Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 56

Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 56
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. ^ Morgunblaðið/RAX IIÐRUMJARÐAR Greftri við neðanjarðarvirki í Blönduvirkjun er nú lokið og er nú unnið við að steypa upp stöðvar- hús 230 metra undir yfirborði jarðar, sem verður 69 metrar á lengd, 13,5 metrar á breidd og 30 metrar á hæð. Morgunblaðsmenn voru á ferð í virkjuninni fyrir skömmu og er myndin tekin þar sem unnið er við að logsjóða aðrennslispípu virkjunarinnar. Bifreiðir án ábyrgðartrygg- inga í umferð Tryggingafélög firra sig ábyrgð þegar um vanskil er að ræða Grindavík. MJÖG HEFUR færst í vöxt að tryggingafélögin sendi fógetum og sýslumönnum bréf þar sem óskað er eftir að bifreið með tilteknu númeri sé tekin úr umferð vegna vanskila á ábyrgðartryggingum. Misvel gengur að ná þessum bifreiðum úr umferð og valdi þær tjóni áður en til þeirra næst firra tryggingafélögin sig allri ábyrgð. Fjöldi slíkra bifreiða er nú í umferðinni. Að sögn Ægis Ágústssonar varð- stjóra lögreglunnar í Grindavík lenti hann í árekstri í Reykjavík síðastlið- ið sumar og var í fuilum rétti. Eigandi bifreiðarinnar sem olli tjón- inu var í vanskilum við tryggingafé- lagið og þrátt fyrir að ósk hefði borist lögregluyfirvöldum um að taka bifreiðina úr umferð hafði það ekki verið gert. „Eftir mikið mála- vafstur og fyrirhöfn hefur eigandi bifreiðarinnar nú fallist á að greiða tjónið en því hefur hann hingað til neitað. Auk þess sem tryggingafé- lagið hefur alfarið neitað að gera upp tjónið," hélt Ægir áfram. „Manni verður hins vegar hugsað til þess hvemig slík mál gætu þró- ast ef alvarleg slys yrðu og einstakl- ingar þyrftu að standa í málaferlum um bótaskyldur við eitthvert fólk út í bæ vegna missis aðstandenda. Mér finnst að skylda tryggingafé- laganna sé orðin harla lítil ef þeir geta firrt sig ábyrgð á þennan hátt og síðan tekið viðkomandi bifreið aftur í tryggingu eins og ekkert hafi í skorist án þess að vanskila- tímabilið sé greitt,“ sagði Ægir Ágústsson lögregluvarðstjóri að lokum. — Kr.Ben. Hlutur ríkisins í Sjóefnaviimshmni: Lyfja- og gosfram- leiðendur vilja kaupa Hitaveita Suðumesja vill orkuréttínn ins segja að Vífilfell hf. sé áhugasamt um að eignast hlut i Sjóefnavinnslunni hf. vegna kol- sýruframleiðslu verksmiðjunnar og til að treysta stöðu sína á gos- drykkjamarkaðinum, þar sem mikil samkeppni ríkir um þessar mundir. Forráðamenn Hitaveitu Suður- nesja hafa mikinn hug á yfirtöku Sjóefnavinnslunnar hf. til að tryggja sér réttindi til orkuvinnslu á svæðinu og fyrirbyggja þannig að stórir aðil- ar eigi greiðan aðgang að ódýrari orku. Mjög jákvæðar niðurstöður liggja nú fyrir um tilraunir með bólukrem sem unnið er úr kísli auk þess sem rannsóknir með heilsusalt lofa góðu. Þessi verkefni hafa verið unnin á vegum Sjóefnavinnslunnar hf. í samvinnu við Pharmaco-Delta hf. og Sagasalt hf. en þessi fyrir- tæki tengjast erlendum söluaðilum. Söluhorfur þykja mjög vænlegar en ríkið hefur reynst dragbítur á starf- semina þar sem þaðan gætir mikillar tregðu á frekari fjárveitingu til að fullvinna vörumar og markaðssetja á þann hátt sem yrði árangursríkast. Kr.Ben. Troll í skrúfu HAFÞÓR RE 40 fékk trollið í skrúfuna aðfaranótt laugardags- ins, þegar skipið var statt norður við Gildru. Varðskipið Óðinn dró skipið inn í Hornvík, þar sem trollið var skor- ið úr skrúfunni. Gríndavík. NOKKRIR einkaaðilar hafa lýst áhuga sínum á hlut ríkisins í Sjó- efnavinnslunni hf. á Reykjanesi i kjölfar þess að nefnd sem skipuð er fulltrúum frá iðnaðarráðu- neyti, fjármálaráðuneyti og sjóefnavinnslunni hóf viðræður við forráðamenn Hitaveitu Suður- nesja um yfirtöku á Sjóefna- vinnslunni hf. Nefndin mun hafa talað við fulltrúa fleiri fyrirtækja og eru þá einkum nefnd sam- starfsfyrirtæki sjóefnavinnslunn- ar Pharmaco hf. og ísaga hf. auk þess sem heimildir Morgunblaðs- Kristinfræðikennsla í skólunum: Prestar sem kennakristm- fræði teljast leiðbeinendur Fær ekki staðist og hlýtur að verða leiðrétt segir Olafur Skúlason vígslubiskup SAMKVÆMT nýjum lögum er prestum, sem kenna kristin- fræði, skipað í hóp leiðbeinenda og að sögn Ólafs Skúlasonar vígslubiskups finnst prestum skjóta skökku við þegar útlærð- ir guðfræðingar hafa ekki full réttindi til kennslu í kristin- fræði. Ólafur Skúlason, vígslubiskup, sagði algengt að prestar úti á landi tækju að sér kennslu í krist- infræðum, oftast vegna eindreg- inna óska heimamanna. „Þessi kennsla hefur gefíð góða raun og kirkjan hefur örvað presta til að stunda hana,“ sagði Ólafur. „Nú eru prestar hins vegar óánægðir þar sem guðfræðingar, sem hafa stundað nám við Háskóla íslands, teljast ekki fullgildir kennarar í fræðunum," sagði Olafur. „Að sjálfsögðu getur prestur, sem fæst við kennslu í stærðfræði, ekki gert kröfu um að teljast full- gildur kennari, en i kristinfræði á hann að njóta menntunar sinnar. Þessum málum hlýtur að verða kippt í liðinn hið allra bráð- asta, enda getur ekki verið um annað en mistök að ræða. Það fær ekki staðist að prestur, sem fengist hefur við kennslu, sé allt í einu settur skör lægra en aðrir kennarar. Ég held að mennta- málaráðherra hljóti að endur- skoða þetta og bind í raun miklar vonir við að hann geri sér grein fyrir hversu óréttlátar þessar nýju reglur eru,“ sagði Ólafur Skúla- son. í gær náðist ekki samband við Birgi ísleif Gunnarsson, mennta- málaráðherra, vegna málsins. ;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.