Morgunblaðið - 04.10.1987, Page 56
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
^ Morgunblaðið/RAX
IIÐRUMJARÐAR
Greftri við neðanjarðarvirki í Blönduvirkjun er nú lokið og er nú unnið við að steypa upp stöðvar-
hús 230 metra undir yfirborði jarðar, sem verður 69 metrar á lengd, 13,5 metrar á breidd og 30
metrar á hæð. Morgunblaðsmenn voru á ferð í virkjuninni fyrir skömmu og er myndin tekin þar
sem unnið er við að logsjóða aðrennslispípu virkjunarinnar.
Bifreiðir án
ábyrgðartrygg-
inga í umferð
Tryggingafélög firra sig ábyrgð
þegar um vanskil er að ræða
Grindavík.
MJÖG HEFUR færst í vöxt að tryggingafélögin sendi fógetum og
sýslumönnum bréf þar sem óskað er eftir að bifreið með tilteknu
númeri sé tekin úr umferð vegna vanskila á ábyrgðartryggingum.
Misvel gengur að ná þessum bifreiðum úr umferð og valdi þær tjóni
áður en til þeirra næst firra tryggingafélögin sig allri ábyrgð.
Fjöldi slíkra bifreiða er nú í umferðinni.
Að sögn Ægis Ágústssonar varð-
stjóra lögreglunnar í Grindavík lenti
hann í árekstri í Reykjavík síðastlið-
ið sumar og var í fuilum rétti.
Eigandi bifreiðarinnar sem olli tjón-
inu var í vanskilum við tryggingafé-
lagið og þrátt fyrir að ósk hefði
borist lögregluyfirvöldum um að
taka bifreiðina úr umferð hafði það
ekki verið gert. „Eftir mikið mála-
vafstur og fyrirhöfn hefur eigandi
bifreiðarinnar nú fallist á að greiða
tjónið en því hefur hann hingað til
neitað. Auk þess sem tryggingafé-
lagið hefur alfarið neitað að gera
upp tjónið," hélt Ægir áfram.
„Manni verður hins vegar hugsað
til þess hvemig slík mál gætu þró-
ast ef alvarleg slys yrðu og einstakl-
ingar þyrftu að standa í málaferlum
um bótaskyldur við eitthvert fólk
út í bæ vegna missis aðstandenda.
Mér finnst að skylda tryggingafé-
laganna sé orðin harla lítil ef þeir
geta firrt sig ábyrgð á þennan hátt
og síðan tekið viðkomandi bifreið
aftur í tryggingu eins og ekkert
hafi í skorist án þess að vanskila-
tímabilið sé greitt,“ sagði Ægir
Ágústsson lögregluvarðstjóri að
lokum.
— Kr.Ben.
Hlutur ríkisins í Sjóefnaviimshmni:
Lyfja- og gosfram-
leiðendur vilja kaupa
Hitaveita Suðumesja vill orkuréttínn
ins segja að Vífilfell hf. sé
áhugasamt um að eignast hlut i
Sjóefnavinnslunni hf. vegna kol-
sýruframleiðslu verksmiðjunnar
og til að treysta stöðu sína á gos-
drykkjamarkaðinum, þar sem
mikil samkeppni ríkir um þessar
mundir.
Forráðamenn Hitaveitu Suður-
nesja hafa mikinn hug á yfirtöku
Sjóefnavinnslunnar hf. til að tryggja
sér réttindi til orkuvinnslu á svæðinu
og fyrirbyggja þannig að stórir aðil-
ar eigi greiðan aðgang að ódýrari
orku. Mjög jákvæðar niðurstöður
liggja nú fyrir um tilraunir með
bólukrem sem unnið er úr kísli auk
þess sem rannsóknir með heilsusalt
lofa góðu. Þessi verkefni hafa verið
unnin á vegum Sjóefnavinnslunnar
hf. í samvinnu við Pharmaco-Delta
hf. og Sagasalt hf. en þessi fyrir-
tæki tengjast erlendum söluaðilum.
Söluhorfur þykja mjög vænlegar en
ríkið hefur reynst dragbítur á starf-
semina þar sem þaðan gætir mikillar
tregðu á frekari fjárveitingu til að
fullvinna vörumar og markaðssetja
á þann hátt sem yrði árangursríkast.
Kr.Ben.
Troll í skrúfu
HAFÞÓR RE 40 fékk trollið í
skrúfuna aðfaranótt laugardags-
ins, þegar skipið var statt norður
við Gildru.
Varðskipið Óðinn dró skipið inn
í Hornvík, þar sem trollið var skor-
ið úr skrúfunni.
Gríndavík.
NOKKRIR einkaaðilar hafa lýst
áhuga sínum á hlut ríkisins í Sjó-
efnavinnslunni hf. á Reykjanesi i
kjölfar þess að nefnd sem skipuð
er fulltrúum frá iðnaðarráðu-
neyti, fjármálaráðuneyti og
sjóefnavinnslunni hóf viðræður
við forráðamenn Hitaveitu Suður-
nesja um yfirtöku á Sjóefna-
vinnslunni hf. Nefndin mun hafa
talað við fulltrúa fleiri fyrirtækja
og eru þá einkum nefnd sam-
starfsfyrirtæki sjóefnavinnslunn-
ar Pharmaco hf. og ísaga hf. auk
þess sem heimildir Morgunblaðs-
Kristinfræðikennsla í skólunum:
Prestar sem kennakristm-
fræði teljast leiðbeinendur
Fær ekki staðist og hlýtur að verða leiðrétt segir Olafur Skúlason vígslubiskup
SAMKVÆMT nýjum lögum er prestum, sem kenna kristin-
fræði, skipað í hóp leiðbeinenda og að sögn Ólafs Skúlasonar
vígslubiskups finnst prestum skjóta skökku við þegar útlærð-
ir guðfræðingar hafa ekki full réttindi til kennslu í kristin-
fræði.
Ólafur Skúlason, vígslubiskup,
sagði algengt að prestar úti á
landi tækju að sér kennslu í krist-
infræðum, oftast vegna eindreg-
inna óska heimamanna. „Þessi
kennsla hefur gefíð góða raun og
kirkjan hefur örvað presta til að
stunda hana,“ sagði Ólafur. „Nú
eru prestar hins vegar óánægðir
þar sem guðfræðingar, sem hafa
stundað nám við Háskóla íslands,
teljast ekki fullgildir kennarar í
fræðunum," sagði Olafur. „Að
sjálfsögðu getur prestur, sem
fæst við kennslu í stærðfræði,
ekki gert kröfu um að teljast full-
gildur kennari, en i kristinfræði
á hann að njóta menntunar
sinnar. Þessum málum hlýtur að
verða kippt í liðinn hið allra bráð-
asta, enda getur ekki verið um
annað en mistök að ræða. Það
fær ekki staðist að prestur, sem
fengist hefur við kennslu, sé allt
í einu settur skör lægra en aðrir
kennarar. Ég held að mennta-
málaráðherra hljóti að endur-
skoða þetta og bind í raun miklar
vonir við að hann geri sér grein
fyrir hversu óréttlátar þessar nýju
reglur eru,“ sagði Ólafur Skúla-
son.
í gær náðist ekki samband við
Birgi ísleif Gunnarsson, mennta-
málaráðherra, vegna málsins.
;