Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
5
Skreiðar-
nefndin
skipuð
Einar Ingvarsson
formaður
SKIPAN nefndar til að fara ofan
í sölu skreiðar og þá 'þætti, sem
henni tengjast, hefur nú verið
staðfest. I nefndinni eiga sæti:
Formaður Einar Ingvarsson og
aðrir eru Stefán Gunnlaugsson,
Atli Freyr Guðmundsson og Hall-
dór Guðbjarnarson.
Einar Ingvarsson er fyrrverandi
starfsmaður Landsbanka íslands,
Stefán Gunnlaugsson var viðskipta-
fulltrúi við sendiráði íslands í
London og tekur nú við starfi á
viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, Alti Freyr Guðmundsson
er deildarstjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu og Halldór Guðbjarnarson
fyrrverandi bankastjóri Útvegs-
banka íslands.
í skipunarbréfí nefndarinnar seg-
ir, að hún skuli kanna útistandandi
kröfur vegna sölu skreiðar til
Nígeríu, óseldar birgðir og fjár-
hagsleg áhrif lokunar markaðsins
í Nígeríu á hag skreiðarframleið-
enda. Nefndin hefur þegar störf.
Tvö fiskiskip
seldu erlendis
TVÖ ísienzk fiskiskip seldu afla
sinn erlendis á mánudag. Verð
fyrir hann var fremur lágt.
Ottó Wathne NS seldi 130 tonn,
mest þorsk í Grimsby. Heildarverð
var 7,8 milljónir króna, meðalverð
59,65. Þetta er nokkru lægra verð
en að undanfömu hefur fengizt
fyrir þorsk í Bretlandi, en skýringin
mun liggja í auknu framboði af
heimabátum. Framboð héðan er
ekki mikið þessa vikuna.
Ögri RE seldi á mánudag 200
tonn, mest karfa í Bremerhaven.
Meðalverð var 50,18 krónur. Ögri
á eftir óseld um 60 tonn, sem fara
á markaðinn í dag, þriðjudag. Þetta
verð er heldur hærra en fékkst i
síðustu viku, þrátt fyrir mikið fram-
boð á físki, bæði héðan og frá
heimamönnum. Engu að síður er
verðið í lægri kantinum.
Unnið að
rannsókn
kókaín-
málsins
LÖGREGLAN verst allra frétta
af rannsókn kókaínmálsins, sem
upp kom þann 17. október. Óvist
er hvenær rannsókninni lýkur.
Brasilísk hjón voru handtekin í
gistihúsi í Hveragerði laugardaginn
17. október. í fómm þeirra fundust
450 grömm af kókaíni og um 780
þúsund krónur, sem að hluta var í
erlendum gjaldmiðli, mest dollur-
um. Amar Jensson, lögreglufulltrúi,
sagði að fíkniefnalögreglunni mið-
aði ágætlega rannsókn málsins, en
sagði að ekki væri hægt að gefa
neitt upp um hana. Hann kvaðst
ekki vilja segja hvort íslendingar
hefðu verið handteknir vegna þessa
og sagði óvíst hvenær rannsókn
lyki.
GehaGert Kraftaverk
úr þessum efnum þarftu rétt áhöld.
Þau eigum
viðöll ásamt gnægð
góðra ráða, - þú skilur, við erum fagfólk.
Ætiarðu að breyta til svo
um munar?
Þá eigum við flfsar, parket, gólfdúka og veggfóður
í úrvali mynstra og áferða.
hjálpum þér
við valið og blöndum síðan málningu í litum
sem fara vel með, að þínum smekk
eða okkar ráðum.
Til að vinnavel
Síðumúla 15, sími (91)84533
- RÉm Ltiurinn!
»JÖNUSTAN SÍA