarðar er þungbær, kvikmyndaleg reynsla sem minnir oft á orðtakið „fall þeirra er mest sem fljúga hæst“. Heimílístækí sem bíða ekki! , \ \ \\\\\\\\A 4sskápnr íwn b tr.i iiiiinniiM -þurrkar eltlavúl jrystikistá Tfláö' Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúð Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á 24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam- band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki eftir neinu að bíða. TAKMARKAÐB PEMAGN=1............... a þessum kjoruma ^ SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 slml 687910

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.